Landvörn - 20.01.1951, Qupperneq 3

Landvörn - 20.01.1951, Qupperneq 3
LANDVÖRN 3 ímtíuöru Blað óháðra borgara. Ritstjórar: Helgi Lárusson og Jónas Jónsson. ÁbyrgOarmaöur: Jónas Jónsson. Afgreiösla: Laugaveg 7. Sími 509S. lsafoldarprentsmiðja h.f. Mótmæli gegn viðskipta- fjötrunum FRÁ því að Landvörn hóf göngu sína hefur blaðið beitt sér sérstaklega fyrir tveim stórmál- um. Annars vegar að þjóðin tryggði sér hervernd Engilsaxa móti fyrirsjáanlegri innrás Rússa, ef til ófriðar kemur og í öðru lagi, að haftakúguninni og hinni ábyrgðarlausu stjórn nefndanna yrði aflétt og komið á í landinu fullkomnu vezlunar- og viðskipta- frelsi. Hefur mikið áunnist í báð- um málunum. Þjóðin hefur vakn- að til meðvitunar um innrásar- hættuna og lagt reiði sína og fylg- istap við þingmenn og ráðherra, ef ekki væri beðið um vernd. Benda nú líkur til, að hingað komi von bráðar varnarlið frá bandalagsþjóðunum. Er þá eftir hlutur fslendinga að taka með manndómi þátt í þeim vörnum eftir mannfjölda og efnum. Fram- boð rúmlega 30 íslenzkra flug- manna um þátttöku í fiugvörn- unum er fyrsti vottur og mjög ánægjulegur um þá andlegu við- reisn, sem orðið hefur síðan komm- únistar, háskólakennarar og stú- dentar drógu sæmd lands og þjóð- ar dýpst niður með portsamkom- um sínum. Með verzlunarfrelsið hefur róð- urinn verið þungur. Að vísu hafa hinar frjálsu bandalagsþjóðir ís- lendinga, sem veitt hafa þjóðinni margháttaðan stuðning á undan- gengnum árum, lagt mikla stund á að sannfæra forráðamenn þjóð- arinnar um nauðsyn þess að af- létta höftunum, en lítinn ávöxt hafa þær aðvaranir borið. Stjórn- málaflokkarnir voru búnir að gera sér háreista haftaborg og meinuðu öllum almenningi að ræða haftakúgunina á sama hátt og þeir hindruðu borgarana frá að gera sér grein fyrir innrásar- og eyðileggingarhættunni, ef landið væri óvarið. Hinn 10. des. s.l. hélt ég ræðu í Gamla Bíó og gagnrýndi haftastefnuna. Einn af stærstu samkomusölum bæjarins var þá fullur af áhugasömum tilheyrend- um, þó að veður væri vont og seldur aðgangur. Þessi mikli áhugi borgara í bænum sannfærði forráðamenn flokkanna um að nú væri í hafta- málinu setið, meðan sætt var. Næsta skipti þegar Morgunblaðið kom út, fordæmdi það hafta- stefnuna og framkvæmd hennar með hörðum orðum og skýrum rökum. 16. desember tilkynnti ríkisstjórnin að hún mundi setja nokkrar nauðsynjavörur á frílista og gaf vonir um meira frelsi. Tilraunir voru gerðar til að friða allan almenning út af gömlum og nýjum yfirtroðslum. Áður en ég flutti bíóræðu mína voru hafin samtök með allmörgum mönnum, sem standa að verzlunarmálum, um að hefja tangarsókn á höftin samtímis frá samvinnu- og sam- keppnismönnum og skyldi reynt að fá úr því skorið, hvaða hug fólkið bæri til haftanna bæði í sveitum og kaupstöðum. Skyldi leita til Árnesinga og Reykvík- inga um að ganga undir frelsis- prófið. Var safnað um a'lla Árnes- sýslu undirskriftum, þar sem kraf- izt var fullkomins viðskiptafrels- is eins og hér hefði seinast ríkt 1924—1931. Er vitað, að nú hafa á annað þúsund karla og kvenna í Ámessýslu skrifað undir mót- mælin og eru skjölin rétt ókom- in til þings og stjórnar. Fundur- inn í Listamannaskálanum 14. janúar s.l. var framlag Reykja- víkur í málinu. Var í fundarlok samþykkt tillaga Árnesinga með breyttu orðalagi, vegna þess að hér talaði borg en ekki byggð. Þing og stjóm geta sannfærst um af þessum aðgerðum í Árnessýslu og Reykjavík, hvílíka óbeit og jafnvel hatur þjóðin hefur á höft- unum og framkvæmd þeirra. Þrír menn, sem reka verzlun og við- skipti í höfuðstaðnum, fluttu ræð- ur í Listamannaskálanum móti höftunum. Það voru stórkaup- mennirnir Einar Guðmundsson, Sturlaugur Jónsson og Helgi Lár- usson forstjóri. Auk þess talaði ég almennt um sögu haftanna. Pétur Sigurðsson erindreki stýrði fundinum. Var svo mikill samhug- ur í fundarmönnum, að þeir fögnuðu ræðumönnum með lófa- taki, bæði er þeir hófu mál sitt og við ræðulok. Kemur slíkt ná- lega aldrei fyrir á fundum á ís- landi, nema þegar fundargestum er mikið niðri fyrir í sambandi við umræðuefnið. Fyrir fundarlok benti ég á, að vel mætti búast við, að sóknin í þessu máli leiddi ekki til lokasigurs fyrr en eftir nokkur ár. Á meðan yrðu áhuga- menn að halda saman unz yfir lyki. Þar sem mörgum af valda- mönnum landsins er mjög illa við þessa frelsisbaráttu, þar á meðal sumum forráðamönnum haftanna, líta ýmsir menn svo á að þeim kunni að verða hált á viðskipta- svellinu, ef þeirra gætir mikið opinberlega í andófi gegn fjötr- um. Fyrir þá menn er opin leið að snúa sér bréflega til Land- varnar og heita stuðningi, sem getur verið með ýmsu móti: T. d. kyrrlátri starfsemi við að fræða samvistarmenn um höftin, eðli þeirra og afleiðingar framhald- Frú Elísabefi Þorsfteinsson ÞAÐ eru liðin nærri 20 ár síð- an tveir ungir efnismenn, Heigi Þorsteinsson og Runólfur Sigurðs- son, komu á vegi Sambandsins, annar úr austri, en hinn úr suðri, til að búa sig undir að vinna sam- vinnuhugsjóninni það gagn, sem þeir mættu. Forráðamönnum Sam- bandsins leizt vel á báða þessa ungu menn, og settu þá að hag- nýtum námsstörfum í skrifstofu samvinnufélaganna í Þýzkalandi og Englandi. Eftir nokkur ár voru báðir þessir ungu menn fullfleyg- ir viðskiptaforkólfar, kunnugir í tveim helztu verzlunar- og iðnað- arlöndum álfunnar, með fullu valdi yfir þeim tveim stórþjóða- tungum, sem mestu skipti fyrir þá við dagleg störf. Runólfur gerðist mikill sölumaður á vegum samvinnufélaganna, en féll í val- inn, mitt í áhrifamiklu starfi, á skylduferð milli íslands og Eng- lands á stríðsárunum. Helgi Þor- steinsson lagði stund á innkaupa- fræði og gerðist fyrst aðstoðar- maður og síðan eftirmaður Aðal- steins Kristinssonar framkvæmda- stjóra Sambandsins. Á námsárun- um ytra giftist Helgi Þorsteins- son ágætri slcozkri stúlku, Elísa- bet Gtegor. Hún fylgdi viturlega heilræði ritningarinnar, yfirgaf ættland, frændur og vini og fylgdi eiginmanni sínum í fjarlæg lönd, þar sem lífsstarfið beið þeirra beggja. Snemma á stríðsárunum varð Helgi Þorsteinsson að flytja til Bandaríkjanna með konu og lítinn son, yfir haf, sem geymdi bæði kafbáta og tundurdufl. Meg- inverzlun íslendinga var þá um margra ára skeið vestan hafs, en ekki í Evrópu. Helgi Þorsteinsson og fulltrúi kaupmanna unnu sam- andi kúgunar. Þeir, sem ekki vilja láta nafns getið út á við, fá að- stöðu til að vinna að áhuga- máli sínu og þjóðarinnar, án þess að hægt verði að koma fram við þá refsiaðgerðum sökum skoðana þeirra. Við sókn þvílíks stórmáls eru mörg verkefni og breytileg. Kringum blaðið Landvörn hafa myndast samtök áhugamanna um haftamálið. Starfa sumir þeirra saman í Reykjavík og næstu byggðum, en aðrir út um land hver í sínum heimkynnum. Tang- arsókn samvinnumanna í Árnes- sýslu og samkeppnismanna í Reylcjavík fer vel úr hlaði. Ef borgarar í öðrum sveitum og öðru þéttbýli leggja fram krafta sína með jafn miklum áhuga og festu, mun ekki líða á löngu áður en íslendingar geta hætt að sigla til Sviþjóðar, Danmerkur og Skot- lands til að kaupa sér og sínum fatnað og skó, af því að heima í landinu var ekki völ á þessum vörum til kaups fyrir allan al- menning. Menn, sem hafa hags- muni af að viðhalda haftakúgun- inni, eru þungir á metaskálinni, en nú er verið að skipuleggja frjálshuga menn og konur í land- inu til að stíga í tómu vogarskál- ina og láta stjórnina og þingið sjá hvort höftin eða frelsið er raunverulega þyngra á metunum. J. J. an í New York alla þá stund og keyptu mest allan þann varning, sem fluttur var frá útlöndum í hvert heimili í landinu. Það var umsvifamikið og erfitt starf og reyndi mikið á þá, sem höfðu þá forstöðu á hendi. En heimili þeirra Helga og Betty, eins og vanda- menn og vinir nefndu hana, var þar að auki eins konar miðstöð fjölmargra af hinum athafnasömu íslendingum, sem dvöldu þá um lengri eða skemmri tíma í þeirri heimsborg, þar sem hraðinn mæðir mest á mannssálinni. Undir þeim kringumstæðum reyndi ekki lítið á húsmóðurina. Gerður dóttir mín kynntist heimili þeirra hjóna á þessum árum. Henni farast þannig orð um þá kynningu: „Frú Betty var fædd og uppalinn í Skotlandi. Ef til vill hefur hún átt hægra með að festa yndi hjá íslending- um, því að svo margt er líkt með þessum þjóðum. Betty var fríð- leikskona, vel greind, djörf, hrein og bein í lund, umhyggjusöm eig- inkona og móðir og vinur vina sinna reyndist jafnan bezt, þegar mest reyndi á. Heimili þeirra hjóna var hugðnæmt og ánægju- legt, með merkjum um þá prýði, sem sprettur úr íslenzkum og enskum þjóðháttum. En þó að Betty væri góður íslendingur, gleymdi hún aldrei uppruna sín- um. Engir, nema þeir sem reyna, skilja til fulls, hvílík fórn það er að yfirgefa til fulls ættland og vini. Eitt sinn sagði hún við mig: „Oft hefi ég óskað að geta haft föður minn við borð okkar hjóna, þó að það væri ekki nema einn einasta dag“. Því miður þoldi fað- ir hennar ekki langferðir, en móð- ir hennar og systir komu til Is- lands og skyldu vel, að Betty hafði heillast af landinu og að hún undi vel hag sínum. Hún var mikil húsmóðir, umhyggjusöm, hug- kvæm, kát, léttlynd og glettin. Engir, sem kynntust Betty, gleyma hennar mörgu og yndislegu eigin- leikum. Minningin um þessa góðu eiginkonu og móður verður mesta hjálpin fyrir mann hennar og drengina tvo í þeirra sáru sorg, sem borið hefur óvænt þeim að höndum". Vinir og samstarfsmenn Helga Þorsteinssonar rétta honum og sonum hans hlýja en vanmáttuga vinarhönd með hugheilum samúð- aróskum yfir línuna miklu, sem skilur líf og dauða. Jónas Jónsson. -----•------ málið ÍSLENZKU þjóðinni er það æ ljósara með hverjum deginum sem líður, að mjög áríðandi er, að ný stjórnarskrá verði sett hið allra fyrsta, stjórnarskrá, sem verði byggð á sönnum þjóðræðis-grund- velli. Austfirðingarnir og Þing- eyingarnir, sem riðu á vaðið með þetta nauðsynjamál fyrir nokkrum árum, eiga miklar þakkir skilið. Síðan hefur málið þokast áfram með öryggi og festu, sem hefur skpast af markvissri og ágætri samvinnu fjölda mætra manna, víðsvegar af landinu. Fjórðungs- sambönd hafa verið stofnuð um allt landið. Tveir Þingvallafundir, Arnesingar heimta verzlunarfrelsi „VIÐ undirritaðir Árnesingar krefjumst þess af Alþingi og ríkisstjórn, að aflétt verði nú þegar á landi hér öllum verzl- unarhöftum og að hér ríki verzl- uarfrelsi eins og það, sem þjóð- in fékk síðast að njóta á árun- um frá 1924—1931“. Nú þegar hafa 930 Árnes- ingar undirritað þessa áskorun, en ókomin eru skjöl úr nokkr- um hreppum. Einkennileg til- viljun að tala hinna fyrstu undirskriftarmanna minnir á það ártal í íslandssögu, þegar fornmenn létu ríki rísa hér á landi upp úr óskapnaði og stjórnleysi. með fulltrúum frá flestum héruð- um landsins, hafa verið haldnir um málið. Fundir þeir hafa mjög eflt framgang málsins. Stjórnar- skrárfélög hafa nú þegar verið allvíða stofnuð í landinu og auk þess eru þau nú víða í uppsigl- ingu. Nauðsynlegt er, að öflugt stjórnarskrárféiag verði stofnað í hverri sýslu og hverju bæjar- félagi landsins. Slík félög verða grundvallarstoðir fyrir fjórðung- ana eða fylkin, sem mynda síðan kerfi, með samstiltum kröftum allra áhugasamra kvenna og karla þessa lands, sem vilja taka hönd- um saman, að linna ekki látum, fyrr en ísland hefur öðlazt fjör- eggið sitt: Nýja stjórnarskrá. Stjórnarskrárfélag stofnað í V es tmannaeyjum. Sunnudaginn 14. janúar síðast- iiðinn, var stofnað stjórnarskrár- félag í Vestmannaeyjum. Jón Eiríksson skattstjóri undirbjó fé- lagsstofnunina og boðaði til stofn- fundarins. Á fundinum var mætt mikið mannval. Jón Eiríksson reifaði stjórnarskrármálið rækilega og út- skýrði þau störf og samþykktir, sem þegar hafa verið gerðar ann- ars staðar á landinu, stjórnar- skrármálinu til framdráttar. Síð- an fóru fram almennar umræð- ur um málið og ríkti eining og áhugi meðal fundarmanna. Síðan var gengið til félagsstofnunar. Yfir 40 manns gengu í félagið, með því jafnframt að undirrita yfirlýsingu um þá helztu grund- vallarpunkta, sem tilvonandi stjórnarskrá þarf að byggjast á. Síðan voru samþykkt lög fyrir fé- lagið og eru þau svipuð lögum annarra stjórnarskrárfélaga í landinu. í stjórn félagsins voru þessir menn kosnir: Jón Eiríksson skattstjóri, var lcosinn formaður, en með- stjórnendur þeir: Páll Eyjólfsson, forstjóri. Magnús Bergsson, bæjarfulltrúi. Halldór Guðjónsson, skóiastjóri. Einar H. Eiríksson, kennari. Jóhann Friðfinnsson, skrifst.m. Gunnar E. S. Hlíðar, dýralæknir. Landvörn óskar þessu nýstofn- aða félagi allra heilla og blessun- ar og býður það velkomið til starfa í mikilvægasta nauðsynja- máli okkar fslendinga.

x

Landvörn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landvörn
https://timarit.is/publication/1927

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.