Vestfirðingur - 13.01.1960, Qupperneq 3
ísafjörður, 13. janúar 1960.
VESTFIRÐIN GUR
3
Bolvíkingar sýndu skopleikinn
S tubb
Þann 8. og 9. þ. m. fengu Is-
firðingar góða og gamalkunna
gesti í heimsókn, þar sem var leik-
flokkur frá Kvenfélaginu Braut-
inni og U.M.F.B. í Bolungavík, er
sýndi hér í Alþýðuhúsinu skopleik-
inn Stubb eftir Arnold & Bach í
þýðingu Emils Thoroddsen.
Með aðalhlutverkið, Þorgils
Balagils, verksmiðjueiganda
(Stubb), fór Halldór Halldórsson.
Halldór er talsvert vanur á leik-
sviði og gerði þessari kostuglegu
persónu ágæt skil. Vakti leikur
hans mikinn fögnuð áhorfenda. Af
öðru meirháttar hlutverkum er
ástæða til að nefna Ollebröd Gyld-
enfalk, greifa, sem Hallur Sigur-
björnsson fór með, Magnús Tobías-
son, kaupmann og Pétur Mjófjörð,
systurson hans, sem þeir Karvel
Pálmason og Jón Valgeir Guð-
mundsson léku, amtmannsfrú
Veinholt, sem Ósk ólafsdóttir lék,
og Massi Pedersen,, leikin af
Dóru Magnúsdóttur. Allar þessar
persónur voru mjög vel leiknar,
þó að misjafnar væru þær að gerð
og eðli. Það hendir stundum, að
skoplegar og ankannalegar persón-
ur eru gerðar ennþá kindugri en
efni standa til, en enginn þeirra,
sem fóru með þessi hiutverk, féll
í þá freistni.
Meðferð á öðrum og smærri
hlutverkum var ekki eins góð, en
sum þeirra, t. d. Jósef þjónn, sem
Birgir Snæbjörnsson fór með,
Siggi pól, fyrrv. yfirlögregluþjónn,
leikinn af Jónatan Ölafssyni, voru
mjög sómasamlega leikin, sama
má einnig segja um leik Öskar
Guðmundsdóttur í hlutverki Áróru
konu Stubbs.
Leikstjóri var Einar Kristjáns-
son Freyr.
Að endingu skal Bolvíkingum
þökkuð koman hingað, ágætur
leikur og góð skemmtun.
o o o
■ Nýir borgarar.
Jón Alberts, fæddur 21. ágúst
1958, Kristinn Gunnar, fæddur 12.
ágúst 1959, báðir á ísafirði. For-
eldrar: Ólína Ketilríður Jónasdótt-
ir og Kristján Hilmar Lingmo
Hansen, Seljalandsv. 52, Isaf.
Kristinn Sigurjón, fæddur á ísa-
firði 26. okt. 1959. Foreldrar: Erla
Sigurðardóttir og Gunnar Sigur-
jónsson, Hlv. 27, ísafirði.
Þórunn Sveina, fædd á ísafirði
10. ágúst 1959. Foreldrar: Kristín
Össurardóttir, Isafirði og Leifur
Halldórsson, Ólafsvík.
Öll skírð 8. nóv. 1959.
Friðbjörn, fæddur á ísafirði 14.
maí 1959, skírður 30. nóv. 1959.
Foreldrar: Fjóla Hannesdóttir og
Óskar Aðalsteinn Friðbjörnsson,
Hnífsdal.
Guðjón, fæddur á ísafirði 5. nóv.
1958. Foreldrar: Sesselja Ásgeirs-
dóttir og Ólafur Halldórsson, HIv.
48, Isaf.
Einar Karl, fæddur á Isafirði
26. júlí 1959. Foreldrar: Birna
Einarsdóttir og Kristján Karl
Reimarsson, Fjstr. 27, ísaf.
Örn Ægir og Guðmundur Ómar,
fæddir á Isafirði 4. ágúst 1959.
Foreldrar: Halldóra Guðrún Kar-
velsdóttir, Isaf., og Bjarni ívars-
son, Stykkishólmi.
Haukur, fæddur á Isafirði 24.
ágúst 1959. Foreldrar: Magðalena
Sigurðardóttir og Oddur Péturs-
son, Túng. 3, ísafirði.
Hólmgeir Páll, fæddur á ísafirði
15. sept. 1959. Foreldrar: Karitas
M. Pálsdóttir, ísafirði og Baldur
Björn Geirmundsson, Hnífsdal.
Gestur, fæddur á ísafirði 24.
sept. 1959: Foreldrar: Jóhanna
Guðmundsdóttir og Þorlákur Hall-
dór Arnórsson, Hlv. 18, ísaf.
Grétar, fæddur á ísafirði 5. okt.
1959. Foreldrar: Erna Magnús-
dóttir og Helgi Ól. Hörður Geir-
mundsson, Hnífsdal.
Dagný Björk, fædd á ísafirði 17.
júní 1959. Foreldrar: Stefanía
Arndís Guðmundsdóttir og Pétur
Valdimarsson, Hlv. 38, Isaf.
Sigríður Inga, fædd á Isafirði
16. júlí 1959. Foreldrar: Sigrún
Sigurgeirsdóttir og Sverrir Hall-
dór Sigurðsson, Hnífsdalsv. 8, Isa-
firði.
María Sveinfríður, fædd á Isa-
firði 16. ágúst 1959. Foreldrar:
Steingerður Ingadóttir og Halldór
Helgason, Sundstr. 29, ísafirði.
Kristín Björk, fædd á Isafirði
20. ágúst 1959. Foreldrar: Olga M.
Ásbergsdóttir og Jóhann Bjarna-
son, Suðureyri.
Bryndís, fædd á Isafirði 9. sept.
1959. Foreldrar: Lára Stefáns-
dóttir og Bragi Magnússon, Hlv.
33, Isafirði.
Guðbjörg Jóna, fædd á Isafirði
12. sept. 1959. Foreldrar: Sólveig
Hulda Jónsdóttir, Isaf. og Gunnar
Valdimarsson, Flateyri.
Guðrún Brynja, fædd á ísafirði
20. sept. 1959. Foreldrar: Hjaltlína
S. Agnarsdóttir og Jóhannes
Bjamason, Brunng. 12, ísaf.
Öll skírð 25. des. 1959.
Átta þessara barna skírði séra
Ragnar Benediktsson við messu á
jóladag.
Kristinn Lárus, fæddur í Hlíð í
Álftafirði 2. okt. 1959. Foreldrar
Erla Ragnarsdóttir, Hlíð, og
Brynjólfur Kristinsson, Isafirði.
Katrín, fædd á Isafirði 11. ágúst
1959. Foreldrar: Hjálmfríður Guð-
mundsdóttir og Sigtryggur Jör-
undsson, Silfurg. 8a, ísafirði.
Bæði skírð 26. des. 1959.
Edda, fædd á ísafirði 10. okt.
1959, skírð 27. des. 1959. Foreldr-
ar: Svanhildur Þorbjörnsdóttir og
Arinbjörn G. Arinbjörnsson, Pólg.
5, ísafirði.
Samúel, fæddur á Isafirði 1. okt.
1959, skírður 30. des. 1959. For-
eldrar: Kristín Árnadóttir og
Grímur Samúelsson, Seljalandsv.
58, Isafirði.
Hólmfríður, fædd á ísafirði 15.
sept. 1955. Kjartan Jón, fæddur á
ísafirði 13. júlí 1959. Foreldrar:
Anna Jónsdóttir og Lúðvík Kjart-
ansson, Krók 2, ísafirði.
Jón Ingigeir, fæddur á Isafirði
21. nóv. 1958. Foreldrar: Sigríður
Aðalsteinsdóttir og Jón Kristján
Jónsson, Hlv. 26, Isaf.
Kolbeinn Sumarliði, fæddur á
Isafirði 20. okt. 1959. Foreldrar:
Kristín J. Kolbeinsdóttir og Gunn-
ar H. Sumarliðason, Tangag. 22,
ísafirði.
Bryndís, fædd á Isafirði 8. júlí
1959. Foreldrar: Guðný Magnús-
dóttir og Vilberg Vilbergsson,
Hafnarstr. 11, ísafirði.
Öll skírð 31. des. 1959.
Nýir borgarar á Suðureyri.
Steinþóra, fædd 5. ágúst 1957.
Foreldrar: Sigríður Kristjánsdótt-
ir og Guðmundur Hermannsson,
Aðalg. 36, Suðureyri.
Sigurbjörg, fædd 14. maí 1959.
Foreldrar: Sigríður Kristjánsdótt-
ir og Þorleifur Hallbertsson,
Hjallaveg, Suðureyri.
Óðinn, fæddur 15. júní 1959.
Foreldrar: Solveig Kristjánsdóttir
og Gestur Yngvi Kristinsson,
Brekkustíg 7, Suðureyri.
Öll voru börnin skírð í Suður-
eyrarkirkju á jóladag.
Hjúskapur.
Eftirtalin brúðhjón hafa verið
gefin saman í hjónaband:
Astrid Hammersland og Sigurð-
ur Árni Jónsson, Eyri Skötufirði.
Giftingardagur 12. des. 1959.
Framhald á 7. síðu.
U M EFNISH YGGJU
Framhald af 2. síðu.
hyggju er nefnilega vélræn efnishyggja, sem svo er nefnd, og
margir álíta alla efnishyggju vélræna, en svo er ekki. Að áliti
hinnar úreltu, vélrænu efnishyggju var veröldin einber samsetn-
ingur fastra, óbreytanlegra hluta með fasta óbreytilega eigin-
leika, hluta, er væru hreyfingarlausir og þyrftu því utanaðkom-
andi kraft til hreyfingar. Með aðferð hinnar díalektísku efnis-
hyggju komumst vér hinsvegar að raun um, að grundvöllur alls
eru hinar sífelldu breytingar, sem allir hlutir verða fyrir. Ekki
eru heldur sjáanlegir neinir fastir eiginleikar, því sérhver hlut-
ur ákvarðast af öðrum hlutum og er tengdur þeim, og eiginleik-
ar breytast því eftir afstöðu hans eða þeirra. Þannig er ekki,
eins og að framan er getið, til neitt eilíft, óbreytanlegt mann-
legt eðli, heldur eru mannlegar athafnir endurspeglun og svar
við þjóðfélagslegum aðstæðum. Með aðferð hinnar díalektísku
efnishyggju höfum vér einnig komizt að því, að hreyfing er hinn
raunverulegi tilveruháttur efnisins, eðlisbundinn eiginleiki þess.
Ekki er hægt að aðgrein efni og hreyfingu, og efni án hreyfing-
ar er óhugsandi, það er, hreyfing er fólgin í efni. Við athugun á
orsökum fyrirbæra, er því ekki nóg að leita ytri verkanna, held-
ur fyrst og fremst innri hreyfiafla, innri þróunarhvata hlutanna
sjálfra. Það er því ljóst, að orsaka þjóðfélagsþróunar er ekki að
leita í athöfnum mikilla manna, sem framkvæmt hafa vilja sinn
á þjóðfélaginu, heldur er orsakanna að leita í þróun innri hreyfi-
afla þjóðfélagsins, það er, þróun framleiðsluháttanna.
Það er ástæða til að taka fram, að díalektisk efnishyggja er
engin trúarjátning, engin fjötruð kredda, heldur aðferð til skiln-
ings og skýringar á vandamálum vorum. Hún er tæki okkar til
skilnings þess, er gerir okkur fært að sækja markvisst fram til
sósíalistiskra framleiðsluhátta. Hún er algjör andstæða hinna
ýmsu kerfa borgaralegrar heimspeki, sem flest hafa hafnað í
endalausum mótsögnum. Hin borgaralega heimspeki endurspegl-
ar mjög vil hina óleysanlegu kreppu auðvaldsins, og hún er ein-
mitt að blekkja, og þar með viðhalda þessari kreppu. Á yfirstand-
andi sturlungaöld auðvaldsins er vísindalegur skilningur hinnar
díalektísku aðferðar réttnefnd hringabrynja hins vinnandi fjölda.
ÁS.