Vestfirðingur


Vestfirðingur - 13.01.1960, Qupperneq 8

Vestfirðingur - 13.01.1960, Qupperneq 8
Þrír nýir vélbátar FYBIK og um hátíðarnar bættust þrír nýir vélbátar við skipastól Vestfirðinga. Tveir 94 lesta stálbátar, annar til ísafjarðar og hinn til Hnífsdals, og einn 76 lesta eikarbátur til ísafjarðar. Eru þeir allir byrj- aðir veiðar. Aílabrogð á í desembermánuði s.l. var afli skipa sem gerð voru út frá Vest- fjörðum, sem hér segir: ísafjörður. Gunnvör 144 lestir. Gunnhildur 140 lestir, Víkingur II. 130 lestir, Ásúlfur 113 1. Fóru 17 sjóferðir hver. Tveir bátar fóru 16 sjóferðir hvor: Gylfi (áður Mímir) aflaði 112 lestir, og Sæbjörn, aflaði 100 lestir. Þessi síðasttaldi bátur hætti fyrir jól. Einn bátur, Hrönn (áður Guðbjörg) fór 18 sjóferðir og fisk- aði 117 lestir. Afli allra bátanna veginn óslægður. Rækjubátamir voru að veiðum fram undir jól, en hófu veiðar aftur 1. janúar. Afli þeirra ofast góður. Togararnir Is- borg og Sólborg seldu afla sinn í Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi. Súðavík. Trausti fékk 98,2 lestir og Hringur (leigubátur frystihússins Frosta) 85,5 lestir. Fóru hvor 20 sjóferðir. Aflinn veginn slægður. Steingrímsfjörður. Tveir bátar frá Hólmavík Guð- mundur og Hilmir, fóru 10 sjó- ferðir og fengu 40—45 lestir hvor. Átta bátar frá Hólmavík og Drangsnesi voru að veiðum, flest- ir með þriggja manna áhöfn. Fengu þeir allt að 3000 kg. í sjó- ferð. Sjóferðatala svipuð og hjá stærri bátunum. T'ogarinn Stein- Vestfjorðum grímur trölli var slitrótt á veiðum fram undir miðjan desember og aflaði í mánuðinum 40 lestir. Patreksf jörður. Togararnir þar seldu báðir afla sinn erlendis, annar í Englandi, hinn í Þýzkalandi. Sæborg, eini báturinn, sem þaðan gekk, var mestan hluta mánaðarins frá veið- um. Fór aðeins 4 sjóferðir og afl- aði vel, fékk 24 lestir í tveimur þeirra, en nokkru minna í hinum, alls nær 40 lestir. Bíldudalur. Togskipið Pétur Thorsteinsson var slitrótt að veiðum. Lagði upp í heimahöfn 40 lestir í byrjun mánaðarins og aftur 40 lestir um miðjan mánuðinn, en hætti þá í bili. Vb. Jörundur Bjarnason fór aðeins 8 sjóferðir í mánuðinum og aflaði alls nálega 50 lestir af óslægðum fiski. Þrír bátar voru á rækjuveiðum fram yfir miðjan desember, en hættu þá í bili. Þingeyri. Vb. Flosi og Þorbjörn fengu 96 lestir hvor af óslægðum fiski í 15 sjóferðum. Vb. Fjölnir byrjaði róðra 10. des. Afli hans var hlut- fallslega svipaður og hjá Flosa og Þorbirni. Flateyri. Bv. Gyllir fékk 191 lest í þrem- Stálbátarnir eru báðir smíðað- ir í Brandenburg og Stralslund í Austur-Þýzkalandi eftir teikning- um Hjálmars Bárðarsonar skipa- skoðunarstjóra. Heitir annar þeirra Straumnes, en eigandi er Kögur h.f., Isafirði. Báturinn er gerður út frá Isafirði. Skipstjóri er Haukur Helgason. Hinn báturinn heitir Mímir, er eign samnefnds hlutafélags í Hnífsdal og gerður út þaðan. ur veiðiferðum. Bv. Guðmundur Júní fór eina veiðiferð og fékk 73 lestir. Engir vélbátar reru frá Flateyri. Suðureyri. Friðbert GuCmundsson 94 lestir, Freyja 94 lestir, Draupnir 92 lest- Þessir bátar komu báðir á Þor- láksmessu. Eikarbáturinn er smíðaður í Vestur-Þýzkalandi, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar, skipasmíða- meistara. Hann heitir Guðbjörg. Eigandi er Hrönn h.f., Isafirði,' en skipstjóri er Ásgeir Guðbjartsson, aflakóngur Vestfirðinga undanfar- in ár. Þessi bátur kom 28. des. s.l. Hann er gerður út frá ísafirði. ir, Freyja II. 89 lestir, Freyr 84 lestir. Bátarnir fóru 16—17 sjó- ferðir hver. Aflinn var veginn slægður. Bolungavík. Þorlákur 120 lestir í 18 sjóferð- Framhald á 6. síðu. ið Poirot snæddum oft miðdegisverð sam- an í litlu veitingahúsi í Soho. Kveld eitt, er við vorum þar staddir, komum við auga á einn af vinum okkar. Hann sat við borð skammt frá okkur. Þetta var Japp lögreglu- fulltrúi, og þar eð nóg rúm var við okkar borð, flutti hann sig yfir til okkar. Það var orðið alllangt síðan við höfðum séð hann. „Þú ert hættur að líta inn til okkar,“ sagði Poirot ásakandi. — Við höfum ekki hitzt síð- an málið út af gulu jasmínunum var á döf- inni fyrir tæpum mánuði. — Það er af því, að ég var fyrir norðan. En hvernig gengur það hjá þér? Eru ,Hin- ir fjórir stóru“ alltaf í fullum gangi? Poirot lyfti ásakandi að honum fingri. -— O, hlæðu bara að mér. „Hinir fjórir stóru“ eru nú samt raunveruleiki. — Já, það efast ég heldur alls ekki um. En þeir eru samt ekki eins yfirmáta merki- legir og þú vilt vera láta. — Þér skjátlast algjörlega, vinur minn. Helzta, stærsta og máttugasta verkfæri illsk- unnar á vorum tímum eru „Hinir fjórir stóru“. Enginn veit, hvað það er, sem þeir eru fyrst og fremst að sækjast eftir. En það hefur aldr- ei fyrr þekkzt afbrotafélagsskapur, sem lík- ist þessum. Forsprakkinn er mesta „höfuðið“ í öllu Kínaveldi, og meðal félagsmanna eru bandarískur milljónamæringur og frönsk vísindakona, en sá fjórði er. — Ég veit það, ég veit það. Þú ert blátt áfram búinnn að fá þetta á heilann, þetta er ein af þessum „smá hugmyndum“ þínum, og Agatha Christie: i SKÁKÞRAUT í hreinskilni sagt orðið að áráttu hjá þér, Poirot. Þykir þér gaman að tefla? — Já, ég hef stundum teflt. — Lastu merkilega frásögn, sem birtist í fyrradag? Keppni milli heimsfrægra skák- snillinga, og annar þeirra dó, meðan á keppni stóð? — Já, ég sá smágrein um þetta. Rússneski skáksnillingurinn dr. Savaronoff, var annar þeirra. Hinn var ungur Bandaríkjamaður, mjög miklum hæfileikum búinn, og lézt af völdum hjartasjúkdóms. — Alveg rétt. Savaronoff vann Rubinstein og var Rússlandsmeistari nokkur ár eftir það. Wilson er sagður annar Capablanca. — Einkennileg tilviljun, sagði Poirot hugs- andi. — Ég efa ekki að þú hafir alvegs sér- stakan áhuga fyrir þessu máli ? Japp hló dálítið vandræðalega. — Þarna hitturðu naglann á höfuðið, Poirot. En ég er í stakasta vanda. Wilson var við hestaheilsu og bar ekki minnstu einkenni hjartasjúkdóms. Dauði hans er alveg óskýr- anlegur. — Þú grunar dr. Savaronoff ef til vill um að hafa rutt honum úr vegi spurði ég. — Tæplega, svaraði Japp þurrlega. — Ég trúi því ekki einu sinni upp á Rússa, að hann grípi til þess úrræðis að myrða mann til þess að tapa ekki fyrir honum í skák. Og eftir því, sem ég hef heyrt, var Rússinn meiri skákmað- ur. Hann er talinn mjög erfiður viðfangs, sá snjallasti næst Lasker er sagt. Poirot kinkáði hugsandi kolli. — En hvert er þá álit þitt á málinu?, spurði hann. — Hver ætti að hafa gefið Wilson eit- ur og hversvegna? Því að ég tel sjálfsagt, að myrt hafi verið með eitri. Grunar þig það ekki líka? — Vitanlega. Hjartabilun þýðir, að hjartað hættir að slá, það er allt, sem um þetta atriði er að segja. Læknirinn gaf strax þann úr- skurð, en einslega hefur hann gefið okkur í skyn, að hann sé ekki alveg viss. — Hvenær á líkskoðunin að fara fram? —- I kveld. Wilson dó óvenju snögglega. Hann virtist ekki kenna sér neins meins venju fremur, en einmitt á því augnabliki, sem hann

x

Vestfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.