Feykir - 15.02.2023, Side 10
Það hefur blásið hressilega á
landinu síðustu daga og vikur
enda hver lægðin af annarri
vaðið yfir hauður og haf. Þrátt
fyrir það voru útköll björgunar-
sveita á Norðurlandi vestra í
lágmarki síðustu helgi en á
Skagaströnd slitnaði einn bátur
upp sem hékk þó á einum enda
þegar að var komið og á Fremri-
Kotum í Norðurárdal fauk gafl
upp og hurðir af bragga á laugar-
daginn sem Flugbjörgunarsveitin
í Varmahlíð sinnti. Þar voru þak-
plötur einnig festar og þær sem
höfðu losnað tryggðar niður.
Yfir tuttugu bárujárnsplötur
fuku af gamla fjósinu á Hólum
aðfararnótt mánudags og
dreifðust víða, um biskupagarð,
bílastæði og ein í kirkjugarðinn,
skrifar Broddi Freyr Hansen,
starfsmaður Háskólans á
Hólum, á Facebook-síðu sína.
„Fundum nokkrar liggjandi
lausar á fjósþakinu og nokkrar
að losna,“ útskýrir Broddi.
„Hér urðu laufvindarnir
heldur snarpir þessa nóttina.
Gamla hestamiðstöðin lét á sjá
og íbúðarhús varð fyrir aðkasti.
4 hestar voru fegnir að komast
út og hverfa út í nóttina. Þeir
hafa það fínt núna,“ skrifar
Ólafur Sigurgeirsson, sam-
starfsmaður Brodda Freys, á
sína Facebook-síðu. Hesta-
miðstöðin sú arna er staðsett á
Kálfsstöðum og er að sögn
Ólafs gömul hús.
„Það var feiknalega hvasst í
fjallabylgjunum, ekki stætt og
grjót og drulla á flugi. Líklega
hefur vindhraðinn farið vel yfir
50m/sek. þegar verst lét,“ sagði
Ólafur við Feyki. Þá fréttist af
gámi sem fauk á hliðina á
hafnarsvæðinu á Sauðárkróki
og kerrur ultu á Nöfum.
Engin lognmolla er í
kortunum næstu daga því
Veðurstofan spáir suðlægri átt
8-13 og éljagangur í dag en á
morgun, fimmtudag, verður
vestlæg átt 5-13 m/s og él, en
bjart norðaustan til. Hiti um
eða undir frostmarki. /PF
Kári í veðurham
Þakplötur fuku í óveðri helgarinnar
Foktjón á Kotum í Norðurárdal MYND AÐSEND Björgunarsveitarmaður að störfum á Kotum. MYND AÐSEND
Íbúðarhúsið á Kálfsstöðum. MYND ÓLAFUR SIGURGEIRSSON. Gamla fjósið á Hólum. MYND AMBER CHRISTINA
Hin unga frjálsíþróttakona, Stefanía
Hermannsdóttir á Sauðárkróki, fékk á
dögunum afhentan minningarbikar um
Stefán Guðmundsson fv. stjórnar-
formann KS og konu hans, Hrafnhildi
Stefánsdóttur. Um farandbikar er að
ræða sem oftast hefur verið veittur
samhliða athöfn Menningarsjóðs KS.
Að þessu sinni fór athöfnin fram í
aðal húsakynnum Kaupfélagsins undir
stjórn Bjarna Maronssonar, stjórnar-
formanns KS, sem afhenti Stefaníu
afreksbikar og fjárstyrk. Í umsögn um
afrek Stefaníu segir að hún sé ung
frjálsíþróttakona sem æfi hjá
frjálsíþróttadeild Tindastóls og keppi
undir merkjum UMSS. „Hennar aðal
keppnisgreinar eru spjótkast og
kringlukast. Stefanía hefur náð bestum
árangri í spjótkasti og er orðin einn
besti spjótkastari landsins þó hún sé
enn ung. Hún setti til að mynda
glæsilegt héraðsmet í sínum
aldursflokki síðasta sumar með kasti
upp á 41,75 metra.
Hún varð í öðru sæti bæði í
kringlukasti og spjótkasti á
Meistaramóti Íslands 15-22 ára í júní á
liðnu ári. Nú í desembermánuði var
Stefanía svo valin í landsliðshóp FRÍ
eftir árangur sumarsins.“
Þó aðalgreinar Stefaníu séu
spjótkast og kringlukast þá hefur hún
æft og keppt í kúluvarpi en segist hafa
dregið sig pínu frá því. Eins og að
framan greinir hefur henni vegnað vel
á keppnisvellinum en segist verða
sáttari með meiri bætingar og stefnir
hún á það í sumar.
„Ég hef ekki keppt í vetur, keppi
aðallega utan húss á sumrin. Á veturna
æfi ég með því að styrkja mig, tek af og
til kastæfingar en er aðallega að
styrkja,“ segir Stefanía sem að
sjálfsögðu stefnir á að kasta lengra á
komandi keppnistímabili. Hennar
stærsta markmiðið er náttúrulega að
komast á Ólympíuleikana einhvern
daginn en hún komst með árangri
sínum í landsliðshópinn fyrir þetta ár.
En það er fleira en íþróttir sem verið er
að stunda því hún nemur rafvirkjun í
FNV.
„Það gengur bara mjög vel. Fín
kennsla og aðeins fjölbreyttara en að
vera bara í bóklega náminu á
stúdentsbrautinni. Ekki alveg búin að
ákveða framhaldið en hef áhuga á
rafeindafræðinni og stefni líklega í þá
átt.“
Fyrir þau sem ekki koma Stefaníu
fyrir sig gæti hjálpað að nefna
foreldrana en þau eru Hermann
Einarsson, stýrimaður, og Kolbrún
Þórðardóttir, kennari. /PF
Minningarbikar um Stefán Guðmundsson og Hrafnhildi Stefánsdóttur
Keppir aðallega utan húss á sumrin
Stefanía með afreksbikar og viðurkenningarskjal.
MYND PF
Þakplötur fuku á Kálfsstöðum MYND ÓLAFUR SIGURGEIRSSON.
10 07/2023