Vestfirðingur - 13.01.1960, Side 6
6
VESTFIRÐIN GUR
Isafjörður, 13. janúar 1960.
ári, því að vitað er, að hagur hans
stóð með blóma í ágústlok 1958.
Nei, sannleikurinn er sá, að það
er ógerlegt að hræða nokkurn
mann með bágborinni fjárhagsaf-
komu ríkissjóðs. Enda væri það ó-
hugnanlegt í öðru eins góðæri
beztu aflabragða sem yfir þjóðina
hafa komið — á ári hæstu þjóð-
artekna í sögu Islands.
Þá er það Útflutningssjóðurinn.
— Engin rök hníga að því, að
hann sé í nokkrum vanda staddur.
Hann hefur borgað upp svikahalla
bátagjaldeyriskerfisins, og enginn
hefur heyrt, að hann standi ekki
í fullum skilum við útgerðarmenn.
Þannig er enga grýlu hægt að
gera úr efnahagsástandi útflutn-
ingssjóðs. — Og allir vita, að at-
vinnulífið er í fullum gangi.
Þá er eftir að athuga tvær sein-
ustu spurningarnar, um gjaldeyris-
stöðuna og skuldir út á við, og er
ekki óeðlilegt að athuga svörin við
þeim í einu lagi.
Það mun rétt vera, að allmörg
seinustu árin höfum við ekki átt
neina gjaldeyrissjóði. Sjálfsagt er
að viðurkenna, að þetta er í veik-
asta lagi, ef eitthvað skyldi út af
bera. En ekki er þó vitað, að ís-
lenzkir bankar hafi fengið á sig
óorð fyrir vanskil erlendis, og
ekki er heldur vitað, að gjaldeyr-
isstaðan hafi versnað neitt sein-
ustu árin.
Þessu mun undireins svarað með
því að segja. Gjaldeyrishalli hefur
verið allmörg ár, en hann hefur
verið jafnaður með erlendum lán-
um. — Þetta er rétt, svo langt
sem það nær.
Er þessi halli þá svo mikill og
þessar erlendu lántökur svo stór-
kostlegar, að í þeim felist einhver
þjóðarvoði?
Ég tel fjarstæðu að halda því
fram.
Það er engan veginn sjálfgefið,
að einstaklingur, sem skuldar tvö
hundruð þúsund krónur, sé ver
efnum búinn en annar, sem ekkert
skuldar. Til þess að geta dæmt um
það, hvor sé betur stæður, þurf-
um við að vita um eignir beggja,
um arðsemi eignanna og ýmislegt
fleira.
Höfum við ekki eignazt áburð-
arverksmiðju, sem sparað hefur
milljóna fúlgur í áburðarkaupum,
höfum við ekki eignazt sements-
verksmiðju sem einnig sparar tugi
milljóna í gjaldeyri árlega, er ekki
Sogsvirkjunin og yfirleitt rafvæð-
ing landsins gjaldeyrissparandi,
spara ekki ný farskip okkur gjald-
eyri? Er ekki alkunna, að fiski-
skip okkar skila gjaldeyrisverð-
mæti sínu á einu til þremur ár-
um? — Þannig mætti lengi telja.
Og hver getur ætlazt til, að
slíkt sem þetta, að ógleymdum
nýju flugvélunum, sé greitt af ár-
legum tekjum? Er nokkuð óeðli-
legt eða skelfandi við það, þótt
lán séu tekin til slíkrar uppbygg-
ingar? Auðvitað er ekkert óeðli-
legt við það.
Það ætti því ekki að vera hægt
að trylla þjóðina með því einu að
segja, að hún skuldi mikið. Hitt
er aðalatriðið hvort hún sé betur
eða ver á vegi stödd fjárhagslega
eftir þessar lántökur, en vera
mundi, ef hún hefði ekki tekið
þessi lán, og þá heldur ekki komið
upp þeim framtíðarfyrirtækjum,
sem hún hefur eignazt vegna láns-
fjárins.
Það er sannast sagna, að það
mun verða erfitt að samræma það
sannleikanum, að nokkurt gjald-
eyrislegt eða fjárhagslegt hengi-
flug sé framundan. Og þess vegna
verði vinnandi stéttir þjóðfélags-
ins enn á ný að skerða lífskjör sín.
Hrunkóngarnir og hörmunga-
spámennirnir eru bara í þjónustu
þeirra þjóðfélagsafla, sem heimta,
að skiptareglum þjóðfélagsins sé
enn breytt. Það var gert í íyrra,
og það vilja þeir líka gera í ár.
Það hyggjast þeir nú gera með
gengislækkun. — Launþegarnir
skulu fá smærri krónur og helzt
ekki fleiri en áður. — Þannig á
enn á ný að rýra lífskjör Iauna-
stéttanna með yfirbreiðslu geng-
islækkunar. Og hrópin um þjóðar-
voða og yfirvofandi ófarnað eiga
að fá fórnarlömbin til að sætta
sig við fórnirnar.
Verkalýðshreyfingin mun vissu-
lega ekki hrapa að neinu. Hún vill
skýra sem sannast og réttast frá
raunverulegu ástandi þjóðarinnar
í efna hagsmálum. Hún vill sjá
aðgerðir ríkisstjórnarinnar, áður
en hún dæmir þær út af fyrir sig.
Ef til vill er nauðsynlegt, að fólk
fái líka að kynnast áhrifum að-
geraðnna á lífskjör stéttanna, áð-
ur en hafizt sé handa. — En þá
er líka kominn tími alþýðustétt-
anna til aðgerða, ef réttlætis hefur
ekki verið gætt og spor til ófarn-
aðar hafa verið stigin. Enda er það
staðreynd, að launastéttirnar yf-
irleitt langt út yfir vébönd verka-
lýðsfélaganna, treysta á það, að
hin skipulagða, róttæka verkalýðs-
hreyfing sé og verði sá brimbrjót-
ur, sem holskeflur kaupráns og
kjaraskerðingar brotna á. - - Hjá
ýmsum gætir þegar nokkurrar ó-
þreyju. Finnst hún jafnvel sein-
þreytt til vandræðanna.
IX. Fánýt leið eða
farsæl leið.
Það veit þjóðin og skilur til
fulls, að gengislækkun bætir ekki
eyrisvirði við þjóðartekjurnar.
Hún er því ekki lausn á neinum
vanda. Þetta vita forsvarsmenn
gengisfallsins ekki síður en aðrir.
En gengislækkunin ýtir undir ó-
hófseyðslu innan lands og skapar
vantraust útávið — og hún auðg-
ar eignamenn og skuldakónga
þjóðfélagsins, jaínframt því, sem
hún féflettir sparifjáreigendur og
launamenn alla. — Og þetta er líka
hinn raunverulegi tilgangur, þó að
fögur orð um fórnir og bjargráð
séu höfð á vörunum.
En er þá nokkur önnur leið?
Áður hefur verið vikið að vax-
andi tækni og auknu öryggi sjáv-
arútvegsins. Megum við svo ekki
á þessu og næstu árum vænta
ávaxtanna af aukinni friðun fiski-
miðanna? Eða er ekki öllum ljóst,
að landhelgismálið er ekki aðeins
sjálfstæðismál, lieldur einnig gild-
ur þáttur efnahagsmála okkar?
Hafa ekki skipin, sem vinstri
stjómin veitti leyfi fyrir, verið að
streyma til landsins allt fram á
þessi áramót? Þau verða undir-
staða aukinnar framleiðslu.
Vitum við ekki ,að við getum
aukið árlegar gjaldeyristekjur
okkar um tugi milljóna með skyn-
samlegri hagnýtingu flatfiskstofn-
anna við strendur landsins.
Betri og meiri vinnsla sjávaraf-
urðanna — m. a. með lýsisherzlu
og niðursuðu — felur í sér stór-
kostlega gjaldeyrismöguleika.
Getur nokkur lokað augunum
fyrir þeim stórfenglegu iðnaðar-
möguleikum, sem vatnsafl og jarð-
hiti opnar okkur í sífellt vaxandi
mæli frá ári til árs.
Það er betri hagnýting þessara
möguleika allra, sem getur aukið
trúna á íslenzka peninga útávið og
innávið, ýtt undir iðjusemi og
sparneytni, leyst úr gjaldeyris-
skortinum, skotið hinuin traust-
ustu stoðum undir allt efnahags-
kerfi lands og þjóðar og jafnframt
bætt lífskjör hins vinnandi manns.
Getur nokkruin dulizt, að þetta
er rétta leiðin í efnahagsmálum fs-
lands í dag?
X. Löðum vinmiafíið til
framleiðslustarfanna.
Nú liggur við, að togararnir
stöðvist hver af öðrum vegna
mannaleysis. Sýnir það þá ekki, að
leið Alþýðubandalagsins — fram-
leiðslustefnan — sé óframkvæman-
leg?
Síður en svo. — En þetta sýnir
einmitt berlega, að kjaraskerðing-
arstefnan er leið til glötunar. Hún
rekur fólk frá framleiðslustörfun-
um. Hún lamar gjaldeyrisöflunina.
Hún æsir og magnar þann ógnar-
vanda, sem hrunadansarar ríkis-
stjórnarinnar þykjast ætla að
leysa með gengisfalli!!
Hvers vegna ganga hásetar og
yfirmenn unnvörpum í land af tog-
urunum? Hvernig er hægt að
stöðva slíkt? Er leiðin til þess
e. t. v. aukin kjaraskerðing ?! Eða
er hægt að stöðva þessa óheilla-
þróun með lagaboði?
Fásinna. — Hér dugar ekkert
slíkt. Hér dugar aðeins eitt:
Kjarabætur. Orsökin til þess, að
togararnir eru að stöðvast vegna
mannaleysis, er sú og sú ein, að
Sjómannafélag Reykjavíkur hefur
sofið of fast. Kjör togarasjó-
manna eru lakari en annara við
sambærileg störf. Ef stéttarfélög
sjómanna rumska ekki, munu tog-
araeigendur sjálfir lagfæra kjörin,
svo að þeir haldi mannskapnum,
og þurfi ekki að binda togarana
við hafnarbakkana.
Það er bókstaflega ósæmilegt,
við auknar þjóðartekjur að skila
ekki aftur kaupráninu frá því í
fyrravetur. — Viðurkenning á
fullu launajafnrétti kvenna mundi
líka bæta verulega úr vinnuafls-
skortinum og efla framleiðslumátt
atvinnuveganna. — Allt vinnuafl,
sem losað verður frá hernáms-
þjónkun og aftur tekið til fram-
leiðslustarfa, stuðlar ennfremur að
heilbrigðri lausn efnahagsmálanna
eftir leiðum framleiðslustefnunnar.
Þetta er leið alþýðunnar — og
á einnig að verða leið íslenzku
þjóðarinnar allrar til bættra lífs-
kjara og öruggara efnahagslegs
sjálfstæðis.
„Þetta Iand á ærinn atið,
ef menn kynnu að not ’ann.“
Gleðilegt ár, 1960.
Reykjavík, 31. des. 1959.
Hannibal Valdimarsson.
o o o
Afiabrögð . . .
Framhald af 8. síðu.
um, Víkingur 87 lestir í 16 sjóferð-
um, Hugrún 77,5 lestir í 12 sjó-
ferðum og Einar Hálfdáns 56,5
lestir í 11 sjóferðum. Allur aflinn
veginn slægður. V.b. Einar Hálf-
dáns var frá veiðum í nær 2 vik-
ur vegna vélbilunar og Hugrún
nær því jafn lengi. Togarinn Guð-
mundur Péturs fór á veiðar í tvo
daga í byrjun mánaðarins og fékk
einungis 5300 kg. Hætti þá veiðum,
en mun bráðlega hefja veiðar aft-
ur. Vb. Gullfaxi var á rækjuveið-
um fram yfir miðjan desember.
Hnífsdalur.
Páll Pálsson 98,5 lestir í 15 sjó-
ferðum, Rán 94 lestir í 17 sjóferð-
um. Fiskurinn veginn slægður.
o o o
Rausnarleg gjöf.
Skömmu fyrir jól gaf kvenfélag-
ið Hlíf Elliheimili Isafjarðar 9
vönduð rúmstæði með ágætum
dýnum. Jafnframt gaf Guðmund-
ur L. Þ. Guðmundsson, húsgagna-
smiðurí Reykjavík, en hann er
gamall Isfirðingur ,eitt rúmstæði
með dýnu, til minningar um móð-
ur sína, Guðbjörgu Friðriksdóttur,.
með ósk um að einhver gömul kona
á elliheimilinu gæti notið góðs af
gjöfinni.
Bæjarstjóri hefur þekkað þessar
rausnarlegu gjafir, og allir bæjar-
Bæjarstjóri hefur þakkað þessar