Bæjarblaðið Jökull - 05.12.2019, Blaðsíða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og
dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og
Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 1.100
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Bæjarblaðið Jökull kom fyrst út
þann 8. mars 2001 en síðan hafa
komið út rúmlega 900 tölublöð,
blaðinu var fyrst aðeins dreift í
Snæfellsbæ en í október 2010
hófst einnig dreifing blaðsins í
Grundarfirði. Sú breyting hefur
nú orðið hjá Jökli að framvegis
verður blaðinu dreift á öllu
Snæfellsnesi. Þar með bætast íbúar
Stykkishólms, Helgafellssveitar
auk Eyja og Miklaholtshrepps í
hóp þeirra sem fá blaðið heim að
dyrum í hverri viku.
Um leið verður blaðið stækkað
frá því sem verið hefur og gert enn
veglegra. Upplagið á prentuðum
eintökum verður jafnframt
stækkað og við munum kappkosta
að flytja fréttir af öllu því helsta
sem gerist á Snæfellsnesi.
Þá hefur Jökull ráðið til sín
starfsmann í hlutastarf en sá heitir
Þorsteinn Haukur Harðarson og
hefur hann töluverða reynslu
úr heimi fjölmiðla. Þorsteinn
hefur undanfarin ár starfað sem
framkvæmdastjóri meistaraflokks
Víkings Ó. og UMF Víkings/Reynis
og mun hann áfram starfa fyrir
meistara flokk Víkings Ó. samhliða
starf inu á Jökli.
Við hvetjum lesendur til að
halda áfram að senda okkur
ábend ingar um fréttnæmt efni á
steinprent@simnet.is. Þá bendum
við aug lýsendum í Stykkishólmi
jafn framt á að hægt er að fá aðstoð
við upp setningu auglýsinga hjá
Anok í Stykkishólmi.
Jökull færir út kvíarnar
Það er óhætt að segja að veðrið
hafi ekki leikið við bæjarbúa
á Snæ fells nesi um helgina en
víða voru við burðir skipulagðir
á sunnu degi num sem var fyrsti
sunnu dagur í aðventu.
Í Grundarfirði, Hellissandi,
Ólafsvík og Stykkishólmi átti
að tendra ljós á jólatrjám en
alls staðar þurfti að fresta við
burðunum vegna veðurs.
Ákveðið var að ljósin yrðu
tendruð í Stykkishólmi 4. des
ember og degi síðar í Grundar
firði. Ljósin verða svo tendruð á
Hellissandi og í Ólafsvík sunnu
daginn 8. desember.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
meðlimi í Lionsklúbbi Grundar
fjarðar setja jólatréð upp í miðbæ
bæjarins.
Veðrið setti strik
í reikninginn
Aðventuhátíð
Ingjaldshólskirkju
Sunnudaginn
8. des.
kl. 17
Sunnudaginn 8. desember
kl. 17
Fjölbreytt dagskrá:
- Kveikt á aðventuljósakransinum
- Jólasaga
- Einsöngur
- Kórsöngur
Súkkulaði og smákökur að lokinni dagskrá.
Eigum notalega stund saman í kirkjunni.
Kór Ingjaldshólskirkju