Vestfirðingur - 29.01.1975, Blaðsíða 3

Vestfirðingur - 29.01.1975, Blaðsíða 3
VESTFIRÐINGUR 3 Atvinna Starfsfólk óskast í 2-4 mán., hálfan eða allan daginn. Upplýsingar á skrifstofunni. SKATTSTJÓRINN VESTFJARÐAUMDÆMI Nýr borgari. Atli, fæddur 5. júní 1974, skírður 26. janúar 1975 Foreldrar: Jónína Jakobsdótt- ir og Garðar Guðmundsson, Silfurgötu 1 ísafirði. Andlát. Ólafía S. Gísladóttir, kona Jóns Páls Péturssonar Selja- landsvegi 46 Isafirði, andaðist 8. janúar s.l. Hún var fædd 23. nóvember 1920. Hjúskapur. Þann 11. nóvember 1974 voru gefin saman í hjónaband af borgardómara í Reykjavík, Sigrún Gísladóttir, sjúkraliði frá Lækjarbakka í Gaulverja- bæjarhreppi, og Sigurður Ei- rífcsson, lögfræðinemi, ísafirði Lagmetis- iðnaður Nýlega var þess getið í sjónvarpsfrétt, að á döfinni væru ýmsar nýjungar í lag- metisiðnaði og ætluðu niður- suðuverksmiðjur víðsvegar á landinu að notfæra sér tæki- færið, sem þar byðist, sérstak- lega voru nefndar Niðursuðu- verksmiðja Kristjáns Jóns- sonar á Akureyri og Norður- stjarnan í Hafnarfirði. Ekki var minnst á ísafjörð í þessu sambandi. Hér er þó full þörf að koma á fót slíkum iðnaði, eða a.m.k. athuga mög- uleika til þess, þar sem rækju- verksmiðjumar hafa lítil sem engin verkefni mikinn hluta ársins og fjöldi af fólki, sem þar vinnur, er þá atvinnu- laust. Er hér ekki vérkefni, sem atvinnumálanefnd bæjar- íns gæti vaknað til að íhuga, eða er hún kannske ekki búin að sofa út? — Þjófnaður Framhald af 4. síðu Fagranes varð að fresta fetð vestur á fimmtudag, af þessum sökum, en fór þangað á föstudag, en í Djúpið fór það á laugardag. Lögreglan fékk málið til meðferðar og hefur tekist að hafa hendur í hári þeirra sem þama voru að verki. Þeir hafa skilað mestu af þýfinu en skemmdimar eru ennþá óbættar. Freslur til þess að skila skattframtöium til skattstofunnar á ísafirði og til umboðsmanna í hreppunum í Vest- fjarðaumdæmi rennur út 31. jan. n.k. Þeir, sem hafa atvinnurekstur með höndum, þurfa þó eigi að skila skattframtölum og rekstursreikningum og efnahagsreiknigum fyrr en fyrir lok febrúar. Frekari framtalsfrest er ekki unnt að veita nema sérstaklega standi á og þá innan marka 35. gr. laga nr. 68/1971 (skattalaganna) enda hafi verið sott bréflega um frest til skattstjóra eða umboðsmanns áður en lögákveðinn framtalsfrestur rann út. Skv. 47. gr. skattalaganna skal reikna viðurlög í fram- tali, sem skilað er of seint og skv. 2. mgr. 37. gr. sömu laga skal áætla skattþegni tekjur og eignir, ef hann telur ekki fram. Áhersla er lögð á það, að framteljendur geri sjálfir framtöl sín og skili þeim fullfrágengnum og undir- rituðum, t.d. að hjón undirriti framtal bæði og stjórn félags undirriti ársreikninga þá,sem skilaö er. Folk á skyldusparnaðaraldri á að sanna spari- merkjaeign sína með því að sýna sparimerkjabækur í skattstofunni eða hjá umboðsmanni. Tekið skal fram, að þeir, sem hafa keypt sjávar- afurðir og landbúnaðarafurðir (fiskvinnslustöðvar, kaupfélög o.fl.) eiga að auki að skila viðeigandi afurðamiðum og samtalningsblöðum fyrir 1. mars n.k. Skattstofan á ísafirði er opin alla virka daga nema laugardaga frá kl. 10-12 og kl. 13-15,30 (sími 3788 kl. 8,30-12 og kl. 13-16,30). 27.-30. jan. n.k. er þó opið til kl. 19 og 31. jan. er opið til kl. 24. ísafirði, 10 jan. 1975, SKATTSTJÓRINN VESTFJARÐAUMDÆMI fsafjarðarkaupstaður Gjöld til bæjursjóis 1375 A. FASTEIGN AGJÖLD: Gjalddagi fasteignagjalda er 15. jan.Xog 15. mars n.k. og ber að greiða gjöldin að hálfu á hvorum gjalddaganna. B. ÚTSVÖR OG AÐSTÖÐUGJÖLD: gjalddagi útsvara og aðstöðugjalda er 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní n.k. og ber þá að greiða í fimm jöfnum greiðslum 2/3 af álögðum gjöldum 1974. Eftirstöðvar gjaldanna 1975 ber síðan að greiða með fimm jöfnum greiðslum, 1. ágúst, 1. sept- ember, 1. október, 1. nóvember og 1. desember. Gjaidendur eru hvattir til að greiða skilvíslega. ísafirði, 10 jan. 1975 BÆJARSTJÓRI Verðlaunaskákþrautir Taflfélags Ísafjarðar og Vesfirðings Þar sem engar lausnir bárust á jólaskákdæmum T.í. og Vestfirðings, hefur Taflfélag ísafjarðar og blaðið Vestfirð- ingur ákveðið að efna til nýrrar samkeppni, með nýju sniði. Verður skákdæmum skipt í tvo flokka, A og B, og verða veitt ein bókarverðlaun fyrir hvorn flokk. Þessar bækur standa til boða: Flokkur A. Miðtaflið (E.A. Znosko - Borovsky). Flokkur B. Fiscer gegn Spassky (F. jóhannsson - Friðrik Ólafsson). Þrautirnar sem valdar hafa verið eru allar samdar eða tefldar af meðiimum Taflfélags ísafjarðar. Flokkur A. dæmi 1 höf. Ásgeir Överby, 1962. Hv. Ka8, Df4, Ra2, Rb2. Sv. Kel. Hvítur mátar í 2. leik. dæmi 2. hof. Sigurður Ei- ríksson, 1965. Hv. Kh4, Bgl, peð. d4, h5. Sv. Kh7, Rdl, peð. c6, h6. Hvítur leikur og vinnur. dæmi 3. Matth. Kristinsson - Ásgeir Överby (hraðskák 1974) Hvítt. Kd2, Hfi, Hf2, Bd3, Re6, peð. c3, d5, h3, c2. Svart. Kgrf, Dbo, Heö, Rgo, peö. a/, c7, e5, g/, h7. Hvítur leifcur og vinnur. Flokkur B. dæmi 1 Frímann Sturluson - Jón I. Jónsson (1973). Hvítt. Khi, Hal, peð. a5, f2, g3, h4. Svart. Kh3, Hc6, peð. f3, h5. Svart tapaði, en gat náð jafntefli. Hvernig? dæmi2. Sig. Gunnarsson - Guðm. Jóhannsson (1974). Hvítt. Kh3, Hc2, Rd5, peð. f5, g3, h4. Svart. Kh5, Hfl, Ha3, peð. f6, g7, h6. Hvítur leikur og heldur jöfnu. dæmi 3. höf. Matthías Kristinsson (1965). Hvítt. Kg6, Ha6, peð. g4. Svart. Kcl, Hf2, peð. a2, f6. a) hvítur leifcur og nær jafntefli. b) Svartur leikur og vinnur. Lausnir á jólaskák- _ r aœmum T.l. og Vest- firðings 1974 1. dæmi. 1.... bl = D 2. Dxbl Kxbl 3. Kb4 kb2 4. Kxa4 Kc3 jafntefli. 2. dæmi. 1. Del Kc2 (sv. má ekki þiggja fómina, eins og síðar kemur í ljós). 2. Dcl Kb3 3. Db2 Kc4 4. Db4 Kd5 5. De6 Kc4 6. Dc5 Kb3 7. Db4 Kc2 8. Db2 Kxb2 9. Rxd3 Kc2 10. Rxf4 og vinnur 3. dæmi 1. c6 b2 2. c7 bl = D 3. c8 = D Ka7 4. Dc7 Ka8 (ekki 4......Ka6 vegna 5. Bc8 mát). 5. Bg2 Be4 6. Dh7 og vinnur. ef.... Be4 þá 2. c7 Bb7 3. Bg2 Ka7 4. Bxb7 Kxb7 5. Kd8 og vinnur 4. dæmi. 1. Dal Kh7 2. Dbl Kh8 3. Db2 Kh7 4. Dc2 Kh8 5. Dc3 Kh7 6. Dd3 Kh8 7. Dh3 Bh7 (ekki 7.... Dh7 vegna 8. Dc3 og mátar). 8. Dc3 Kg8 9. Dc8 Kf7 (ef 9... . Bf5 þá 10. Dxf5 og vinnur. 10. Bc5 og vinnur. 5. dæmi. 1. Rf5 Kxh5 2. Be8 Kg4 3. Re3 Bxe3 4. Bh5 Kxh5 5. Hxd5 Dxd5 Sv. er patt, jafntefli. 6. dæmi. 1. Rxd5 cxd5 2. Dc7 c4 (2.... Ke3 3.D2 2.... e5 3. Da5....) 3. Kd2 og mátar. ef 1.... exd5 2. f7Kc4 (2.... Ke3 3. f 8 = D....) 3. Db2 og mátar. ef 1. ... Kc4 2. Da7 Kd4 3. Dal og mátar.

x

Vestfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.