Landvörn - 01.05.1952, Side 4

Landvörn - 01.05.1952, Side 4
4 LANDVÖEN Kveðja frá Suður-Þingeyingum MÖRG hundruð vinir og gamlir samstarfsmenn í Suður- Þingeyjasýslu hafa nýlega sent mér í bókarformi kveðju þá, sem hér fer á eftir: „Fyrir meira en UO árum fluttir þú héSan úr átthög- um þínum og geröist vökumaöur og brautryöjancli um fjölmörg þýöingarmikil þjóömál. Viö Þingeyingar höf- um rika ástæöu til aö þakka vinnu þína aö þjóömálum og þá ekki síöur samstarfið um málefni héraðsins fyrr og síðar. Á þeim langa tíma, sem þú hefur starfað með okk- ur, hefur fólkið í sýslunni, undir leiðsögn þinni, sótt lengra fram til umbóta og velmegunar, heldur en á nokkru öðru tímabili í sögu héraðsins. Ræktun byggð- anna, endurbygging steinbæjanna, útvar^ og sveitar- símar, brýr yfir stórar ár, lendingarbætur, samgöngur á sjó og landi, sundlaugar og skólar, útrýming sauð- fjársjúkdóma o. fl. o. fl. Allt eru þetta verk, sem seint munu gleymast. Síðast, en eklci sízt, viljum við þakka þér forystu þína á styrjaldartímanum í frelsis og land- varnarmálum. Þegar leiðtogi Dana kannaði foringjalið íslendinga varst þú einn um að heimta frelsi þjóðinni til handa. Þegar fyrirbyggja mátti innrás og tryggja þjóðinni um leið frjálsa verzlun og f járhagslegt sjálf- stæði íslendinga varst þú lika einn á þingi þjóðarinnar um hin réttu úrræði. En að líkindum hefur aldrei reynt meira á þrek þitt og þor, heldur en þegar mikill fjöldi gamalla samherja lét villa sér sýn og breytti um stefnu, i því skyni að hafa opna leið til bandalags um stjórn lands og þjóðar við byltingarflokk, sem stendur undir erlendri yfirstjórn. Fyrir rúmum aldarfjórðungi, og alla stund síðan, hafðir þú varað þjóðina alla og mest þína eigin sam- herja við þeirri hættu. Nú fylkja sér allir frelsisunn- andi íslendingar um þá stefnu landvarna og þjóðvarna, sem þú hefur markað. Við teljum þá ósk bezta fram borna í þinn garð, að þér auðnist enn um langa stund að vinna með ráðholl- um mönnum að sem flestum umbótamálum til bjarg- ráða okkar landi og þjóð“. Kveðja til Þingeyinga Ég fékk þessa kveðju frá ykkur nú í vorharðindunum, sem reyna svo mjög á þrek og þor allra, sem standa eins og þið í framleiðslubaráttunni, þar sem hún er einna hörð- ust hér á landi. Mér er kveðjan enn kærari af því, að ég sé af henni, að þið eruð staðráðnir í að sækja djarflega fram, þó að við mikla erfiðleika sé að etja og að þið hafið bjargfasta trú að gæfa ykkar og barna ykkar sé tengd við ættarbyggðina, þar sem þið og bandamenn ykkar hafa, eftir föngum, reynt að gera lífshættina auðveldari og öruggari. 1 hinni miklu kveðjubók ykkar standa fremst þrjú nöfn: Jón Marteinsson á Bjarnastöðum, Páll Jónsson á Stóruvöll- um og Friðfinnur Sigurðsson í Rauðuskriðu. Þessir menn voru stórbændur um aldamót. Einn þeirra var frægur glímukappi fyrir 60 árum. Allir voru þeir nafnkenndir menn í félagsmálum byggðar sinnar fyrir aldamótin. Þá kemur mikill fjöldi karla og kvenna, sem verið hafa leik- bræður mínir og starffélagar um langa stund. Síðast koma þeirra börn. Víða eru þrjár kynslóðir úr þessum hópi á sama heimili. Ég hef verið samferðamaður þessa fólks í hálfa öld. I mínum augum er það allt ein kynslóð, aldamóta- fólkið. Mér finnst sú kynslóð hafa mikla ástæðu til að þakka forsjóninni fyrir að hafa mátt lifa og starfa á þeim tíma, þegar landið var numið og byggt í annað sinn. Það var heppileg verkskipting að sumir af þeirri kynslóð, en ekki of margir, voru búsettir utan héraðsins. Búið þarf margs með og dreifbýlið verður að eiga í þéttbýlinu nokkra af sínum mönnum til að sinna þar verkum, sem einhver þarf að gera fyrir átthagana. I meira en 40 ár hafið þið stutt mig á ótal vegu til starfs, bæði um málefni sýslunn- ar og landsins alls. Án þess stuðnings hefði ég verið rótar- slitinn vísir í fjarlægri byggð. Verkefni aldamótafólksins voru óvenjuleg í eðli sínu. Þeim varð oft að sinna með áhlaupum, sem stóðu í áratugi. Eftir slík átök hlaut að koma hvíld og hún var bæði réttmæt og nauðsynleg. Menn njóta nú þessarar hvíldar með ánægju, en finna samt að hún má ekki vara of lengi. Ég gæti trúað, að áður langt um líður hefjist í landinu ný aldamótasókn, og að mörg af ykkur, sem hafið sent mér hlýja kveðju, munið taka þátt í baráttu og sigrum í þeirri sókn. Þremenningarnir, sem eru nú á níræðisaldri og mörg af okkur, sem fetuðum í þeirra fótspor, höfum byggt bjálkahús og rutt markir. En þeir, sem taka við af okkur, fá miklu stærri og fjölþættara Þjóðin gengur undir landspróf Framh. af 3. bls. sem hefur einkennt starf Ásgeirs Ásgeirssonar í stjórn, í þinginu og vinnubrögðum flokkanna, varð þess valdandi að hann gerði vor- ið 1934 þá ákvörðun, ,sem mundi í Englandi hafa leitt til þess, að slíkur ráðherra hefði aldrei síðar verið kosinn í sóknarnefnd, hvað þá heldur til meiri trúnað- ar. Ásgeir sté í embættisnafni það spor, sem getur haft stórkost- lega veikjandi áhrif á stjórnmála- og siðgæðisvenjur í landinu. —- Hann samþykkti að undirmenn hans semdu um stórfellda mútu til að ná árangri í fjármálum, sem talið var að fengizt ekki á annan hátt í það sinn. Fégjöfin frá Islands hálfu hafði öll ein- kenni mútunnar. Það voru stór- miklir peningar og þeir voru þegnir og greiddir til að breyta niðurstöðu málsins, sem um var deilt. Vitaskuld sögðu allir, sem unnu að þessu verki, að mútan hefði gert gagn öllum málsaðil- um. En þessi skýring fullnægir ekki vestrænu réttarfari og sið- gæðiskennd þroskaðra manna. — Löggjöf allra siðaðra landa legg- ur þunga hegningu við slíkri framkvæmd og þar eru engar afsakanir teknar til greina. Lög og almenningsálit sameinast um að fordæma að bera fé í dóm- inn. í hugum íslendinga, sem hafa lesið Njálu, féll Eyjólfur Bölverksson réttilega á gullhring þeim hinum digra, sem hann hafði eignazt sem mútufé. Eyjólf- ur faldi hringinn. Allar mútur eru faldar. Sektartilfinningin er í þessu tilfelli ótvírætt dómsorð. íslenzka þjóðin er nú á hættu- legum vegamótum, einmitt að því er snertir fjármálasiðgæði. Rán og gripdeildir eru svo að segja daglegir viðburðir í höfuðstaðn- um. Sjóðþurrðir, mest af almanna fé, eru svo stórfelldar, að á nokkrum missirum hafa glatazt á þann veg verðmæti, sem skipta milljónum króna. Ef Ásgeir Ás- geirsson verður með almennri kosningu borgaranna valinn for: seti lýðveldisins, þrátt fyrir það, að nokkur hundruð manna vissu um leyndarmál hans, þegar hann bauð sig fram til forsetastarfs og öll þjóðin þekkir það fyrir kjördag, þá hlýtur að verða nokk- uð erfitt fyrir lögreglu og dóm- ara í landinu að sannfæra menn, sem vilja breyta niður- stöðu mála með fégjöfum um að þeir geri rangt. Þeir, sem breyta á þann hátt ákvörðunum vitna, dómara, kennara, presta, lögregl- unnar, tollmanna og hvers konar annarra trúnaðarmanna, hljóta að reka sig á þau svör, að þeir hafi að vísu mútað, en það hafi þeir eingöngu gert í góðum til- gangi, ýmist til að bæta sinn eiginn fjárhag, kjör fjölskyld- unnar eða jafnvel í þágu sveit- arfélagsins eða landsins. Vafa- laust mundu hinir sakfelldu benda á að þjóðfélagið hafi skipt um skoðun síðan á tímum Eyjólfs Bölverkssonar. — Forráðamenn þjóðfélagsins geti nú gefið jafn- vel milljónir króna til að breyta niðurstöðu mála, án þess að sak- næmt sé talið. Þvert á móti geti því líkar framkvæmdir orðið lyfti- stöng til meiri vegs og valda á íslandi. Allir fordæma mútur. Enginn mælir þeim bót opinberlega. Löggjöf landsins og dómur al- mennings í landinu eru samhljóða um að fordæma að hafa áhrif á ákvarðanir í þjóðmálum með gjöf- um eða mútum. Ekki er heldur hægt að sjá nokkur merki þess, að þessi vinnubrögð auki ham- ingju manna eða bæti hag borg- aranna. Þegar Ásgeir Ásgeirsson hafði samþykkt það, sem honum bar að neita vorið 1934, var hann vissulega mjög óhamingjusamur, eins og fyrr er vikið að. Vegna þessa skjótræðis breyttist stjórn- málaviðhorfið í landinu. Að lík- indum hefði Bændaflokkurinn lif- að, ef hann hefði öðlazt það ör- ugga kjördæmi, sem floliksmynd- unin byggðist á. Þá hefði Ás- geir ekki gengið í Alþýðuflokk- inn og þau samtök haldið til langframa miklu meira af sínu upprunalega eðli. Menn geta ver- ið þess fullvissir, að ef féburður fær að njóta vegs og virðingar í landinu, er þjóðin komin á svo lágt siðferðisstig, að hún hlýtur að glata frelsi og sjálfstæði. — Þjóðveldið var stofnsett á af- mælisdag Jóns Sigurðssonar fyrir átta árum. Menn völdu þann dag til að helga hið nýja ríki með Ijóma af manndómi og siðferðis- kjarki frelsishetjunnar, sem fædd- ist þann dag. Það getur verið heilsusamlegt að spyrja sjálfan sig á örlagastundu, hvað Jón Sigurðsson mundi hafa gert þeg- ar samskonar vanda bar að hönd- um? Það er fullvígt, að hann mundi hafa fordæmt mútustarf- semi algerlega og undir öllum kringumstæðum. Hann mundi ekki hafa tekið til greina neinar af- sakanir, hvorki þörf ríkis, bæjar- félaga eða einstaklinga. Fordæmi Jóns forseta verður að vera leið- arljós allra, sem vilja vera for- setar á Bessastöðum. Landspróf um tvo forseta. Sumir menn munu mæla á þá leið, að þingið, sem tók við leynd- armáli Ásgeirs sumarið 1934, hafi brugðizt skyldu sinni með því að krefjast ekki sektar verkefni, en byggja þó á okkar grunni. Ég vil engu spá um þá framtíð, nema því, að ég hygg að eftir nótt efnishyggju og þröngrar stéttabaráttu muni koma ný aldamótabylgja, þar sem andleg og siðferðileg verðmæti verði meir í heiðri höfð, heldur en nú í hvíldar- og öldudal yfirstandandi tíma. Ég vona, að þegar þið fáið frá mér þessar línur, með þökk fyrir kveðjuna og langt og fjölþætt samstarf, þá hafi vetur og norðangjóstur vikið fyrir blæ úr suðrinu heita, þegar hinir björtu dagar og Ijósu vornætur endurborga margfaldlega skammdégismyrkur vetrarmánaðanna. JÓNAS JÓNSSON frá Hriflu. þá þegar. — Af ástæðum, sem fyrr er getið, var þjóðin öll, að því er snerti mannorð sitt, í yfirvofandi hættu, þar til fé- gjöldin voru imít af h^ndi, enda var þá haldið inn á nýjar leiðir um stjórn landsins. Þingið tók harmþrungið og með viðbjóði við sáttmálanum, bjargaði því, sem bjargað varð og dæmdi Ásgeir skilorðsbundið til vegtyllustöðvun- ar ævilangt. Honum hefur þá hlotið að vera ljóst, að hann var samkvæmt réttum rnannlífslögum varanlega úr leik. Friður einka- lifsins opnaði hlið sín fyi'ir hon- um, en jökultindar hefðarinnar hlutu að vera honum lokaður heimur. Nú er Ásgeir þó eftir langa bið aftur á beru svæði, þar sem vindar blása öllum áttum. Hann er þingmaður í hinu fræga kjördæmi Jóns Sigurðssonar. Þjóð- in gerði Jón Sigurðsson að forseta í andlegu ríki. Hann göfg'aði for- setaheitið svo að það er vandmeð- farið. Jón Sigurðsson hélt uppi með eigin efnum í öðru landi mestu og virðulegustu risnu, sem sögur fara af á íslenzku heimili. Þar var ekki viðhafður heimil- isbragur tamdra gistihúsþjóna, heldur íslenzk gestrisni og þjóð- leg siðfágun. I mannsaldur varði Jón Sigurðsson orku sinni til að mennta, sameina og göfga þjóð- ina. Undir forystu hans féll aldrei blettur á skjöld íslands. Fyrir hans aðgerðir endurheimti þjóðin það frelsi, sem hún hafði glatað fyrr á öldum sökum augnabliks- kyggju og metnaðar afvegaleiddra leiðtoga, sem ekki kunnu fótum sínum forráð. Innan skamms gengur öll ís- lenzka þjóðin undir landspróf við forsetakjörið. Þann dag verða átök í hugum allra hugsandi manna í landinu. Þeir eiga að velja miili tveggja hugsjóna, sem báðar eru tengdar við þingfull- trúa Isfirðinga: Jón Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson. Annar þessara manna hefur grundvallað ailt það, sem er bezt í nútíma- lífi þjóðarinnar. Hann byggði framtíðarríki íslendinga með því að gera strangar siðgæðis- og drengskaparkröfur til sín og annarra. Hann sameinaði alla þjóðrækna Islendinga um hugsjón sína og baráttu. Lífsstefna Ás- geirs Ásgeirssonar er með allt öðrum hætti, og svo eru vinnu- brögð hans, risnuhæíileikar, störf á þingi og að þjóðmálum, þrá hans eftir hégóma fremur en veruleika, sjálfselska hans og augnablikshneigð, að ógleymdu sundrungareðli og flasfengnum aðgerðum, varðandi hin þýðingar- mestu þjóðmál. Allt stjórnmála- starf hans er í fyllsta ósamræmi við vinnubrögð og áhrif fyrsta þingfulltrúa Isfirðinga. Deilan um næsta forseta snýst eingöngu um stefnur og starfshætti þessara mjög ólíku vestfirzku fulltrúa. Skyldi hinn mikli kjósendahópur falla á landsprófinu? Skyldi meiri- hluti kjósenda taka vitandi vits á sig skömm landsins frá 1934, án þess að geta létt sektarþung- anum af manninum, sem framdi misgerðina? Eða hefur þjóðin þroska, þrek og manndóm til að halda fast við hugsjónir forset- ans frá Rafnseyri? — J. J.

x

Landvörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landvörn
https://timarit.is/publication/1927

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.