Vestfirðingur


Vestfirðingur - 13.01.1960, Síða 5

Vestfirðingur - 13.01.1960, Síða 5
Isafjörður, 13. janúar 1960. VESTFIRÐIN GUR 5 Agætur afli og næg atvinna í Tálknafirði um sínum á s.l. vori. Þetta gerðm þau, þar sem þau vildu ekki una kjaraskerðingu kaupránslaganna. Bæði félögin fóru fram á verulega kauphækkun. Hóf Prentarafélagið verkfall 1. júní, er samningar tók- ust ekki, en mjólkurfræðingar frestuðu boðuðu verkfalli og ákváðu að vinna ekki eftirvinnu. Vegna prentaraverkfallsins komu engin blöð út nokkuð fram eftir kosningabardaganum í vor. En er kosningar nálguðust, tókust samningar, og telja prentarar sig hafa náð ca. 7% kjarabót. — Kauphækkunarkrafa þeirra var 15%. Þegar nokkuð kom fram á sum- arið tóku mjólkurfræðingar málið upp aftur, og náðu þeir samning- um um 10,6% grunnkaupshækkun. Vikgukaup þeirra hækkaði úr 1211 krónurn í 1339'krónur og 36 aur,a. Gefur þetta nokkra vísbendingu um örlög kaupránslaganna, þegar verkalýðssamtökin telja almennt tímábært að hefja gagnráðstafan- ir vegna þeirra og hinna boðuðu ,,bjargráða“ nú eftir áramótin. Samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamninga gátu flest verka lýðsfélögin ekki sagt þeim upp fyrr en 1. september — nokkur raunar ekki fyrr en 1. desember. Þann 30. ágúst í sumar boðaði Alþýðusambandið til ráðstefnu um kaupgjaldsmálin. Mættu á henni fulltrúar flestra þeirra stéttarfé- laga, sem lausa höfðu samninga og sagt gátu upp samningum á ár- inu. Ráðstefnan var fjölsótt og ríkti á henni mikill einhugur um kjara- málin. Að umræðum loknum var eftir- farandi ályktun samþykkt með at- kvæðum allra fulltrúanna: „RÁÐSTEFNA Alþýðusam- bands Islands haldin í Reykjavík 29. og 30. ágúst 1959 telur nauð- synlegt, að samningum verði sagt upp af þeim sambandsfélög- um, sem er það kleift á næstunni, vegna uppsagnarúkvæða samn- inga. Jafnframt telur ráðstefnan rétt, að miðstiórn sambandsins boði til nvrrar ráðstefnu með fulltrúum þeirra félaga, er þá hafa sagt upp samningum, þegar frekari vitneskja liggur fyrir um verðlagningu landbúnaðarafurða og aðra þróun efnahagsmála þjóðarinnar.“ Samkvæmt þessari ábendingu ráðstefnunnar sögðu flest verka- iýðsfélög upp samningum sínum og hafa nú lausa samninga. Allir bjuggust við, að línur myndu skír- ast í efnahagsmálunum fljótlega eftir að þing kæmi saman og ný ríkisstjórn hefði verið mynduð. — En þingið kom saman. Sjö manna ríkisstjórn íhalds og Alþýðuflokks- ins komst á laggirnar. Forsætis- ráðherrann tilkynnti að sérfræð- ingar væru að reikna og rannsaka og þegar þeir væru búnir, myndi ríkisstjórnin leggja fram tillögur sínar. Þó væri þegar vitað, að á- standið væri mjög alvarlegt og krefðist róttækra aðgerða. Það eitt lét hann uppi, að gamalmenn- um og öryrkjum mundi verða hjálpað til að stanaast afleiðing- ar aðgerðanna. — Af því mátti ráða, að mikils ills væri von fyrir alþýðu manna. Samkvæmt lögum og venjum átti fjármálaráðherra í þingbyrjun að halda framsöguræðu fjármála og gefa þingi og þjóð jafnframt skýrslu um ástand og horfur í fjárhags- og efnahagsmálum þjóð- arinnar. Þetta var ekki gert nú. Fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1960 var kastað þegjandi inn í þingið. Ekkert orð togaðist úr hin- um nýja fjármálaráðherra, nema hvað hann tilkynnti, að upp yrði tekið nýtt efnahags- og fjárhags- kerfi — hvorki meira né minna!! VII. Lifðu ekki urn efni f ram! Síðan var tilkynnt, að þingið yrði sent heim. Stjórnin vildi hafa frið — vinnufrið! — Og þetta varð. Alþingi var rekið heim, og skal ekki koma aftur til starfa fyr en í janúarlok. — Þannig hafa þeir tryggt sér næðið og vinnufriðinn. — Síðan hefur ekki heyrzt stuna eða hósti til stjórnarherranna sjö. Þeir liggja undir feldi, segja Morg- unblaðið og Alþýðublaðið. Og hverju hafa þeir lofað? Það er raunar ekkert smáræði: Nú / skal afnema bæði uppbótakerfi og niðurgreiðslukerfi. — Öll höft og bönn skulu hverfa eins og dögg fyrir sólu. Frelsið skal halda inn- reið sína í verzlun og viðskiptum. Beinum sköttum skal létt af fólk- inu. Þeir skulu hverfa með öllu. 1 staðinn á aðeins að skattleggja eyðsluna, og hver skyldi vera á móti því? Og að síðustu á svo enn að leggja verðbólgu og dýrtíð að velli. Það er sem sé ekkert nema ein- tóm dýrðin framundan. Reyndar má þó ekki alveg gleyma fyrsta og síðasta atriðinu í boðskap Ólafs Thors og Emils Jónssonar — íhaldsins og Alþýðu- flokksins. Þjóðin lifir um efni fram og hef- ur lengi gert það. En nú skal kenna henni hófsamlegri lifnaðar- háttu, ráðdeild og sparsemi. Þarf víst enginn að efa, að kennslan sú er í réttum höndum, þar sem skólameistarinn er Ólafur Thórs, yfirkennarar höfuðleiðtogar stór- útgerðar og stórkaupsýslu, að ó- gleymdum foringjum Alþýðu- flokksins í aðstoðarkennarastöð- um. — Þessir kunna nú sitt fag í sparneytni og hófsemd allri. Og það, sem auðvitað skiptir öllu máli er að venja fjölmennustu stéttir þjóðarinnar af allri eyðslu og óspilunarsemi. Það verður að ★ HÉÐAN eru gerðir út tveir vélbátar, Guðmundur á Sveinseyri og Tálknfirðingur. ★ HAUSTRÓÐRAR byrjuðu 10. nóvember s.l., og fóru bátarn- ir 21 róður hvor til áramóta. Afli mátti heita góður. V/s Guðmund- ur á Sveinseyri fékk 183 tonn og v/s Tálknfirðingur 185 tonn. Mikil vinna hefur verið í hrað- frystihúsinu hér, oftast unnið fram til kl. 11 og 12 að nóttu. Nokkuð af aðkomufólki sækir hingað vinnu einkum frá Patreksfirði, en þar hefur verið lítið um vinnu sökum þess, að eini báturinn, sem þar var byrjaður róðra, v/s Sæborg, varð að hætta og fara til viðgerðar í Reykjavík, en báðir bátarnir héð- an fóru í „slipp“ í Reykjavík í haust til viðgerðar og eftirlits. Var það allumfangsmikil viðgerð, m. a. var skipt um skrúfu í Tálknfirð- ingi. ★ HLUTIR á sílldarvertíð í sumar urðu á Tálknfirðingi kr. 38.819,00, en á Guðmundi á Sveins- eyri kr. 60.284,00. ★ TÍÐARFAR hefur verið nokkuð risjótt í haust. Um helg- ina 8. nóvember gerði hríðarveður og teptust vegir hér á milli fjarð- anna, en mokað var nokkru síðar til Patreksfjarðar, enda þurfum við mikið á þeim vegi að halda; m. a. eru öll bein flutt þangað, því að ennþá vantar hér beinamjöls- verksmiðju, einnig er allmikið flutt í skip af fiskflökum. Þann 29. taka verkamönnum og verkakon- um ærlegt sparnaðartak. Það verður að stöðva lúxuslifnað bændastéttarinnar og fólksins í sveitunum. Nær nokkurri átt að láta sjóara og svoleiðis fólk vaða í peningum? Iðnverkafólk og opin- berir starfsmenn svo og vinnulýð- ur verzlunarstéttarinnar verður líka að hætta öllu bruðli — allri óhófseyðslu — verður að læra að spara. Geta menn ekki orðið sammála um, að þarna sé gripið í höfuð- meinsemd þjóðfélagsins. Hefta ó- hófslifnað vinnustéttanna til sjáv- ar og sveita svo að frjáls fjár- magnsmyndun geti öðlazt meira olnbogarúm? Þetta er a. m. k. ,,ideal“ ríkis- stjórnar vorrar. VIIL Erum við að farast? Nú er ég ekki í minnsta vafa um það, að ef þjóðin væri í nauð- um stödd, mundu vinnustéttirnar nóvember s.l. tók Goðafoss um 1000 kassa af Ameríkufiski, var sá fiskur fluttur á bílum til Pat- reksfjarðar. ★ SJÁVARFLÓÐ óvenju mik- ið varð hér að morgni 3. nóv. s.l. Skemmdir urðu á vegum og sjór flæddi inn í kjallara kaupfélagsins, urðu nokkrar skemmdir á vörum. Flóð eins og þetta hefur ekki kom- ið hér í manna minnum. ★ UNNIÐ er enn að því að fullgera hið nýja hraðfrystihús. 1 sumar var það múrhúðað utan að nokkru leyti og er því ekki lokið enn, einnig er verið að ljúka við ísgeymsluna, setja á upp ísgerðar- vél auk margs annars, sem ógert hefur verið til þessa. Verður þetta vel búið og vandað frystihús. Mik- ils er líka um það vert að skapast hefur aðstaða til að taka á móti aðkomufólki, þar sem góð herbergi eru í húsinu og aðstaða til heim- ilishalds, þ. e. fyrir mötuneyti. ★ VETRARRÓÐRAR byrjuðu hér undir eins á áramótum. Var farið í fyrsta róðurinn á nýárs- dagskvöld og 9. þ. m. hafði verið róið alla virka daga. Afli hefur verið mjög góður, 8, 9 og allt upp í 12 lestir í róðri. ★ RÉTT fyrir áramótin voru teknar í notkun 4 íbúðir í tveimur nýbyggðum tveggja íbúða húsum, timburhúsi og steinhúsi. Þá má geta þess, að s.l. ár fluttust þrjár fjölskyldur í hreppinn. Fréttarit. sízt af öllu reynast öðrum stéttum ófúsari til að leggja á sig erfiði og fórnir. — En í hvaða háska er þjóðin nú stödd? Hver eru rökin fyrir því, að nú verði að herða sultarólina ? Það er hinn ægilegi vandi efna- hagsmálanna, segir ríkisstjórnin og spámenn hennar. Og í hverju er hann fólginn? Er ríkissjóður íslands kominn i fjárþrot? Getur Útflutningssjóð- ur ekki staðið við skuldbindingar sínar? Hlaðast máski upp gjald- eyrisskuldir frá ári til árs. Er rík- ið sokkið í óbotnandi skuldir er- lendis ? Ef fyrstu spurningunni, um fjárþrot ríkissjóðs yrði svarað ját- andi, þá kæmi það heldur illa heim við upplýsingar Guðmundar í. Guðmundssonar fyrrverandi fjár- málaráðherra réttfyrir kosning- arnar. Og þá hefði hagur hans a. m. k. versnað ískyggilega á þessu Framhald á næstu síðu.

x

Vestfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.