Vestfirðingur - 29.01.1975, Blaðsíða 2
2
VESTFIRÐINGUR
Blað Alþýðubandalagsins í Vestfjarðakjördæmi
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Ólafsson.
Blaðnefnd: Aage Steinsson, Skúli Guðjónsson,
Unnar Þór Böðvarsson, Þuríður Pétursdóttir,
Gísli Hjartarson.
Verð árgangsins kr. 400,00 — Gjalddagi 1. maí.
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KRÓNUR.
„Alltaf að tapa"
gögu með þessu nafni skrifaði Einar H. Kvaran í upphafi
rithöfundarferils síns og birti í íslensku tímariti. í sögunni
segir frá bónda, sem taldi sjálfum sér og öðrum trú um, að
hann tapaði á öllu, sem hann kæmi nálægt eða fengist við.
Þetta er gamansaga og það kemur í Ijós, að allt tal þessa
manns um tap á öllum sköpuðum hlutum, er ímyndun ein,
barlómur og blekking.
Nú á tímum, þegar viðkvæðið „alltaf að tapa” kveður við úr
öllum hugsanlegum áttum dag eftir dag, viku eftir viku,
mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, kemur manni þessi gaman-
saga stundum í hug. Og nú er það heill hópur allskonar
fyrirtækja og fyrirbæra,sem eru „alltaf að tapa”.Útgerðar-
menn eru „alltaf að tapa”, fiskverkunarstöðvar eru „alltaf
að tapa”, iðnrekendur eru „alltaf að tapa”, kaupmenn eru
„alltaf að tapa”, heildsalar eru „alltaf að tapa” og þannig
má telja svo að segja endalaust. Hér er þó ein undantekning:
Það heyrist aldrei að alþýðuheimilin, fólkið sem lifir af vinnu-
tekjum sínum einum saman, hvort heldur er á sjó eða landi,
sé „alltaf að tapa”. Hagur þess er meira að segja talinn það
blómlegur að ætlast er ti!l, að það komi til hjálpar hinum, sem
eru „alltaf að tapa”.
| Þjóðviljanum 19. þ.m. gerir Svavar Gestsson, annar rit-
stjóri blaðsins, grein fyrir hvernig þetta fólk er látið vinna
þetta kærleiksverk. Hann sýnir fram á, að aðferðin er
ákaflega einföld. Hann ber saman verð á átta algengum
neysluvörutegundum eins og það var í sumar, þegar vinstri-
stjórnin sat að völdum og eins og það er nú, þegar helminga-
skiptastjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins
situr að völdum, og hann ber einnig saman 5ta taxta Dags-
brúnar eins og hann var þá og eins og hann er nú. Við þann
samanburð kemur í Ijós, að svonefnd „vísitölufjölskylda”
verður annaðhvort að borða minna af þessum átta neyslu-
vörutegundum en talið er að hún þurfi að borða samkvæmt
grundvelli framfærsluvísitölu eða þá, að þeir, sem fyrir
þessari fjölskyldu vinna, verða að leggja á sig meiri vinnu,
til þess að hún geti borðað það, sem hún þarf af þessum
vörutegundum. „Al þú önn fyrir honum”, sagði miskunnsami
Samverjinn í dæmisögunni, þegar hann fól gestgjafanum
manninn, sem féll í hendur ræningjum. Alið þið önn fyrir
oss, segja þeir, sem eru „alltaf að tapa”, við alþýðuheimilin,
cg þau eru látin gera miskunnarverkið.
Haldi einhver að Svavar sé sérstaklega ósanngjarn í þessum
samanburði, þá er það mikill misskilningur. Hann bendir
einmitt á erlend áhrif í verðlagsmálum og þann vanda, sem
þeim fylgir, en hann mótmælir, að þeim vanda sé varpað á
þá eina, sem hafa almennar launatekjur sér til framfæris.
„Lausnin á þeim vanda”, segir hann, „er vissulega engin
önnur en sósíalisk úrræði”. Um þá lausn hljóta allir sósíalist-
ar að vera sammála og verkalýðssamtökin vonandi líka.
fjrræðin, sem Svavar bendir á, eru í stuttu máli: Nákvæm
úttekt þjóðarbúsins, stöðvun þeirrar sóunar, sem sú úttekt
hlyti að leiða í Ijós, aukin hagkvæmni í rekstri atvinnufyrir-
tækja, minni reksturskostnaður í innlendri verslun, efling
íslenskra atvinnuvega, sérstaklega í iðnaði úr innlendu hrá-
efni og aukin hagkvæmni í fjárfestingu.
JSfú kann einhver að spvrja: Hefur ekki nýlega komið í Ijós,
að vestfirðingar höfðu allra landsmanna hærri meðaltekjur,
cg enn er hér blómlegt atvinnulíf? Er þá ástæða til svart-
sýni og eru ekki allar ráðstafanir óþarfar? Svarið er augljóst:
Jafnvel hæstu meðaltekiur eru fljótar að brenna í því verð-
bólgubáli, sem nú logar svo glatt í íslensku þjóðfélagi, og að
þeim feigðarósi megum við ekki fljóta sofandi.
— Lausn húsnœðismála
Framhald af 1. síðu
hæðinni til greiðslu kostnaðar
við starfræksiu byggingar-
sjóðs, ennfremur er óheimilt
að selja og endurselja um-
ræddar íbúðir, nema viðbótar-
lánið sé að fullu greitt, en
það eru sömu reglur og gilda
um verkamannabústaði. Þá
má einnig nefna eftirfarandi
ákvæði:
„Á árunum 1974-1978 skal
húsnæðismálastjórn veita lán
til 1000 leiguibúða á vegum
sveitarfélaga, ef fullgildar
umsóknir berast”.
Tvíþættur tilgangur.
Frumvarpinu fylgir svo-
hljóðandi greinargerð:
Um mörg undanfarin ár
hafa húsnæðismálin verið eitt
erfiðasta viðfangsefnið, sem
íslenskt þjóðfélag og einstakl-
ingar hafa haft við að glíma.
Hér á landi búa flestir í
eigin húsnæði eða keppa að
því að eignast eigin íbúð og
má segja, að fjárfesting í
eigin íbúðarhúsnæði hafi um
langt skeið verið helsta leið
ails almennings til að tryggja
verðgildi fjármuna sinna á
verðbólgutímum.
Fátt ræður meiru um raun-
veruleg lífskjör hjá einni
f jölskyldu en það, hvort hún
hefur ráðið fram úrhúsnæðis-
málum sínum og er komin
yfir erfiðasta hjallann við að
eignast íbúð eða ekki. Þarna
er um að ræða bil, sem er
miklu breiðara en skyldi og
veldur alvarlegu misrétti, er
bitnar ekki hvað síst á ungu
fólki, sem nýlega hefur hafið
búskap.
Með starfi Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins heldur rík-
isvaldið uppi umfangsmikilli
starfsemi í því skyni að stuðla
að byggingu íbúðarhúsnæðis.
Bygging íbúðarhúsnæðis
samkvæmt lögum um verka-
mannabústaði og lögum um
hinar svokölluðu Breiðholts-
ibúðir á vegum Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar
hefur á undanförnum árum
átt drýgs'tan þátt í að leysa
húsnæðisvanda lágtekjufólks,
sérstaklega hér á Stór-Reykj-
avíkursvæðinu.
Húsnæðisvandamálin hafa
löngum verið hvað erfiðust
úrlausnar hér í Reykjavík og
nágrenni, en nú er í þeim
efnum orðin breyting á.
Sú mikla atvinnuuppbygg-
dng, sem átt hefur sér stað
úti um 'land á undanförnum
3-4 árum, hefur leitt til þess,
að fólki fjölgar nú á ný í
fjöknörgum bæjum og þorpum
þar sem íbúum fór áður fækk-
andi eða kyrrstaða ríkti.
Á mörgum slíkum stöðum
hafði bygging nýs íbúðarhús-
næðis áður verið í algeru lág-
marki um langt skeið og mjög
verulegur hluti íbúðarhúsnæð-
is orðinn býsna gamall og oft
úr sér genginn.
Þvi er það, að nú, þegar
atvinnulífið stendur með
blóma og þörf er á auknu
vinnuafli, þá skortir íbúðar-
húsnæði mjög tilfinnanlega.
Ekki fer á milli mála, að á
allra síðustu árum hefur
skortur á íbúðarhúsnæði stað-
ið í vegi fyrir enn frekari
íbúafjölgun mjög víða úti um
landið og húsnæðisskorturinn
verið eitt alvarlegasta vanda-
mál byggðarlaganna. Við hlið
áframhaldandi atvinnuupp-
byggingar og atvinnuöryggis
má segja, að lausn húsnæðis-
málanna sé brýnasta hags-
munamál fjölmargra byggð-
arlaga.
Lögin, sem sett voru 17.
apríl 1973 um byggingu leigu-
íbúða á vegum sveitarfélaga,
höfðu þann tilgang að greiða
nokkuð úr þessum vanda og
veltur á miklu hvernig tekst
um framkvæmd þeirra.
Augljós er þörfin fyrir
nokkurt framboð á leiguhús-
næði í þeim bæjum og þorpum
úti um landið, sem með tilliti
til atvinnulífs og annarra
skilyrða geta vænst fólks-
fjölgunar, svo fremi að hús-
næðisskortur ekki haroli.
Fólk, sem ræður sig í at-
vinnu á nýjan stað, hefur í
fæstinn tilvikum hug á að
kaupa þar eigin íbúð í byrjun
og þarf því að eiga kost á
leigu'húsnæði fyrst um sinn,
uns það hefur gert upp hug
sinn um að setjast að til
frambúðar og festir kaup á
eigin íbúð.
Tilgangur þessa frumvarps
er tvíþættur. Annars vegar er
stefnt að því, að húsnæðis-
málastjórn verji stærri hluta
af ráðstöfunarfé sínu en áður
til lánaveitinga vegna kaupa
á eldri íbúðum og til endur-
bóta á eldra húsnæði.
Hins vegar er frumvarpinu
ætlað að auðvelda sveitarfél-
ögunum að ráðast í byggingu
leguíbúða með því að gera
hagstæðari þau kjör, sem í
þeim efnum eru í boði af hálfu
ríkisins.
(Leturbreyting og millifyrir-
sagnir eru Vestfirðings).
Tekur sœti á Alþingi
Jón Baldvin Hannibalsson,
skólameistari, hefur tekið sæti
á allþingi í fjarveru Karvels
Pálmasonar sem hefur tekið
sér frí frá þingstörfum. Meðan
Jón Baldvin situr á þingi
gegnir Bryndís Schram störf-
um skólameistara.
Byggingnlóðir
Lokið er úthlutun lóða inn
í Firði. Úthlutað var 14 2ja
hæða raðhúsum, 16 einnar
hæðar raðhúsum og 28 ein-
býlishúsum. Framkvæmda-
nefnd leiguíbúða fékk öll einn-
ar hæðar raðhúsin. Örfáum
lóðum var úthlutað annars-
staðar í bænum.
PHiLIPS-kæliskápar
PHILCO-|iurrkarar
jivottavélar
RAFÞJÓNUSTA RAFTÆKJASALA
KIISSL-skíði
Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI
Lengdir 205 cm — 210 cm — 215 cm
HE-skíHaskór
EINNIG Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI
Stærðir 38 — 42
Takmarkaðar birgðir
Verslunin
Kjnrton R. Guðmundsson
Hafnarstræti 1. Sími 3507, ísafirði