Árnesingur - 01.06.1945, Side 8
8
ÁRNESINGUR
ÚTGEFANDI: K.F. ÁRNESINGA
ÚTGÁFUNEFND:
Páll Hallgrímsson sýslum.
Bjarni Bjarnason skólastjóri
Grímur E. Thorarensen fulltrúi
Prentsmiðjan Edda h.f.
------------------------—-----------
HITT DG ÞETTA
í ársbyrjun 1944 voru 50 samvinnufélög
í Sambandi ísl. samvinnufélaga. Það ár
bættust tvö við, en ekkert hætti störfum.
í árslok voru félögin því 52.
Félagar í sambandsfélögunum voru í
árslok 23.007 og fjölgaði á árinu um 1550
eða 7.3%. Sé gengið út frá, að ekki séu
aðrir í félagi frá hverju heimili en hús-
bóndinn og að 3y2 maður sé i hverju heim-
ili til jafnaðar, eru rúmlega 80.500 manns,
sem njóta samvinnufélaganna beinlínis.
Allir hinir njóta þeirra einnig í hagkvæm-
ara vöruverði, en þeir gefa kaupmönn-
unum verzlunarhagnaðinn.
* * *
Tíminn segir, að Framsókn hafi verið í
miklum meirihluta á Laugarvatnsfundin-
um 7. sept. s. 1. Samt fékk B. B. ekki nema
19 atkv. við fundarstjórakjör, en P. Otte-
sen 28. Sézt á þessu, að bændur geta hald-
ið ópólitíska fundi um málefni sín.
* * *
Blaðið Bóndinn hélt því fram, að bænd-
um væri það hrein nauðsyn að halda ó-
pólitíska fundi um hagsmuni sveitanna.
Þeim P. Ott. og Jörundi var ráðlagt, sem
virðulegum elztu bændaleiðtogum í Al-
þingi, að gera samtök um þetta sjónarmið
og starfa að sameiningu bændanna. Tím-
inn og Morgunblaðið töldu það fjarstæðu,
að allir bændur sameinuðust. Ennfremur
taldi Tíminn það hina verstu svívirðingu
fyrir Jörund að ætla honum að eiga sam-
eiginlegt áhugamál með Pétri Ottesen.
Hvernig samrýmist þetta trausti því,
sem P. O. naut á Laugarvatnsfundinum
einmitt af þeim, sem Timinn segir að hafi
átt þar pólitískan meirihluta? Ég skýri
þetta þannig, að viðhorfið sé farið að fær-
ast nær því, sem Bóndinn hélt fram á sín-
um tíma, að allir bændur ættu að taka
saman höndum og á þann hátt bjarga
sveitunum og þar með landinu. B. B.
* * *
Kjötverðið. Bændur fá í mesta lagi kr.
6.00 fyrir dilkakjötskg. Útsöluverðið er kr.
10.85. Er þessi mismunur sök bændanna?
Nei, þetta er rétt mynd af dýrtíðinni í
Reykjavík, en bændunum er ámælt fyrir
ódugnað og okur.
T 'l' •l'
Óvildarorð falla mjög oft til bænda bæði
í blöðum og ræðuhöldum. Bændur gera lít-
ið að því að bera hönd fyrir höfuð sér og
vita minnst af því, sem gerist i herbúð-
um bæjastéttanna. Hvenær ætli bænd-
ur skilji nauðsyn þess, að skipulögð sam-
tök til varnar og sóknar rétti sínum og
hagsmunum, er þeim hrein lífsnauðsyn,
jafnvel fremur en nokkurri annarri stétt.
Bændur, hefjið sameiginlegt átak og
gerið ykkur þannig einhuga stétt og
sterka aðila í stjórn landsins. Slíkt er
nauðsynlegt til jafnvægis i þjóðfélaginu
og vegna framfaramála sveitanna, bæði
til viðhalds og þróunar þess, sem þegar
hefir áunnizt og til að móta og fram-
kvæma nýtt.
Enn er eitt tækifæri, en líka máske það
eina og síðasta — næstu kosningar. B. B.
* * ■[<
Árnesingur mun koma út næst fyrir jól-
in. Verður blaðið þá sent aðeins félags-
mönnum K. Á. nema sérstakar óskir komi
frá öðrum mönnum.
í næsta blaði munu koma stuttar greinar
eftir marga menn.