Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2001, Blaðsíða 2
Nú hefur prentsmiðjan
Steinprent þriðju tilraun til
reglulegrar útgáfu bæjar-
blaðs, blaðið ber heitið Bæj-
arblaðið Jökull og mun koma
út vikulega þ.e. á fimmtu-
dögum. Ætlunin er að þetta
verði frétta- og auglýsinga-
blað. Þar sem að blað í ekki
stærra sveitarfélagi en okkar
ber ekki fréttafólk í fullu
starfi mun verða treyst á að
íbúar Snæfellsbæjar láti vita
ef eitthvað fréttnæmt kemur
upp og er þá í uppáhaldi
stofnun nýrra fyrirtækja,
endubætur á eldri fyrirtækj-
um, nýir bátar, framtaksemi
einstaklinga og félagasam-
taka og bara allt það sem létt-
ir lund og gerir okkur stolt af
sveitarfélaginu.
Fréttum og fréttatilkynn-
ingum er hægt að koma sím-
leiðis í Steinprent í síma 436
1617, á fax: 436 1610, net-
fang: steinprent@simnet.is
og að sjálfsögðu með pósti að
Sandholti 22a, Ólafsvík, 355
Snæfellsbæ. Ekki er verra ef
mynd fær að fljóta með en
við getum einnig komið og
tekið mynd.
Eins og áður segir þá er
þetta þriðja tilraun til útgáfu
hjá prentsmiðjunni en fyrri
tilraunir voru “Kapallinn”,
dagskrárblað sem kom út
vikulega í lok árs 1993 en
lifði ekki til áramóta, því var
dreift frítt inn á hvert heimili
í Ólafsvík og hafði að geyma
dagskrá þeirra rása sem dreift
var í Villa video á þeim tíma
alls 7 rásir. Athygli vakti hjá
mér þegar ég flétti í gegnum
þessi blöð að 90% þeirra
auglýsinga sem voru í blað-
inu voru auglýsingar frá
prentsmiðjunni eða smáaug-
lýsingar frá eigendum og að-
standendum prentsmiðunn-
ar, svo að ekki var von á öðru
en að útgáfunni væri hætt.
Í árslok 1994 var gerð til-
raun með útgáfu á blaði fyrir
jólin sem bar heitið “Fáein
orð í Snæfellsbæ” og var
dreift frítt á hvert heimili í
Snæfellsbæ, hlé var gert á
þeirri útgáfu til nóvember-
byrjunar 1995 en eftir það
kom blaðið út hálfsmánaðar-
lega þar til síðasta tölublaðið
leit dagsins ljós í febrúar
1997. Talsvert var orðið um
fréttir í blaðinu undir lokin
en þeim mun minna af aug-
lýsingum og þar sem prent-
smiðjan var með starfsmann
á launum við að ritstýra blað-
inu var blaðið rekið með tapi
og útgáfunni því hætt.
Þetta nýja blað á að vera
auglýsinga- og fréttablað eins
og áður segir en ekki verður
lögð áhersla á sögur og
greinar þó að þeim verði
e.t.v. gefið pláss í gúrkutíð,
en þess háttar efni á frekar
heima í afmælisblöðum ým-
iskonar og Sjómannadags-
blaðinu okkar allra sem von-
andi kemur út áfram um
ókomna tíð. Ég vil benda
klúbbum og félagasamtökum
á að hægt er að kynna það
sem vel er gert hjá þeim í
blaðinu þó að ég frábiðji mér
uppgjör margra ára. á blað-
síðu 2 er ætlunin að verði
einn dálkur sem er hugsaður
fyrir klúbba og félög til að
auglýsa fundi, fyrst um sinn
verður ekki tekið gjald fyrir
þessa þjónustu og efni ein-
skorðast við merki fé-
lags/klúbbs, fundarstað og
fundartíma.
Ábendingar um efni og
það sem betur má fara eru
vel þegnar þó að ekki sé gef-
ið að farið verði eftir þeim
öllum strax. Oft er það svo
að það sem ekki þykir frétt-
næmt hjá landsblöðunum
þykir okkur heimafólkinu
e.t.v. fréttnæmt.
Með bættum tækjakosti
Steinprents er nú hægt að
prenta blaðið í meiri gæðum
og á styttri tíma en fyrri blöð
prentsmiðjunnar, samt sem
áður er ætlunin að setja tíma-
mörk á skilatíma efnis og
auglýsinga við þriðjudag fyr-
ir útgáfu kl. 19,00 og þegar
um stærri útgáfur er að ræða
eins og fyrir jól og þess hátt-
ar verður skilatími auglýstur
sérstaklega.
Að lokum er rétt að geta
þess að ég ætla mér ekki að
eigna mér eitthvert pláss í
blaðinu undir ritsjórapistla
heldur mun ég frekar pota
einhverju niður á blað þegar
og ef eitthvað liggur mér á
hjarta.
Með von um að íbúar Snæ-
fellsbæjar taki vel í þessa við-
leitni til blaðaútgáfu.
Ritstóri og áb. maður
Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf.
og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ.
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 700
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Frá ritstjóra
FUNDIR
KLÚBBA OG
FÉLAGA
Lionsklúbbur
Ólafsvíkur
Safnaðarheimili
Ólafsvíkur
sunnudagskvöld
11. mars kl. 20,30
Lionsklúbburinn
Rán
Safnaðarheimili
Ólafsvíkur
þriðjudagskvöld
13. mars kl. 20,00
Í síðustu viku hófu hjónin
Sigurjón Fannar Jakobsson
og Unnur Guðmundsdóttir
rekstur efnalaugar sem þau
kalla Snæþvott. Efnalaugin
er staðsett að Fagurhólstúni
2 í Grundarfirði.
Langt er síðan síðast var
rekin efnalaug á Snæfells-
nesi en það mun hafa verið
Sjöfn Sölvadóttir og Ólafur
Tryggvason sem ráku fata-
hreinsun að Túnbrekku 7 í
Ólafsvík frá árinu 1979 og
allt fram til október 1984 en
þá keyptu Pétur F. Karlsson
og Kristín Guðmundsdóttir
(Fíi og Didda) hreinsunina
og fluttu að Kirkjutúni 2 þar
sem nú er Skipaþjónusta
Esso, þar var fatahreinsun
rekin samhliða fataverslun
til 1986.
Snæþvottur mun standa
undir nafni því ætlunin er
að þjónusta allt Snæfellsnes.
Í Ólafsvík verður tekið á
móti fatnaði í hreinsun hjá
Hárgreiðslustofu Unnar
Óladóttur og á Hellissandi
er það Hraðbúð Esso sem
tekur á móti.
Efnalaug í Grundarfirði