Feykir


Feykir - 15.02.2023, Side 8

Feykir - 15.02.2023, Side 8
Rúnar vinur minn hringdi í mig og bað mig um að taka við áskorun um að skrifa pistil í Feyki. Auðvitað sagði ég já við því eins og flestu öðru. Við hinar og þessar sameiningar á sveitarstjórnarstigi í gegnum tíðina hefur sumt staðið af sér allar sameiningar, svo sem þorrablót og búnaðarfélögin. Þar ríghalda gömlu hreppamörkin ennþá. Og einmitt í kvöld þegar þetta er skrifað er hreppablótið. Það er alltaf mikil tilhlökkun að koma á hreppablótið enda ein fjölmennasta skemmtun sem fer fram í A-Hún. Og kannski er tilhlökkunin meiri en venjulega vegna þess að blótið hefur ekki hefur verið haldið síðustu ár vegna covid. Ég fór fyrst á þessa skemmtun í kringum 1990 og hef mætt á hér um bil öll blót síðan. Þarna skemmta sveitungarnir hver öðrum með sínu nefi og leikhæfileikum. Það besta við svona þorrablót er að menn eru komnir til að skemmta sér og þar af leiðandi er frekar auðvelt að skemmta fólkinu. Leikþættir um mistök og hrakfarir sveitunganna fá að njóta sín og er hláturinn stundum svo innilegur að tárin leka niður kinn. Þeir sem aðeins eldri eru muna ógleymanlegu leikþættina hjá „Möggunum“ fjórum; frá Miðhúsunum, Hnjúki, Steinnesi og Sveinsstöðum. Einn maður stendur þó alltaf upp úr hjá mér sem var svo einstaklega fyndinn og næmur á sveitahúmorinn, en það var Magnús heitinn Blöndal sem átti síðast heima á Snæringsstöðum í Vatnsdal. Var hann eitt sinn að leika Diddu vinkonu sína á Bakka og í næsta atriði Þorvald á Guðrúnarstöðum og voru gervið og leiktilburðirnir slíkir að salurinn hló og hló og Maggi ætlaði aldrei að geta komið sér að efninu. Síðan er annáll sveitarinnar lesinn og er oft einstaklega skemmtilegur á að hlusta. Menn hlæja að bröndurum um nágrannana en bíða líka með smá kvíða í maganum hvort þeir verði teknir fyrir í næsta brandara og hvað verði sagt. Ég hef horft á annálsritarana í gegnum árin og „drukkið“ inn formið sem menn tileinka sér þegar svona er samið og flutt. Æði misjafn húmor og flutningur eins og gefur að skilja, sumir góðir en aðrir miklu betri. Maggi á Hnjúki, Ásgerður á Geitaskarði, Sigurður sonur hennar og fleiri hafa flutt frábæra pistla. En einhvern veginn kemst enginn upp að hlið Jóns í Ási sem gat flutt klukkutíma pistill þar sem enginn fór á salernið á meðan til að missa ekki af neinu og hláturinn ómaði um Félagsheimilið. Svo einn daginn fyrir furðulega mörgum árum var ég beðinn um að taka pistlaflutninginn að mér. Og gerði ég það og svo nokkrum sinnum eftir það. Að skrifa svona pistill sem á að gera grín að sveitungum sínum er mjótt einstigi að feta svo maður sé hvorki að særa eða móðga fólk. Og held bara að mér hafi tekist það þokkalega. Það hefur ekki nema ein kona tekið mig á eintal eftir svona pistil og skammað mig en það var hún Anna Magga á Sölvabakka, sem var verulega óánægð með að ég hafði ekki minnst á hana í pistlinum, lofaði ég að það myndi alls ekki koma fyrir aftur. Í kvöld mun Ásmundur vinur minn í Grænuhlíð flytja pistilinn og ég veit að það verður gert með glæsibrag. Já þorrablótin eru góð skemmtun þar sem aldnir og ungir skemmta sér saman og er þetta eitt af því fáa sem haldist hefur tiltölulega óbreytt í áraraðir. Annars gengur lífið sinn vanagang og allt að skríða í svipað horf og fyrir covid. Kór Íslands er byrjaður að æfa undir stjórn Skarpa og bóka- safnið í Dalsmynni hefur opnað aftur, meira þurfum við ekki. Nýr sveitarstjóri er tekinn við og reynir að sameina alla þá smákónga sem hér ríktu fyrir sameiningu. Heyskapur var með betra móti, lömbin aðeins vænni og túristarnir byrjaðir að æða yfir landið á Dusterunum. Vatnsdælingar byggðu sér svo stóran gangnaskála að þegar þeir rjúka út úr kojunni til að skamma náungann, þá eru þeir svo lengi að finna viðkomandi að þeim er löngu runnin reiðin þegar þeir loks finna hann. Og hefur samkomulagið á Grímstunguheiðinni batnað til muna. Og á Auðkúluheiðinni höfðu þeir loksins vit á því að skipta bæði um fjallskilastjóra og gangnaforingja síðasta sumar og gengu göngurnar með eindæmum vel og allir sáttir. - - - - Held að ég láti staðar numið að sinni hér á síðustu metrum þorra og skora á Ragnhildi Ástu Ragnarsdóttur, bónda í Norður- Haga, sem er yngsti og nýjasti stórbóndinn í A-Hún. ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is Jón Kristófer Sigmundsson Hæli í Austur-Húnavatnssýslu Hugrenningar um þorrablót Nafnið er frá landnámstíð, og það er nefnt í Land- námabók: „Vékell enn hamrammi hét maðr, er land nam ofan frá Giljá til Mælifellsár, ok bjó at Mælifelli“ (Landn., bls. 140). Og um Kráku-Hreiðar er þess getið, að „hann kaus at deyja í Mælifell“ (Landn., bls. 141). Af þessari frásögn er það ljóst, að hnjúk-myndaða fjallið, sem bærinn stendur undir, hefir önd-verðu heitið Mælifell. Á seinni öldum hefir það fengið nafnið Mælifellshnjúkur, sem reyndar á betur við, og nú er það að öllum nefnt því nafni. Frásögn Landnámu bendir líka á það, að bærinn hefir dregið heiti af fellinu, sem landnámsmenn kölluðu Mælifell. Samnefni eru fá við þetta nafn. Mælifell í Aðaldal (sjá Dipl. Ísl. V.b., bls. 283 - nú í eyði?) og Mælifell á Snæfellsnesi (Dipl. VII. b., bls.5), fjall, en ekki bær? Auk þess er til Mælifell í Norðurárdal syðra - gamalt örnefni (sjá Dipl. Ísl. VII. b., bls. 64). Frá 16. öld má finna afbökunina Mælufell (í Skagafirði) (sjá Dipl. Ísl. VIII. b., bls. 767 og IX. b., bls. 604). En ýms skjöl frá eldri tímum hafa nafnið rjett, eins og Landnáma og Sturlunga, sem hefir það eins (með i). Þessar ástæður sýna þá, að nafnið er nú óafbakað og upprunalegt. En það er jafntorskilið fyrir því. Það má þó óhætt telja víst, að forliður nafnsins, mæli, sje hljóðvarp af mál (i-hlv.). En eins og kunnugt er, hefir orðið mál (í frumnorrænu maðl og upprunalega úr gotnesku: maþl, sem þýðir: tunga), mjög margvíslegar merkingar í fornmáli. Meðal annars merkir það tíma, oft fastákveðinn. Sú merking er einmitt mjög algeng til forna. Í Hávamálum stendur: „Mál es þylja þularstóli á“ (111. er.), þ.e. tími til kominn. Sama kemur fram í Skírnismálum, 10. er.: „Myrkt es úti mál kveðk okr fara úrig fjöll yfir - - -.“ Mörg dæmi þessu lík mætti benda á, en rúmsins vegna verður þetta að nægja. Leifar af þessari merkingu finnast meðal annars í alkunna talshættinum, að „komið sje Mælifell TORSKILIN BÆJARNÖFN | palli@feykir.is RANNSÓKNIR OG LEIÐRÉTTINGAR MARGEIRS JÓNSSONAR mál til“ e-s. Ennfremur í eyktanöfnunum rismál, dagmál, og náttmál (sbr. Njálssögu, bls.303); alstaðar er merkingin ákveðinn tími. Og þetta er einmitt áherzluvert, því að í öllu norðurhjeraði Skagafjarðar er enn, og hefir verðið, svo lengi sem elztu menn muna, talið hádegi, þegar sól ber um Mælifell(shnjúk). Og úr miðju úthjeraði sjeð, lætur því afarnærri, að sól beri yfir hnjúkinn á rjettu hádegi. Þegar þess er gætt, að landnámsmenn urðu að leggja hádegiseyktarmarkið til grundvallar fyrir öðrum, því að þá bar sól hæst, liggur það í hlutarins eðli, að þeir hafi orðið að ákvarða það fyrst. Og landnemar útsýslunnar hafa vafalaust sett hádegismát sitt á Mælifell. Ef til vill hefur fellið fengið nafn af þessu, af því að hádegiseyktin var mæld við það, og önnur eyktarmerki miðuð eftir því. Mjer finnst það líklegt. Og hver veit, nema orðið hádegismál hafi þekst í fornöld, þótt ekki hafi það í bækur komist. Á það benda áðurgreind eyktarnöfn. Og svo mikið vita menn, að ýms orð eru algerlega glötuð, sem vel hafa þekst fyrir þúsund árum, eða meira. Fróðlegt væri að vita, hvort þau Mælifellsörnefni, sem til eru annarsstaðar, eigi sjer nokkur munnmæli um eyktarmörk. En þau geta vel verið gleymd með öllu, þótt til hefðu verið. Mælifellshnjúkurinn, séður frá Sauðárkróki, skyggir á sólina 22.12.2001 kl 12:02. MYND: PF 8 07/2023

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.