Vesturbæjarblaðið - sep. 2023, Blaðsíða 14
Hátt í þrír af hverjum fjórum, eða
72% borgarbúa, eru jákvæðir í garð
göngugatna í miðborg Reykjavíkur.
Jákvæðni eykst gagnvart göngugötum
og neikvæðum hefur verulega fækkað
á síðustu árum eða úr 20% árið 2019 í
9% árið 2023. Þetta kemur fram í nýrri
könnun Maskínu fyrir Reykjavíkurborg.
Viðhorf fólks til áhrifa göngugatna
á mannlíf er nokkuð stöðugt en síðustu
ár telja í kringum 70% aðspurðra að
göngugötur hafi jákvæð áhrif á mannlíf.
Rúmlega helmingur telur þær hafa jákvæð
áhrif á verslun og tveir af hverjum þremur
telja þær hafa jákvæð áhrif á veitinga- og
matsölustaði í miðborginni.
14 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2023
Mikil endurnýjun og víðtækar endurbætur
hafa átt sér stað á verslun Krónunnar á Granda
síðustu daga. Versluninni var lokað 9. ágúst sl. eftir
stórútsölu. „Við náðum nánast að tæma búðina
sem gaf okkur tækifæri til þess að fara á fulla ferð
í umbreytingarnar,“ segir Alexander Kolesnyk,
verslunarstjóri Krónunnar á Granda.
Verslunin verður sem ný þegar hún verður opnuð
að nokkrum dögum liðnum. Húsnæðið var tekið í
gegn og endurbætt í hólf og gólf. Þá hefur búnaður
hennar einnig verið endurnýjaður. Ný kælitæki verða
tekin í notkun sem eru umhverfisvænni en hin fyrri,
þar sem mikil áhersla er lögð á bæði umhverfisvænt
umhverfi og vöruúrval sem breytist nokkuð. Alexander
segir að aukið verði við vöruúrvalið, einkum í
grænum og umhverfisvænum vörum. Hann kveðst
hafa veitt því athygli að viðskiptavinir, sem margir
koma úr Vesturbæ Reykjavíkur og af Seltjarnarnesi,
sýni mikinn áhuga á góðu úrvali af fersku grænmeti
og ýmsum umhverfisvænum vörum. Þeir leggi
sérstaka áherslu á heilbrigt mataræði og lífsstíl og við
því verður brugðist með auknu úrvali af hollum og
næringarríkum valkostum.
Ein af nýjungum í nýju Krónuversluninni verður
aukin áhersla á tilbúna rétti. „Margir eru oft að flýta sér
á daginn, eru kannski á leið heim úr vinnu og vilja grípa
eitthvað í matinn sem er fljótlegt en einnig heilnæmt
og gott. Við höfum því lagt mikla áherslu á að auka
fjölbreytnina í tilbúnu réttunum hér á Grandanum.
Mikið er spurt um þá og er þá helst leitað eftir
fjölbreytni. Við þessu er okkur bæði ljúft og skylt að
bregðast og viðskiptavinir geta búist við að geta valið
úr ýmsu góðgæti til að taka með sér heim, til dæmis frá
WokOn, Tokyo Sushi og kjúkling frá Rotisserie. Seinna
á árinu opnum við síðan fleiri slíka staði sem verður
gaman að segja frá þegar nær dregur.
Að auki er fjórðu afgreiðslulausn Krónunnar gefið
aukið rými á Grandanum en þar er nú að finna
afhendingarstöð Snjallverslunar þar sem viðskiptavinir
geta verslað vörur á heimasíðu eða í appi Krónunnar
og sótt pöntunina í verslun. „Ég tel að fólk muni
kunna að meta það. Þetta verður allt önnur verslun,”
segir Alexander sem var þotinn af stað til þess að
líta eftir iðnaðarmönnum sem voru á fullri ferð
að störfum í versluninni.
Miklar endurbætur
á Krónunni á Granda
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Þrír fjórðu vilja göngugötur
Alexander Kolesnyk verslunarstjóri.
- þetta verður allt önnur verslun,
segir Alexander Kolesnyk, verslunarstjóri
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Við eigum frábært úrval
af buxum í
stærðum 36-60
Stór hluti Laugavegar er orðin göngugata.