Vestfirðingur


Vestfirðingur - 13.01.1960, Síða 4

Vestfirðingur - 13.01.1960, Síða 4
4 VESTFIRÐIN GUR ísafjörður, 13. janúar 1960. Aramóíahugleiðing Hannibais Framhald af 1. síðu. verður lækkað sótrkostlega. Þið verðið gerðir skaðlausir. — Nú er að vísu upplýst, að sá reikningur — niðurgreiðslureikningurinn — er óborgaður. Og það eiga launþeg- arnir svo sannarlega að gera að sínum hluta af lækkaða kaupinu sínu. Þannig kaupránið óumdeilan- legt. — Svikin fullkomnuð. En svo illt sem sjálft kaupránið var, taldi verkalýðshreyfingin samt hálfu verra að una því, að frjálsum samningum milli atvinnu- rekenda og verkalýðssamtaka hafði verið rift með lögum. — Annað og lægra kaup, eu hið um- samda ákveðið af ríkisvaldinu. Traðkað á samningsrétti verka- lýðsfélaganna. Og þetta er meginatriði málsins. Þetta er það, sem verkalýðshreyf- ingin og launastéttimar yfirleitt munu aldrei fyrirgefa ríkisstjórn Emils Jónssonar og Alþýðuflokks- ins — sízt af öllu þegar frá líður og kastljósi sögunnar verður varp- að á þessa atburði. Nú blasir líka sú staðreynd við öllum, að kauplækkunarleiðin var röng. 1 henni var ekkert vit. Allur vandi efnahagsmálanna er óleyst- ur eftir sem áður. Það, sem eftir stendur, er þetta, að kauplækkun launafólksins var skilin eftir í kassa atvinnurekenda. Sá, sem hafði 100 menn í þjónustu sinni, átti eftir í kassa sínum 700 —800 þúsund krónum meira, en verið hefði samkvæmt kaup- greiðslu að réttum lögum og samn- ingum. — Það, sem frá launastétt- unum var tekið, var atvinnurek- endum fengið og meira þó, því að þeim voru réttir nokkrir milljóna- tugir að auki sem hækkaðar upp- bætur. Þetta varð framkvæmdin á kenningunni um, að allir yrðu að fórna. En verðbólgan hefur aldrei ver- ið betur nærð: Vinnuaflið, sem var ærið eftirsótt fyrir, var nú orðið ódýrara. Það ýtti af stað aukinni fjárfestingu bæði hjá einkafram- taltinu og opinberum aðilum. Sjóð- um þeim, sem safnazt höfðu í tíð vinstri stjórnarinnar, var nú eytt. Fjárlög voru með halla og liærri en nokkru sinni. Fóru í fyrsta sinn í sögunni yfir milljarð króna. Og verðbólguvaldurinn mikli: Keflavíkurflugvöllur, færðist drjúgum í aukana. Framkvæmdir voru auknar á vallarsvæðinu og ný radarstöð reist vestur á Snæfells- nesi. Þessi aukna innspýting er- lends fjármagns utan allrar fram- leiðslustarfsemi þjóðarinnar olli aukinni röskun í okkar litla efna- hagskerfi. Heimtaði aukið vinnu- afl frá framleiðsluatvinnuvegun- um, dró úr framleiðslumætti þeirra, herti samkeppnina um vinnuaflið o. s. frv. Enda er nú aftur farið að leggja togurunum vegna mannaleysis. — Auk þess tóku tollsvik og gjaldeyrisbrask mikinn fjörkipp á ný. Nei, verðbólgan hefur aldrei átt betra blómaskeiði að fagna en á árinu 1959. Það mátti öllum aug- Ijóst vera, að 4—5 þúsund króna mánaðakaup verkafólks væri ekki höfuðorsök verðbólgunnar. Og að hún yrði því ekki að velli lögð með því einu að lækka tekjur láglauna- stéttanna. — Enda er það nú á- þreifanlega komið á daginn. IV. Réttlætismáli borgið í höfn. Kjördæmabreyingin verður óef- að talin einn af höfuðatburðum þessa árs. Landinu var skipt í 28 kjördæmi með mjög mismunandi íbúafjölda. Árið 1956 voru 426 kjósendur í fá- mennasta kjördæminu, en 37603 í því fjölmennasta. Þingmenn voru 52. Þar af 41 kjördæmakosinn, en allt að 11 landkjörnir til jöfnunar milli flokka. Tuttugu og einn þingmaður var kjörinn að viðhafðri meirihluta- kosningu í jafnmörgum einmenn- ingskjördæmum. Þessir þingmenn höfðu enga varamenn. Tólf þingmenn voru kjörnir í 6 tvímenningskjördæmum að við- hafðri hlutfallskoningu. Þeir höfðu jafn marga varamenn. í Reykjavík voru kjörnir 8 þing- menn að viðhafðri hlutfallskosn- ingu og jafn margir til vara. Loks voru svo landkjörnu þing- mennirnir 11 og jafn margir vara- menn þeirra. Þrátt fyrir uppbótamennina til jöfnunar milli flokka var þó siíkt ósamræmi orðið milli kjörfylgis og þingmannatölu stjórnmálaflokka, að löngu var orðið óþolandi — enda alger skrípamynd alls lýð- ræðis og þingræðis. Þannig hafði einn stjórnmálaflokkur eftir kosn- ingarnar 1956 12000 kjósendur og 19 þingmenn í umboði þeirra, en annar 16000 kjósendur og aðeins 8 þingmenn. Ef sá fyrmefndi hefði haft þingmenn í samræmi við þann síðarnefnda, bar honum ekki að hafa nema 6 þingmenn (hafði 19). Þá hefðu verið 2000 kjósendur að baki hverjum þingmanni hjá þeim báðum. Eins má segja, að til þess að síðarnefndi flokkurinn hefði þing- mannatölu í samræmi við þann fyrrnefnda, þurfti hann að fá 25 þingmenn (hafði 8). Slíkt og þvílíkt var ranglætið orðið. Og því varð auðvitað ekki unað lengur. Nú er landinu öllu skipt í 8 kjör- dæmi. Þingmenn eru 60 að tölu — 8 fleiri en áður var. Af þeim eru 11 landskjörnir til jöfnunar milli flokka, og hafa þeir allir vara- menn, ef einhver þeirra forfallast. Hinir, 49, eru allir kjörnir að viðhafðri hlutfallskosningu og hafa allir varamenn, ef á þarf að halda. — Er þetta miklu einfald- ara og hreinlegra, eins og allir sjá. í það eina skipti, sem kosið hef- ir verið samkvæmt hinni nýju kjördæmaskipan, náðist nokkum- veginn jöfnuður milli flokka. Þ. e., þeir hafa allir þingmannatölu nokkurn veginn í réttu hlutfalli við kjörfylgi sitt. — Þingið ætti því að vera réttari mynd af þjóðarvilj- anum, eftir kjördæmabreytinguna en áður, og hvaða lýðræðissinni mundi ekki fagna því ? Engar líkur finnst mér til þess benda, að hin nýja skipan verði óhagstæðari dreifbýlinu, en gamla kjördæmaskipanin. Sambandið milli kjósanda og þingmanna á að geta verið eins náið. Það verður meir en áður á valdi kjósenda að velja sér frambjóðendur. Mun varla koma til kasta flokksstjórna að skipa framboðslista, nema heimamenn, eða þeirra fulltrúar geti með engu móti komið sér sam- an. Þá mun hvert kjördæmi nú eiga fulltrúa á þingi frá mörgum stjórnmálaflokku m, og ætti það að vera til bóta með tilliti til þess að tryggja framgang héraðsmála. Bezt er þó að láta reynsluna skera úr um þetta. Hennar dómi verða allir að hlíta, hver sem fyrri afstaða hefur verið. En víst hljóta menn að vera sammála um það, að kjördæmabreytingin verð- ur að teljast til stóratburða þess árs, sem nú er að líða. V. tsland og norræn samvinna. Fyrir nokkrum árum var það von norrænna stjórnmálamanna, að takast mætti að koma á sam- eiginlegum norrænum markaði og norrænu tollabandalagi. Á árinu 1959 hafa þessi stórmál norrrænnar samvinnu verið moldu ausin — gefin upp á bátinn a. m. k. í bili. Til hafa orðið tvær viðskipta- samsteypur Evrópuríkja. Önnur þeirra nefnist „Sex ríkja samband- ið“, og eru í því Vestur-Þýzka- land, Belgía, Holland, Frakkland, Italía og Luxemburg. í þessari við- skiptasamsteypu eru 165 milljónir manna. — Það eru einkum hags- munir kola- og stálframleiðslunnar í álfunni, sem þarna leita saman I einskonar hring. Hin viðskiptablokkin, saman- stendur af sjö ríkjum: Þau eru England, Danmörk, Noregur, Sví- þjóð, austurríki, Sviss og Portú- gal. — Hafa þau verið kölluð „Hin ytri sjö“. Menn taka sjálfsagt eftir því, að þama hafa skandinavísku löndin — þ. e. bræðraþjóðir okkar: Danir, Norðmenn og Svíar tengzt Bret- um bróður böndum viðskiptanna með tollfrelsi og öðrum góðum fríðindum. En Norðurlöndin tvö, Island og Finnland eru ekki með. — Hvað skyldi nú vera orðið af hinni hálofuðu norrænu samvinnu ? Sú spurning verður þó e. t. v. enn nærgöngulli við okkur íslendinga, þegar við rif jum upp margra ára tregðu Svía til að veita íslenzkum flugvélum lendingarheimild í Sví- þjóð. Og þó versnar enn, ef við leiðum hugann að afstöðu frænd- þjóðanna til baráttu Islendinga fyrir lífi sínu, þ. e. til landhelgis- málsins: Norðmenn hafa verið hlutlausir, þó tilkynnti íslenzka útvarpið í kvöld, að þeir í Álasundi hefðu dýpstu samúð með brezkum tog- arasjómönnum, sem nú væri mein- að (af vondum Islendingum) að fiska á „sínum gömlu miðum“l! — Svíar sendu strax opinbera mót- mælaorðsendingu gegn stækkun fiskveiðalandhelginnar í 12 sjó- mílur. Þá vissu menn hvoru meg- in þeir voru í lífshagsmunamáli Is- lendinga. Og Danir komu í bakið á okkur með sérsamningi við Breta um 6 sjómílna fiskveiðalandhelgi við Færeyjar. — Verri óleik var naumast hægt að gera okkur, með- an baráttan var sem allra tvísýn- ust milli okkar og Breta. En þarna höfum við myndina af norrænni samstöðu og samvinnu í okkar stærsta efnahags- og sjálf- stæðismáli. — Hún er sannarlega ekki á marga fiska. Norðurlandaráðið átti að tengja Norðurlöndin öll nánar og fastar saman. Því hefur mistekizt hlut- verk sitt í meginmálum. Sumir kenna það nú helzt við „skemmti- klúbb“ eða ferðafélag. Og sannast sagna fæst það nú helzt við sam- hæfingu löggjafar- og fram- kvæmdaatriða ýmissa smærri mála, er aðallega snerta þrjú Norðurlandanna, þ. e. Danmörku, Noreg og Svíþjóð. — ísland og Finnland koma þar sjaldnast við sögu. En nóg um það. Hitt er ærið íhugunarefni að Norðurlöndin þrjú hafa myndað „viðskiptablökk“ með Bretlandi, Austurríki, Sviss og Portúgal. En Island stendur eitt sér og reynir að bjarga „lambi fá- tæka mannsins" undan vopnuðu ofbeldi Breta. En þótt ótrúlegt megi virðast, er það nú orðið víst, að í þeim ójafna leik einhuga smá- þjóðar og hernaðarstórveldis, mun Davíð sigra Golíat. VI, Verkalýðshreyfmgin og kaupránið. Tvö verkalýðsfélög, Hið íslenzka prentarafélag og Félag mjólkur- fræðinga gátu sagt upp samning- i

x

Vestfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.