Vestfirðingur


Vestfirðingur - 13.01.1960, Side 1

Vestfirðingur - 13.01.1960, Side 1
070 Vt4 II. árgangur. ísafjörður, 13. janúar 1959. !0(pQ 1.—2. tölublað. Hannibal Valdimarsson: Araniótahiisleiðing 1959 - 1969 I. Friðarhorfur um áramóí. FLESTUM ber saman um, að frið- arhorfur séu bjartari í heiminum um þessi áramót, en lengi hefur verið. — Kalda stríðinu milli stór- veldanna hefur slotað a. m. k.' í bili. Andrúmsloftið í alþjóðamálum er miklum mun mildara en verið hefur um margra ára skeið. ,Það, sem batanum hefur valdið og dreg- ið úr ,,kuldanum“, virðist mér einkum þetta: Bréfaskipti Bulgan- ins við Eisenhower, för Mikojans til Bandaríkjanna í byrjun þessa árs. Andlát John Foster Dulles, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna og tilkoma Christians Herters, för MacMillans forsætisráðherra Breta til Rússlands, viðræður Krústjoffs forsætisráðherra Rússa við ýmsa stj órnmálaieiðtoga Vestur-Þýzka- lands, heimsókn verkalýðsfornngj- anna brezzku, Gatskills og Bevans til Moskvu, för Krústjoffs til Bandaríkjanna, og afvopnunartil- lögur Rússa, afvopnunarráðstefn- an í Genf, heimsreisa Eisenhowers forseta og samkomulagið um fund æðstu manna nú með vorinu. Þessi þróun málanna er senni- lega eitt almennasta fagnaðarefni maima um víða veröld um þessi áramót. II. Árferði innanlands. Innanlands hefur verið hið bezta árferði. Seinasta vetrarvertíð skil- aði á land meira aflamagni en nokkurntíma áður. Síldveiðarnar norðanlands gengu betur en mörg undanfarin ár. Þessi góði árangur var einkum því að þakka, að nú er veiðitæknin komin á það stig, að sjómenn vorir geta nú náð til síldarinnar, þótt hún haldi sér í djúpinu og ,,vaði“ ekki. En þetta þýðir, að héðan af má reikna með sumarsíldveiðum sem miklu ár- vissari atvinnugrein en verið hef- ur. Togurunum hefur hinsvegar yf- irleitt gengið miður en árið á und- an. En nú hefur það einnig gerzt á þessu hausti, að vetrarsíldveiðar með hringnót virðast vera að kom- ast af tilraunastigi Suðvestan- lands. Og það, sem meira er: Síld- veiðar með flotvörpu hafa nú í fyrsta skipti skilað glæsilegum árangri. — Gæti þar verið um tímamótaatburð að ræða. Með stækkaðri landhelgi, vax- andi fiskiflota og aukinni veiði- tækni eru vaxandi vonir um, að þjóðin geti stóraukið gjaldeyrisöfl- un sína og þannig leyst með eðli- legum hæíti þann þátt efnahags- málanna, sem mest hefur verið fjargviðrast út af. Þjóðartekjurnar hafa aldrei ver- ið jafn miklar. Öryggi sjávarút- vegsins, aðalatvinnuvegar þjóðar- innar er meira en nokkru sinni. Fjárhagsafkoma ríkissjóðs og Út- flutningssjóðs virðist vera góð. En samt er hrópað í sífellu — næstum æðisgengið: Þjóðin lifir um efni fram. — Vér erum stadd- ir á brún hengiflugs. — Aliir verða að fórna, því að allt er í voða. Og samt er heilt ár liðið, síðan þær ráðstafanir voru gerðar, sem sötðva áttu alia verðbólgu og lækna þjóðfélagsmeinin. Lækkun á nýumsömdu fiskverði til hlutasjómanna. Tuttugu og sjö vísitölustiga lækkun á öllu kaup- gjaldi o. s. frv. — Til hvers var þetta gert í byrjun ársins, sem nú er að líða? Með hverju voru þess- ar árásir á lífskjör almennings réttlættar? Þetta er ill nauðsyn sögðu spá- mennirnir og spekingarnir. En til þess gerð að bjarga þjóðinni. Með þessu skyldi verðbólgudraugurinn kveðinn niður fyrir fullt og allt. Og er þjóðinni þá ékki borgið? Hefur verðbólgudraugurinn ekki verið kveðinn 'niður fyrir fullt og allt? — Menn skyldu ætla það. Fyrir kosningar hét það líka svo, að lækningin hefði heppnazt til fulls. Það þyrfti enginn að harma kauplækkunina. — Verð- bólgan hefði verið stöðvuð. En hver varð svo fyrsti boð- Hannibal Valdimarsson skapur Ólafs Thórs sem forsæits- ráðherra til þjóðarinnar? Allur niðurgreiðslureikningurinn er enn óborgaður. Ástandið er jafnvel enn geigvænlegra en nokkurn mann hafði órað fyrir. óðaverðbólga er framundan, ef ekki verða gerðar nýjar róttækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Og þannig var söngurinn áfram. Nú bíða menn þess, sem koma skal og búast við engu góðu. III. Tilelnislausar árásir á lífskjörin. Ríkisstjórn Alþýðuflokksins stofnuð og studd af íhaldinu varð til fyrir jólin í fyrra. Hún lá undir feldi um jólin þá, eins og stjórn Ólafs Thórs nú. Og er hún varpaði af sér feldinum, tilkynnti hún þjóðinni boðskapinn um að allir yrðu að fórna. Kaupgjaldsvísitalan var 202 stig. En nú skyldi með lögum ákveðið, að allt kaupgjald í landinu yrði reiknað út og greitt eftir vísitölunni 175. Tuttugu og sjö vísitölustig skyldu niður felld. Við þetta lækkaði almennt verka- mannakaup um kr. 3,19 á klst. — Fimm þúsund króna mánaðarkaup lækkaði um 668 krónur. Sex þús- und króna mánaðarkaupið um 802 krónur. Sjötíu þúsund króna árs- kauþ var lækkað með lögum um nærri 9000 krónur. Þannig var hin fyrsta ganga Al- þýðuflokksstjórnarinnar. Og þeg-. ar launamenn kveinkuðu sér und- an þessum þungu búsifjum, var, svarið: Verðið á kjöti og mjólk Framhald á 4. síðu. íyrsta spilakvOld ALIi.BANDSLAGSINS Ákveðið er að fyrsta spilakvöld Alþýðubandalagsins á ísafirði verði í Templarahúsinu n. k. sunnudag, 17. þ. ni. kl. 9 e. h. Er ætlunin að fleiri spilakvöld en þetta verði í vetur, en að þessu sinni er ekki hægt að segja hve mörg þau verða. Verðlaun verða veitt eftir hvert spilakvöld og enn- fremur verðlaun eftir þriggja kvölda spilakeppni, tvenn verðlaun í livert skipti, önnur fyrir dömur og hin fyrir lierra. Það þarf áreiðanlega ekki að minna alþýðubandalagsfólk á að sækja þessi spilakvöld og að fá aðra til þess. Munið að fyrsta spilakvöldið verður á sunnudaginn kemur, 17. þ. m. Fjölmennið þang- að. Verið með frá byrjun. Oerist áskrifendnr VESTFIBÐINGS En vantar mikið á að Vestfirð- ingur hafi fengið þann áskrifenda- fjölda, sem þarf til þess að útgáfa hans sé íjárhagslega tryggð. Sér- staklega eru áberandi fáir áskrif- endur hér á Isafirði. Til þess að bæta úr því, verður þetta og næsta blað borið til nokkurra manna í bænum, sem líklegt er að vilji ger- ast áskrifer.dur. Ef einhverjir þeirar vilja aftur á móti ekki fá blaðið eftirleiðis, eru þeir beðnir að láta telpuna, sem ber blaðið til þeirra, vita það, eða þá ritstjóra blaðsins. Þeir, sem það gera ekki, eftir að næsta blað hefur verið borið til þeirra, verða taldir áskrif- endur og krafðir um gjald fyrir blaðið. Séð verður um, að kaupend- ur fái blaðið eins fljótt og reglu- lega og mögulegt er. Þeir, sem búsettir eru utan Isa- fjarðar og fengið hafa blaðið sent að undanförnu, eru beðnir að end- ursenda það, ef þeir óska ekki að fá það áfram. Þeir, sem það hafa ekki gert fyrir miðjan næsta mán- uð, verða taldir áskrifendur og kraíðir um áskriftargjald. LEIÐRÉTTINGAR 1 skýringum með jólakrossgátu Vestfirðings eru tvær villur, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Lárétt skýring 37. dýrum les dýr. Lóð- rétt skýring 36. Fjallsnafnið er í aukafalli eintölu. Þá hefur setningin: „Ekki er gerður greinarmunur á . . . “ mis- prentast. Rétt er hún þannig: „Ekki er gerður greinarmunur á a og á, i og y, í og ý eða s og i.“ LANDS80KASAFN 231172 ÍSLANDS

x

Vestfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.