Árnesingur - 01.06.1945, Page 5

Árnesingur - 01.06.1945, Page 5
ÁRNESINGUR 5 Hugleiðingar um bændasamtök kostur, þá að baöa þær í smurningsolíu (olían má vera notuð) nokkrum sinnum vetur og sumar. 5) Að fylgja fyrirmælum í leiðarvísum um alla smurningu. Ýmsir halda, að straks og þeir hafa lært að keyra og smyrja dráttarvélarnar, að þá séu þeir útlærðir á dráttarvél. Þetta má læra á stuttum tíma, en hitt verður ekki lært á nokkrum dögum að vinna hin marg- víslegu jarðyrkjustörf með vélunum. Það sem gera þarf um leið og dráttarvélar fara að verða eign fjölda bænda, er að koma upp námskeiðum, helzt í hverri sveit, þar sem yrðu kennd undirstöðuatriði í jarðvinnslu með vélum svo og einnig not- kun þeirra við önnur heimilisstörf. Vélar af þessari gerð eru hentugar til margs- konar jarðvinnslu og heyskaparstarfa, sé rétt á haldið. Járnhjól er nauðsynlegt að fá til þess að þær geti komið að góðum notum við jarðvinnslu á hvaða tíma sem er. Eyðsla vélanna er tiltölulega lítil. Verð þeirra er ekki meira en svo, að fáum bændum mun stofnkostnaðurinn verða ofviða, og margir geta áreiðanlega keypt ýms hentug tæki með þeim, ef innflutn- ingsleyfi fæst. Tækni við íslenzkan landbúnað þarf að auka stórlega. Bændum er þetta ljóst og þeir munu áreiðanlega vinna mark- visst að því á næstu árum. Þess má vænta, að aukin tækni verði landbúnaðinum ný lyftistöng, er færi bændur landsins nær því marki að standast samkeppni við stétt- arbræður sína í öðrum löndum. Að endingu nokkur orð til þeirra, sem eiga heyvinnuvélar eða önnur dýr tæki ennþá úti. Látið vélarnar inn þegar í stað, ef þess er nokkur kostur. Sé ekki hús fyrir vélarnar, þá (þurrkið af þeim ryðið) mak- ið á þær smurningsolíu. Takið stöngina af sláttuvélinni og kjálkana af rakstrarvél- inni og geymið einhversstaðar inni. Tjarg- ið heyvagninn eða málið hann, ef hann þarf að vera úti. Breiðið segl yfir vélarn- ar, ef það er til, eftir að þær hafa verið I. Sðastliðið haust átti hið fræga sam- vinnufélag vefaranna í Rochdale á Eng- landi 100 ára afmæli og var þess minnzt víða um heim. Nýlega hafa fundizt skjöl, sem skýra frá því, að 4. nóv. 1844, eða rúmum mán- uði áður en Rochdalefélagið var stofnað, héldu 14 helztu bændur í Hálshreppi í S,- Þingeyj arsýslu fund með sér til þess að ræða um og stofna verzlunarfélag í sveit- inni. Nokkru síðar gengu bændur í Ljósa- vatnshreppi í þessi samtök. Allir forystu- menn þessara sveita bundust félagssam- tökum. Frumherji og forvígismaður var séra Þorsteinn Pálsson á Hálsi. Síðari kona hans var ekkja séra Gunnars í Laufási, móðir Tryggva Gunnarssonar. Sá merki brautryðjandi, Tr. G., ólst upp hjá stjúpa sínum og giftist síðar dóttur hans af fyrra hjónabandi, mikilhæfri konu. Þannig runnu ýmsar stoðir undir það, sem síðar kom í ljós, að Tr. G. var einn merkasti íslendingur sinnar samtíðar og þótt víðar sé skyggnzt, meðal annars sem einn af brautryðj endum frjálsrar innlendrar verzl- unar. 1. gr. laga þessa elzta kaupfélags í heimi er þannig: makaðar í smurningsolíu. Ef vélarnar eru bilaðar, þá komið þeim sem fyrst til við- gerðar. Munið, að miklum peningum er fleygt beint og óbeint, ef vélarnar eru illa hirtar. Slæm hirðing á vélum að vetrinum getur slitið véiinni meira en öll sumar- notkunin. Árni Jónsson, héraðsráðunautur.

x

Árnesingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árnesingur
https://timarit.is/publication/1915

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.