Árnesingur - 01.06.1945, Síða 2

Árnesingur - 01.06.1945, Síða 2
2 ÁRNESINGUR með fulltrúavali byggt upp stéttarsam- band eftir eigin vild og athugun. Á þennan hátt gat hver bóndi, sem vildi sinna málinu, haft sín persónulegu áhrif á þann grundvöll, sem byggt yrði á. En Adam var ekki lengi í Paradís. Stjórn Búnaðarfélags íslands brá við, kall- aði saman búnaðarþing, sem síðar ræddi við Alþýðusambandið um verðlag á land- búnaðarvörum og festi í lögum sínum, að stofna deild innan Bf. í., er nefndist „Stéttarsamband bænda“. Munur á aðferð er því allmikill. Bún- aðarsamband Suðurlands snýr sér til ein- staklinganna, en Bf. ísl. fyrirskipar með lögum, að bændurnir skuli stofna stéttar- samband og að það skuíi vera deild í Bf. í. Frjálst og óháð skyldi það ekki vera! Á- róður var þegar hafinn undir forustu Bf. í., meðal annars með því, að Búnaðarsam- band Suðurlands hefði ráðizt inn í Bf. í., með því að snúa sér til bændanna í bún- aðarfélögum hreppanna! Samkvæmt þessu eru búnaðarfélögin ekki frjáls að samþykktum sínum, nema þau hafi leyfi frá Bf. í. í hvert sinn. Málefni Búnaðar- sambands Suðurlands fékk svo góðar und- irtektir meðal bænda um allt land, að hrein einsdæmi munu vera. Næstum hvert búnaðarfélag í landinu, um 230, kusu kjör- menn og hver sýsla sendi tvo fulltrúa á fundinn að Laugarvatni eða alls 48 full- trúa. Ég skýri í mjög stuttu máli hér á eftir frá þeim þætti fundarins, aðeins, sem snertir skipulag Stéttarsambandsins og örfáum öðrum staðreyndum. Öll fundar- gerðin yrði allt of langt mál. III. Fundurinn 7. sept. hófst með því, að Guðmundur Þorbjarnarson setti fundinn og lýsti yfir, sem fundarboðandi, að fyrst yrðu rökræður um grundvöll þann, er bændasamtökin skyldu byggð á, Auk fulltrúanna tóku þátt í þeim fundi form. Búnaðarfél. íslands og búnaðarmálastjóri og beittu þeir sér þar og á fulltrúaþing- inu eins og fulltrúar væru, en atkvæðisrétt höfðu þeir ekki. Jónas Jónsson alþm. og nokkrir bænd- ur úr nágrenninu voru staddir á Laugar- vatni og tóku þátt í þessum undirbúnings- umræðum. Sveinn Einarsson, bóndi á Reyn, hóf umræður og lagði fram till., þar sem stefnan var mótuð. Þessi fundur stóð yfir um 4 stundir. Nokkur hiti var í umræðum, en eigi að síður fór fundurinn hið bezta fram. Þá var settur fulltrúafundurinn og stungið upp á fundarstjóra: Bjarna Bjarnasyni og Pétri Ottesen. Kosning fór þannig, að P. O. hlaut 28 atkv., en B. B. 19, einn seðill auður. Mátti því ætla, að sjónarmið Bf. í. væri sterkara á fundin- um en sjónarmið sunnlenzku bændanna. Ritarar voru kosnir Stefán Diðriksson og Gestur Andrésson. Aðalnefnd fundarins var að sjálfsögðu skipulagsnefnd, skipuð 9 mönnum. Hún varð ekki sammála um annað en það, að bændur skæru úr með almennri atkvæða- greiðslu hvort valin skyldi „lína“ sunn- lenzku bændanna eða Bf. í. Komu því fram frá skipulagsnefnd tvær till., byggð- ar á þessum sjónarmiðum. í meirihlut- anum voru sex nefndarmenn með Jón í Deildartungu úr stjórn Bf. í. sem foringja. Við vorum aðeins þrír í minnihlutanum. Umræður um skoðanamun nefndarinn- ar urðu enn mjög langar. Fulltrúar komu fram hver af öðrum með þá höfuðkröfu til fundarins, að finna leið, sem allir gætu orðið sammála um. Seint á laugardags- kvöld kom fram, frá minnihluta fundarins, eftirfarandi miðiunartillaga: „Fulltrúaþing bænda haldið að Laugar- vatni 7.—9. sept. 1945 samþykkir að stofna Stéttarsamband bænda, kjósa bráðabirgða- stjórn og semja bráðabirgðareglur fyrir

x

Árnesingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árnesingur
https://timarit.is/publication/1915

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.