Sólargeislinn - 01.01.1942, Blaðsíða 4
4
Sðlargeislinn
*•
Jesús geri eitthvað, einmitt fyrir hana. Þegar ég
sé alvarlega andlitið hennar, meðan við biðjum, er
alveg eins og hún ætti von á að sjá Jesúm sjálfan
koma henni til hjálpar.
Pabbi hennar og mamma eru ekki frelsuð enn.
En þegar Maja var veik, vildi mamma, að við bæð-
um til Jesú fyrir henni — og hvað skeði? Maja varð
frísk.
Ef til vill verður það Gréta litla, sem vinnur
pabba og mömmu fyrir Jesúm. Guð blessi hana.
Sólargeislinn.
1. 1 vetrarmyrkri og kulda, þá verm-
ir engin sól, Er villugjarnt mörgum, þótt
komin séu jól. Þá brýzt fram lítill geisli
frá Guðs náðarstól, Sem gleður litlu börn-
in og veitir yl og skjól.
2. Hann smýgur inn urn gluggann, og
gjarnan skín þar á, Er grátinn einhver
situr,, hann þerrar tár af brá. Og sá er
þreyttur villist um veraldargeim, Sér veg-
inn í þeim geisla, og kemur aftur heim.
3. Því geislinn hann er sendur frá Guðs
náðarsól, Með græðandi strauma um ver-
aldar ból. 1 geisla þeim sést Frelsarans
gegnumstungna hönd, Sem gjarnan vill þig
leiða, og slíta heimsins bönd.
4. 1 sunnudagaskólanum sér þú geisl-
arm þann. f söng- og bæn og- orðum til þín
kemur hann. Ö, fylg þú geislans leiðsögn,
og farnast mun þér vel. Þá fær ei synd
þér grandað, né ógnað sorg og hel.
Kristín Sæmunds.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.