Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2001, Síða 1
Mikið hefur verið um að
vera í Ólafsvíkurhöfn nú í
febrúar. Allt upp í 12 að-
komubátar hafa verið að
landa hér og koma sumir
þeirra hingað ár eftir ár.
Aukning hefur orðið á lönd-
uðum afla á milli febrúar-
mánaða 2000 og 2001.
Þannig var landað 1.900
tonnum í febrúar s.l. á móti
1.771 tonni árið 2000, sem
er aukning um 129 tonn, eða
7,3%.
Fjöldi landana í fyrra voru
688 í febrúar, en í sama mán-
uði í ár var fjöldinn 754.
Í Rifshöfn er fjöldi báta
svipaður og í sama mánuði í
fyrra og var landaður afli í
febrúar í ár 1.162 tomm, en í
febrúar á s.l. ári var hann
1.058 tonn sem er aukning
um 104 tonn, eða 9,8%.
Fjöldi landana í febrúar í ár
var 302 en á sama tíma á síð-
asta ári voru landanir 250.
Í Arnarstapahöfn var land-
að 242 tonnum í febrúar í ár,
en í febrúar á s.l. ári var land-
að þar 71 tonni og er það
aukning um 171 tonn, eða
240,8%. Fjöldi landana var
103 í febrúar í ár á móti 32 í
febrúar í fyrra.
Ef borinn er saman landað-
ur afli í höfnunum þremur
hér, var hann í febrúar á s.l.
ári samtals 2.900 tonn, en í
febrúar á þessu ári 3.304
tonn, sem er aukning um
404 tonn, eða 13,9%.
Fjöldi landana var 970 í
febrúar í fyrra, en í febrúar í
ár voru þær 1.159. Það má
því segja að febrúar hafi ver-
ið nokkuð góður mánuður
hvað varðar landaðann afla í
höfnunum hér í Snæfellsbæ.
B.A.
1. tbl - 1. árg. 8. mars 2001
Aukning á lönduðum afla.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
Gunnhildar
AUGLÝSIR
Hef hafið störf að nýju
tímapantanir í síma 436 6930
Nýtt og skemmtilegt
Föndurnámskeið
Tilvalið fyrir 4-6 manns eina kvöldstund
Ýmis námskeið t.d.
Krukkumálun
Trémálun o. fl.
Pantanir og upplýsingar hjá Steinunni
í síma 436 6755 eða 436 6930.
Höfum til sölu föndurliti og pensla
frá delta og Folkart.
Góð viðbrögð
við söfnun
Eins og flestir vita þá var um síðustu helgi í gangi viða-
mikil söfnun á vegum Krabbameinsfélagsins í samvinnu við
Lions- og Kiwanishreyfinguna á Íslandi.
Í Snæfellsbæ eru starfandi einn Kiwanisklúbbur og fjórir
Lionsklúbbar og lögðu þessir klúbbar til sjálfboðaliða, alls
tæplega 40 manns, til að ganga í hús og veita framlögum
móttöku, miðstöð söfnunarinnar fyrir Snæfellsbæ var í
Kiwanishúsinu í Ólafsvík.
Vel var tekið á móti söfnunarfólki og söfnuðust tæplega
270.000 kr. en þá er ekki talið með það sem var hringt inn
héðan úr sveitarfélaginu.
Eftir að hafa þrammað allar götur fékk söfnunarfólkið kaffi
og vöfflur í Kiwanishúsinu en það var í boði Landsbanka
Íslands.
Söfnunarnefnd Snæfellsbæjar vill þakka öllum fyrir þátt-
töku í söfnuninni hvort heldur sem menn létu fé af hendi
rakna, lögðu til vinnu eða styrktu hana á annan hátt.