Þveræingur - 27.01.1945, Side 1
Fr| álsir menn í Irjálsu
Lög eða ólög.
landi?
Um það er tíðum rætt, þegar
löggjöf er sett, hvort til bóta sé
fyrir þegna þjóðfélagsins eður
ei, og þá hvort af lögunum leiði
hagræ8i og frelsi eða óþægindi
og ófrelsi. Þegnar hverrar þjóð-
ar sem er, eiga enga óskoraðri
kröfu til löggjafarvaldsins en
þá, að lög þau er það setur, séu
þeim til hagsbóta, efli mannrétt-
indin og stuðli að því að frjáls-
ræði heiðarlegra manna fái að
njóta sín, en kúgun og rang-
sleitni verði fyrir borð' borin.
Því aðeins fá lög bezt notið
sín, að þau séu þannig úr garði
gerð og þannig sett, að þegnarn-
ir, sem við þau eiga að búa, geti
fallist á réttlæti þeirra, og yfir-
leitt fellt sig við, framkvæmdir
þeirra. En lög, sem brjóta í bág
við þessa sjálfsögðu kröfu þegn-
anna, telja þeir bein ólög, og
hafa fullt vald til.
Varla munu nokkur lög, sem
sett hafa verið á seinni árum
eins illræmd og illa þokkuð og
hin svonefndu húsaleigulög, og
þeir, sem harðast hafa orðið
fyrir barðinu á þeim, munu
sjaldan eða aldrei hafa átt við
aðra eins örðugleika að stríða
og gildir það jafnt um húseig-
endur og ieigjendur. .
Á nokkur atriði þessa máls
skal bent í fáum orðum.
Húsaleigunefnd hefir verið
skipuð, til þess, að framkvæma
lög þessi og jafna misklíð manna
milli. Hennar verk er, að gefa
úrskurði þegar aðiljar leita til
hennau. En „erfitt er tveimur
herrum að þjóna“ í senn, og fer
þá vénjulega svo að annar hvor
aðili fer halloka, ekki beinlínis
vegna dómgreindarleysis nefnd-
armanna, heldur vegna þess, að
málin snúast oftast um það, að
leigusali vill losa íbúð í húsi
sínu, en þá kemur til þeirra
kásta hvor á að hafa réttinn,
leigusalinn eða leigjandinn. Og
lendír þá oftar en hitt þannig,
að leigusali verður að lúta í
lægra haldi og tapa þeim rétti,
sem hann að réttu lagi á, en lög-
in bera fyrir borð.
Þannig eru málalok húsa-
leigunefndar oftast á þann veg,
að þar næst verður fólkið að
leita til lögfræðinganna og biðja
þá ásjár. Þeir eru fúsir til þess
að taka málið að sér. Þannig
byrja málaferlin og standa oft-
ast mánuðum og árum saman,
með frestum og flækjum húsa-
leigulaganna. Og alltaf vex ill-
lyndið á milli leigusala og leigj-
anda.
Lögfræðingarnir hafa nóg að
gera og meira en það, (eins og
húsaíeigulögin væri að ein-
hverju leyti vatn á þeirra
myllu). En það er viðkvæðið
hjá húsaíeigunefnd, þegar hún
hefir gefið sinn úrskurð og
fólkið kvartar yfir hennar gerð-
um, að þá vísar hún til æðri
dómstóla. En til allra slíkra að-
gerða þarf vitanlega lögfræð-
inga. Og vitanlega er vanda-
laust fyrir húsaleigunefnd að
vísa frá sér málunum með
ábyrgðaríaiismn úrskurði!
Húsaleigulögin eru þannig úr
garði gerð, að ekki er hægt að
byggja á ákvæðum þeirra, enda
eru lögfræðingarnir all-lengi að
afgreiða málin. Einn segir þetta
og hinn hitt. Þannig dragast öll
málin á langinn. Hver málsað-
ili verður að borga stórfé í
kostnað til þeirra, og hafa svo
ekkert annað en útlátin og hug-
arangur að leikslokum. Og þetta
er verk valdhafanna í þessu
landi, sem staðið hafa að þess-
ari dæmafáu lágasmíð.
Sem dæmi má nefna það, að
einn húseigandi hefir sýnt mér
fram á, að fjögurra ára húsa-
ÞVERÆÍNGUR
Sízt hœfir langur for-
máli litlu blaði.
En það skal sagt um
Þveræing, að hvort sem
honum verður langra eða
skammra lífdaga auðið,
mun hann ávalt halda
þeim málstað fram, er
hann telur réttastan í
hverju máli.
t þetta sinn tekur hann
eingöngu til meðferða
húsaleigulögin, og mun
eklzi skiljast við það mál
fyrr en á því hafa fengist
þœr umbœtur, er sjálf-
sagðar eru og krefjast
verður. ■
Otg.
leiga af allstórri íbúð, hvarf al-
geriega í málskostnað og opin-
ber gjöld, er hann hafði fengið
íbúðina loksins lausa, og gat
þess um leið, að ekki undir
neinum kringumstæðum myndi
hann leigja íbúðina aftur, með-
an lög þau, sem hér urn ræðir,
standa. Svona mætti telja ótal
dæmi. En margir hafa kostað
ærnu fé til þess að koma leigu-
liðum út úr íbúðum í húsum sín-
um, en fá engu um þokað þótt
gildar brottrekstrarsakir liggi
fyrir hendi, aðrar en leiguvan-
skil, og eiga sumir þessara
manna húseignir, sem þeir leigja
svo öðrum fyrir okur verð.
Eru þetta lög eða ólög?