Fjarðarfréttir - 05.10.2023, Blaðsíða 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2023
Nú er komið að hinu árlega
Konukvöldi í Firði, verslunarmiðstöð
sem verður haldið í dag, fimmtudaginn
5. október klukkan 18 til 21.
VEGLEG DAGSRKÁ
Að vanda verður vegleg dagskrá yfir
kvöldið. Landslið íslenskra tónlistar
manna heldur fjörinu uppi þar á meðal
kóngurinn sjálfur Elvis Presley,
látúnsbarkinn Bjarni Ara, Jón Sigurðs
son og engin annar en Herbert Guð
mundsson.
FRÁBÆR TILBOÐ
Frábær tilboð verða um allt hús,
vöru kynningar, léttar veitingar og
dansatriði. Kvöldið endar á risa vöru
happdrætti, þetta er kvöld sem ekki má
missa af!
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
Það sem margir gera sér ekki grein
fyrir er að í Firði eru verslanir sem hafa
verið þar í fjölda ára og oftast eru það
eigendurnir sem standa sjálfir á bakvið
búðarborðið, eða jafnvel starfsfólk sem
hefur unnið þar til margra ára. Þú getur
því verið viss um að fá persónulega
þjónustu þegar þú heimsækir verslanir
Fjarðar og þar inni leynist fjöldinn allur
af gullmolum.
AUKIÐ VÖRUÚRVAL
Það hafa auðvitað einnig bæst við
nýjar og spennandi verslanir síðustu
mánuði og vöruúrvalið aldrei verið
betra. Þú færð allt frá skóm, fatnaði og
snyrtivörum yfir í barnavörur, leikföng
og gjafavörur, svo eitthvað sé nefnt.
Eins er þar að finna flottar snyrti og
hárgreiðslustofur, veitingastaði og
ýmsa aðra þjónustu.
UPPBYGGING Í
MIÐBÆNUM
Það hefur verið markmið Fjarðar að
taka þátt í að byggja upp miðbæinn og
nú stendur yfir uppbygging á nýjum
verslana og þjónustukjarna sem fer
einstaklega vel af stað. Þetta verður ein
mesta uppbygging í miðbæ Hafnar
fjarðar í áratugi og þar munu rísa
glæsilegar íbúðir, þakgarður, nútíma
vætt bókasafn, þekkingarsetur sem og
allskonar verslanir og þjónusta. Mat
vöruverslunin sem miðbærinn hefur
beðið eftir lengi mun einnig fá pláss í
nýjum og stórglæsilegum Firði.
STÖNDUM SAMAN
„Okkur langar að hvetja heimamenn
í Hafnarfirði og nágranna bæjarfélög
til að kynna sér vel sitt nær umhverfi og
versla oftar í heimabyggð. Hér í
miðbænum er fjöldinn allur af glæsi
legum verslunum, bæði hér í Firði sem
og á Strandgötunni. Það er mikilvægt
að styðja við innviðina í Hafnarfirði og
í þessum verslanaheimi er ekki alltaf
auðvelt að keppa við risana, en við
leggjum því enn meira upp úr per
sónulegri þjónustu og hlýjum móttökum
hér í hjarta Hafnarfjarðar,“ segir
Guðmundur Bjarni Harðarson, fram
kvæmdastjóri Fjarðar.
Konukvöld í Firði
Verslum í heimabyggð