Landvörn - 15.05.1951, Page 1
9. tbl.
IIImð éháðng fo&rtgaráa
IV. árg. 15. maí 1951.
SöguSegyr moídagur 1951 — Ti!!agan um Monroe-vernd »
VornartiSboS Trumons » Gullið en glotoð ougnoblik 1946.
Vakondi þfóð. Sofandi liðsSoddar — Sigur fimmtu herdeildor-
innor og bandamanna hennar í porfinu — Tvœr mikilsverðar
sfiklur: Keflavíkur- og Atlanfshafssáftmálarnir» Skrílvikan frá
1931 endurtekin fveim sinnum - Landvörn og þfóðin — Þrír
fyrsrlestrar um landvarnir — Rússnesk ógnun 1950. Bœnda-
félag Þingeyinga. Ofarir Eysfeins Jónssonar. Lokasigur stefn-
unnar frá 1923 - Islenzkur her ©g bióðvörður - Fjárhagslegt
frelsi Islendina.
p'IMMTl MAl 1951 er merkisdagur í sögu hins endur-
reista þjóðveldis. Þann dag sömdu lýðræðisþingmenn
íslendinga við Bandaríkin um hervörn til að afstýra hugsan-
legri innrás austan fyrir járntjaldið. Það hafði tekið heila
öld fyrir Islendinga að búa sig undir að endurheimta fullt
frelsi þjóðinni til hana. En það hefur ekki tekið nema rúm-
lega sjö ár að vékja þjóðina til skilnings á því, að hún
eigi enga framtíð, ef hún ætlar að bíða vopnlaus og varn-
arlaus á mesta hættustað eftir því að voldug yfirgangs-
þjóð, sem stefnir að alheimskúgun, taki landið og geri það
að rauðum Gibraltar til sóknar móti frelsi og vestrænni
menningu.
★
J FYRSTU heftum Ófeigs, fáum vikum eftir lýðveldis-
myndunina á Þingvöllum, voru leidd rök að því, að
þriggja alda óumsamin en örugg og vinsamleg vernd brezka
flotans gæti ekki lengur tryggt frelsi íslands eftir að stór-
veldin hafa öfluga loftflota til hernaðar. Hafi legið við
borð 1940 að nazistar gætu gert innrás í Bretland þrátt
fyrir flotaveldið, ef enska þjóðin hefði ekki verið búin að
eignazt sterkan flugflota. I Ófeigi var lagt til, sem fyrsta
úrræði, að leita eftir við Bandaríkin að láta Monroe-vernd
ná til Islands, þar sem landið væri raunverulega á vestur-
hveli jarðar. Þingflokkarnir og stjórnmálablöðin sinntu ekki
þessari bendingu. Hlutleysiskenningin sat enn í hásæti.
★
/ýRI SÍÐAR, haustið 1945, bauð Truman íslandi sátt-
mála um hervernd móti innrás. Kommúnistar áttu sæti
í stjórninni og studdust við eindregin fyrirmæli frá yfir-
mönnum sínum erlendis, um að halda landinu opnu og
óvörðu þar til Rússar gætu búið hér um öflugt setulið til
að hindra samgöngur um Atlantshafið norðanvert. Þá stóðu
með kommúnistum meginhluti þeirra 270 manna, sem reynt
höfðu á stríðsárunum með undirskriftum að tefja og hindra
skilnað íslands og Danmerkur. Voru þar að verki fjöl-
margir opinberir starfsmenn, sem numið höfðu í Danmörku
á unga aldri eða áttu þar venslamenn. Mynduðu þessir
menn og aðrir þeim skyldir félag til að spilla fyrir land-
vörnum. Meirihluti kennara og nemenda í háskólanum
fylgdu kommúnistum að málum í þessu efni og hvar sem
spurðist til íslenzkra stúdenta við nám í Evrópu, utan Is-
lands, bárust einhliða áskoranir um að halda landinu varn-
arlausu. Kommúnistar mótuðu yfirleitt allt viðhorf borg-
aranna á opinberum vettvangi. Blöð stjórnmálaflokkanna
tóku í sama streng. Ótti við hugsanlegt kjósendatjón á
kjördegi dró úr leiðtogum stjórnmálaflokkanna. Fáir
þeirra virtist skilja, nema að litlu leyti, að þjóðarsjálf-
stæði, án varnar gegn ofbeldi, er ekki til nema sem hug-
arburður.
★
jyjÉR VAR ljóst að tímabil pappírssjálfstæðis var löngu
liðið og beitti mér veturinn 1945-—1946 í ræðu og riti
fyrir að tilboði Trumans væri tekið með breyttum skilyrð-
um. Ég lagði til, að stjórn Bandaríkjanna væri boðið sam-
komulag um vernd og viðskipti. Tveir sáttmálar til 25 ára.
Annar um að hér væri herafli frá Bandaríkjunum til land-
varnar móti innrás. Um aðstöðu þessa landvarnarliðs skyldi
samið með nægilegri forsjá. Hinn samningurinn skyldi vera
um að íslendingar hefðu raunverulega innfæddra manna
rétt í Bandaríkjunum um allt sem snerti sölu á íslenzkri
framleiðslu og innkaup til landsins. Stjórn Bandaríkjanna
hefði orðið að endurgreiða tolla af íslenzkum vörum og
hindra allar óeðlilegar hömlur á þessum viðskiptum. Hér
var um að ræða mjög litla eða öllu heldur enga fórn af
hálfu Bandaríkjanna og allólíkt hinu mikla gjafakerfi yfir-
standandi tíma. Hér var um að ræða framsýnar aðgerðir
báðum þjóðunum til öryggis. ísland fékk nauðsynlega hjálp
til að hindra ræningja frá að hertaka landið og þrælka
þjóðina. Auk þess fékk ísland jafnrétti í viðskipta- og
markaðsmálum við mestu iðnaðar- og viðskiptaþjóð verald-
arinnar. Á þessum tíma var Bandaríkjaþjóðin í mikilli
hættu vegna varnarleysis Islands. Hvergi var jafn auðsær
Akkillesarhæll á varnarkerfi Vestmanna eins og í Norður-
Atlantshafi. Bandaríkin þurftu að geta treyst öruggum
vörnum á íslandi og kosta þær sjálfir, ef ekki voru aðrir
til. Það var þess vegna fullkomlega heiðarlegt að þiggja
öruggar varnir frá hálfu vinsamlegrar þjóðar, sem þurfti
að tryggja sína framtíð, jafnframt því sem hún varð Is-
lendingum að liði. En eins og Truman gat leitað til Is-
lendinga um sitt vandamál var full frambærilegt að leita
til Bandaríkjamanna um lausn á lífsnauðsyn smáþjóðar,
greiðasemi, sem var að kalla mátti útlátalaus fyrir stór-
veldið, sem bar kostnaðinn við hervarnir landsins. Hér var
fyrir íslenzku þjóðina um að ræða örstutt augnablik meðan
dyr viðskiptafrelsis og fjárhagslegs sjálfstæðis íslendinga
stóðu opnar, ef tækifærið var gripið. Þetta tækifæri kemur
aldrei aftur. Nú eru Noregur og Danmörk vel vopnuð lönd
móti austrænni innrás. Bandaríkin leggja vitaskuld mikla
áherzlu á varnir Islands vegna Atlantshafsþjóðanna í heild,
en þeir breyta ekki viðskiptaformum sínum eins og málum
er nú komið fremur fyrir okkur heldur en hinar banda-
lagsþjóðirnar.
jyTÉR TÓKST að sanna vorið 1946, að kjarni þjóðarinnar
í byggð og bæ var fylgjandi tillögu minni um tvo
sáttmála við Bandaríkin. Borgarar Reykjavíkur yfirfylltu
stærsta samkomuhús í bænum þrátt fyrir háan aðgangs-
eyri og æsta mótstöðu kommúnista og allra þeirra fylgis-
manna, þegar ég útskýrði þetta mál. Nálega allir fundar-
gestir voru gamlir eða nýir pólitískir andstæðingar mínir,
en sjaldan eða aldrei hef ég flutt áhugamál fyrir mann-
söfnuði, sem sýndi jafn einlæglega, að hann óskaði málinu
fullkomins sigurs, eins og í þetta sinn. Fáum vikum síðar
vann ég mikinn kosningasigur í Þingeyjarsýslu, þrátt fyrir
Frtmih. á 2. hls.
Verkföll
og söluskattar
Nú er útlit á, að stórkostleg’
verkföll skelli á innan skamms.
Verkföll eru æfinlega vand-
ræðamál. Venjulega skaða þau
alla aðilá, en þó mest þjóðar-
búskapinn í heild. Það er því
nauðsynlegt, að slíkar deilur
verði æfinlega leystar á annan
og skynsamari hátt.
Dýrtíðin í landinu er nú orð-
in gífurleg. Kaupmáttur ís-
lenzku krónunnar er þegar svo
þrotinn, að sæmilegt kaup að
krónutali áður, er nú orðið lágt
og lélegt. Hér kemur til fjár-
mála-óstjórn í landinu síðast-
iiðin 10—20 ár, ofan á fiski-
ieysi og óhagstæða veðuráttu,
til lands og sjávar. Hinar stór-
kostlegu gengislækkanir, sem
framkvæmdar hafa verið hér
undanfarið, auka mjög öng-
þveitið. Það er algjör fjar-
stæða, að gera slíkar gengis-
breytingar, nema setja jafn-
framt gildi viðeigandi mótráð-
stafanir, svo sem: 1) lækkun
á tollum og sköttum, 2) stór-
kostlegan niðurskurð á útgjöld-
um ríkissjóðs, 3) frjálst at-
hafnalíf einstaklinga og félags-
heilda, án nokkurra afskifta of-
stjórnarkappanna og hinna
sjúku, afturhaldssömu ríkis- og
bæjarrekstrar-dýrkenda. — Hér
þarf frjálst og fjörugt at-
vinnulíf, með einstaklingsfivim-
takið í fararbroddi, svo að at-
vinnu- og viðskiptalíf landsins
stöðvist ekki. Þessar aðgerðir
og auðvitað margar aðrar svip-
aðar hér ekki taldar, áttu að
koma til framkvæmda til þess
að dýrtíðin og verðbólgan ykist
ekki í landinu, þrátt fyrir geng-
breytinguna. Þetta var ekki
gert, heldur haldið í öfuga átt.
—• Hinir fjall-háu tollar eru
látnir halda gildi, prósentvís, á
hinar litlu mörgu krónur, og
meira að segja auknir. Mörgum
sölusköttum er siðan hrúgað þar
ofan á, með svartamarkaðs-
gengisráðstafanir sem kórónu.
Nú ætti að afnema söluskatt-
ana alla og taka mesta kúfinn
af okurtollunum, svo allt vöru-
verð lækki verulega. — Þá
fengi fólkið kauphækkun í
auknu verðgildi krónunnar, en
ekki með því að fá fleiri og lé-
legri krónur til lífsframfæris.
Þetta þyrfti að gerast áður en
til verkfallanna kemur, svo að
ringulreiðin og ráðleysið ráði
hjer ekki ríkjum.
Helgi Lárusson.