Árnesingur - 01.06.1945, Page 7

Árnesingur - 01.06.1945, Page 7
ÁRNESINGUR 7 upp húsum fyrir reykandi fólk og fluttir inn peningar í stórum stíl, en á húsum og peningum, einum saman, lifir enginn. Bændur hafa aftur á móti ræktað mikið og bætt búpening sinn. Þessi mikli munur á vinnubrögðum, er einskis metinn, meðan verið er að eta út sjóðina. Er því mjög hætt við, að bændur ýmist gefist upp í stórum stíl, eða hætti. Þannig getur svo farið, að allt endi í skorti á íslenzkum landbúnaðar- vörum. Ef þessu heldur áfram, sem nú er við að stríða, 14—16 stunda vinna í sólarhring til að framleiða matvöru fyrir bæjafólkið,, sem síðan ekki fæst greidd nema með eft- irtölum og fúlum ónotum, hætta bændur þessu, minnka búin og framleiða aðeins fyrir sjálfa sig. En þar sem þetta er ekki sú rétta leið, ef stefna á til þjóðarheilla, er sannarlega ástæða til fyrir bændur að hugsa um það í alvöru, hvort ekki þurfi ný og sterk samtaka- og félagssjónarmið til að stöðva hættulegt viðhorf í sveitun- um og beina straumnum í nýjar áttir. Ég er þeirrar trúar, að bændurnir geti leitt þjóðina á framfarabraut í víðtækum skiln- ingi, en til þess þarf margskonar ráð. Ég held að holl ráð komi í ljós, ef bændur gefa sér tíma til að ræða saman á fé- lagsfundum sínum, leggja á hilluna pólit- íska togstreitu sín á milli, en í staðinn komi einlægni til sameiginlegra átaka, en sýnið jafnframt þeim foringjum fyllstu varúð, sem aldrei vilja leyfa bændum að hugsa sjálfstætt, en nota þá eins og verk- færi í þjónustu sjónarmiða, sem ákveðin eru langt frá bændunum sjálfum og án þess að spyrja þá um vilja þeirra og sjón- armið. Einmitt vegna þess hve félagsmála- starfsemi annarra stétta er orðin sterk, við hina góðu aðstöðu bæjalífsins, mega dreifðir bændur vara sig stórlega á að- stöðu sinni og hættunni á því, að þeir verði aftur úr vegna dreifbýlis. Bjargi bændur sér ekki sjálfir, bjarga þeim ekki aðrir. Nú magnast óðum öfl í landinu, sem telja FRETTIR Egill Thorarensen, kanpfélagsstjóri, flaug til Svíþjóðar 15. sept. s. 1. í verzlun- arerindum. Hann er fyrir nokkru kominn heim aftur sjóleiðis. Hverju svarar Alþingi? Biöðin skýra frá því, að Bandaríkja- stjórn óski einhverskonar aðstöðu fram- vegis í Hvalfirði, Skerjafirði og flugvelli Suðurnesja. Nokkur ágreiningur er þeg- ar hafinn um það, hverju skuli svara þess- ari málaleitun. Gunnar Bjarnason, ráðunautur, ritar í Vísi 16. okt.: „Hvernig kjötverðið gæti verið lægra -— og bændur fengið tryggt hærra verð, neytendur fengið betri kaup og útgjöld ríkissjóðs lækkuð---“. Grundvöllurinn fyrir þessum mögu- ldika mun vera sá, að launastéttirnar taki á sig 5—6 stiga vísitöluhækkun án launahækkunar. G. B. mun ferðast um Suðurland í haust og halda fyrirlestra í búnaðarfélögunum um fóðrunina í vetur, mun hann þá skýra sjónarmið sitt um kjötverðið. Kron er að dreifast. í Hafnarfirði og Keflavík hafa verið stofnuð ný kaupfélög vegna ó- samlyndis innan Kron. Sennilegt er, að hið sama gerist í Reykjavík. Á Alþingi fara fram þessa dagan umræður um af- urðasölumál bænda og fjárlögin. Bændur ættu að fylgjast sem bezt með afstöðu þingmanna í þessum málum. bændur hreina ómaga og óþarfa lýð. Einn- ig aukast sjónarmið, sem vilja nota ykkur bændur sjálfum sér til valdaframdráttar, en hafa að öðru leyti yfirtekið ykkur og sveitirnar með öllu, en sitja við há laun og kjötkatlana í höfuðborginni. Bjarni Bjarnason.

x

Árnesingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árnesingur
https://timarit.is/publication/1915

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.