Bæjarblaðið Jökull - 05.10.2023, Blaðsíða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
í lok apríl sendi stjórn umf. Vík-
ings/Reynis frá sér bréf til þeirra
aðildarfélaga sem hafa tekið þátt
í Snæfellsnes samstarfinu í fót-
bolta. Í bréfinu tilkynnti stjórnin
áform um að slíta samstarfinu eft-
ir sumarið vegna erfiðleika með
skipulag og framkvæmd æfinga og
leikja. Ungmennafélögin á Snæ-
fellsnesi hittust í vor á sameig-
inlegum fundi í kjölfar bréfsins
í þeim tilgangi að skoða hvort
það væru forsendur fyrir áfram-
haldandi samstarfi. Nefnd var skip-
uð á fundinum með fulltrúum frá
öllum félögum og voru það þau
Tinna Ýr fyrir umf. Víking/Reyni,
Ragnar Smári fyrir UMFG og Agn-
es Helga fyrir Snæfell. Þau hittu-
st reglulega í sumar og fóru yfir
hvað mætti betur fara í samstarf-
inu. Niðurstaðan frá nefndinni
var sú að knattspyrna á Snæfells-
nesi sé sterkari sem ein heild og
geta þau haldið úti betra starfi
með fjöldann á bakvið sig sem og
fjárhagslega. Til þess að ramma
starfið betur inn leggur nefndin
til að samæfingar verði tíðari, að
dómarakostnaði og heimaleikj-
um verði skipt jafnt niður, að efla
samstarf milli þjálfara á nesinu og
að tengiliður verði skipaður fyr-
ir hvern flokk. Svo mikil sátt var
með þessa niðurstöðu að sam-
starfsnefnd Ungmennafélagana
á Snæfellsnesi undirritaði sam-
starfssamning um áframhaldandi
samstarf í knattspyrnu. Ritað var
undir samninginn þann 29. sept-
ember síðastliðinn og gildir hann
til þriggja ára. Tinna Ýr Gunnars-
dóttir er nýr formaður stjórnar
Samstarfsins, Agnes Helga Sig-
urðardóttir gjaldkeri og Ragnar
Smári Guðmundsson ritari.
JJ
Áfram samstarf um fótbolta
Knattspyrnuvertíðin er lok-
ið hér heima, þetta sumarið.
Þá förum við á fulla ferð í get-
raunastarfinu því enski boltinn
rúllar fram á vor og um hann
snúast getraunirnar. Margt
skemmtilegt kemur uppá í kring-
um enska boltann og breyturn-
ar margar og því er spennandi
að giska á úrslitin. Við verðum
í allan vetur í Átthagastofunni á
milli klukkan 11.00 og 12.00 á
laugardögum. Rjúkandi kaffi á
könnunni og stundum eitthvað
snarl með. Hver röð kostar að-
eins 13.00 krónur og hægt er að
margfalda þá upphæð til baka ef
maður hittir á rétt úrslit. Þetta
er eitthvað sem bæði konur og
karlar geta gert jafn vel, svo allir
eru velkomnir. Fyrst og fremst er
þetta stuðningur við Víking því
Víkingur fær fjórðungs hlut af
seldum röðum.
Áfram Víkingur.
Getraunir 1x2
Sædís Rún Heiðarsdóttir spil-
aði sínar fyrstu mínútur með
A-landsliði kvenna þriðjudaginn
26. september síðastliðinn þegar
hún kom inn á í seinni hálf-
leik gegn Þýskalandi í Þjóðar-
deildinni. Sædís var valin í hóp
landsliðsins fyrir tvo leiki Íslands
í Þjóðardeildinni. Fyrri leikur
liðsins var við Whales þann 22.
september og biðu aðdáendur
Sædísar átekta eftir að sjá hana
koma inn á en svo varð ekki. Í
leik liðsins við Þýskaland kom
hún inn á á 69. mínútu og spil-
aði þar 26 mínútur fyrir Íslands
hönd. Leikurinn endaði með 4-0
sigri Þýskalands en Þjóðardeildin
heldur áfram í lok október þar
sem mun vonandi sjást meira af
Sædísi. Sædís hefur lagt virkilega
hart að sér til að komast á þenn-
an stað og segist hún vera stolt að
hafa náð því þar sem það hefur
alltaf verið markmiðið að komast í
A-landsliðið. Eflaust er þetta ekki
síðasti leikur hennar fyrir hönd Ís-
lands og verður skemmtilegt að
fylgjast með þessum efnilega leik-
manni í framtíðinni.
SJ
Sædís spilaði sínar
fyrstu mínútur með
A landsliði
Við bjóðum upp á
alhliða bílaviðgerðir,
dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111