Vestfirðingur - 29.01.1975, Síða 4
ÞjófnaBur og spell-
í Fagranesinu
Aðfaranótt s!. fimmtudags, milli kl. 12 og 3 var framið
innbrot í Fagranesið, unnin þar mikil skemmdarverk og
stolið peningum, sígarettum, sælgæti og áfengi, sem átti að
fara vestur á fjörðu, en þangað ætlaði skipið á fimmtudags-
morgun.
Skólabörnum í Hnífsdal sýnt furðuiegt tillitsleysi:
Bíða skólabílsins í algerðri ó-
vissn í irosti og roki ú kersvæði
Kristján Jónasson, forstjóri
Djúpbátsins hf. skýrði Vest-
firðingi þannig frá þessum
atburði sl. föstudagsmorgun:
í fyrrinótt, einhvem tíma
milli 12 og 3 hafði innbrotið
verið framið og stolið því sem
stolið var. Þjófarnir höfðu
byrjað á að brjóta hengilás,
sem er fyrir ystudyrum, til
þess að komast inn í bygg-
inguna að aftan og inn í gang-
inn þar, og þaðan komust þeir
upp í brú, þar brutu þeir hurð
að kortaklefa skipstjórans,
svo að hún er aiveg ónýt, eftir
það komust þeir þangað inn,
en þar var að vísu ekkert,
sem þeir gátu hirt, nema þeir
rusluðu eitthvað í apótekinu,
en virðist ekkert hafa tekið
þaðan. Þeir fóru í eldhúsið,
tóku þar sígarettur, sælgæti
og þá peninga, sem þar voru.
Gæti þar verið um að ræða
tjón, sem inemur 20-30 þús.
kr. en það hefur ekki verið
kannað rækilega, sennilega
hefur þar verið stolið 8-9
lengjum af sígarettum og ein-
hverju af isælgæti auk pen-
inganna. Síðan hafa þeir farið
frammí ,brotið hengilás og
komist þar niður, þar hafa
þeir tekið peninga frá stýri-
manninum, sem em skila-
grein frá ferðum, liklega ekki
mikið, kannske 5000 kr. eða
rúmlega það. Þar hafa þeir
ætlað að fara inn í annan
k'lefa í viðbót, en hann var
læstur svo að þeir komust
ekki inn í hann en brutu hurð-
ina mikið. Svigrúm er heldur
lítið til að brjóta þar upp,
vegna þess hve gangurinn er
þröngur og þeir hafa ekki
getað tekið tilhlaupa á hurð-
ina. Svo hafa þeir farið í lest-
ina og tekið þaðan úr póst-
sendingu 11 pakka af áfemgi,
sem átti að fara vestur, lík-
lega 50 flöskur. Þelr hafa
látið við það búið standa.
í látunum uppi í brúnni
skemmdu þeir ratarinn, eitt-
hvað en sem betur fer virtist
hann vera í lagi að því leyti,
að hann sýndi mynd, og er
því nothæfur.
Magnið, sem þeir hafa hirt
þarna, virðast þeir hafa borið
upp í ganginn í Edinborg, og
staflað því þar, en þar voru
för eftir kassa, síðan hafa
'þeir farið með þýfið þaðan,
annaðhvort í bíl eða á annan
hátt.
Auk þessa sagði Kristján,
að þeir hefðu opnað gúmmí-
bátana, en í ljós kom, að þeir
voru, sem betur fór, ekki
skemmdir.
Það var kl. 3 um nóttina,
sem stýrimaður kom um borð
og sá hvað orðið var, en hann
ætlaði að sofa þar þangað tii
báturinn færi vestur. Um kl.
12 hafði vélstjórinn verið um
borð til eftirlits, en sá þá
engin vegsummerki.
Framhald á 3. síðu
Dæmalaust sleifarlag og í
raun og veru mesta ófremdar-
ástand hefur verið á flutningi
skólabarna úr Hnífsdal til
ísafjarðar, en þar er nær ein-
göngu um að ræða börn sem
stunda nám í Gagnfræðaskól-
anum á ísafirði.
Frá því þessir flutningar
fyrst hófust, hafa þeir verið
meiri og minni vanköntum
bundnir, einkum vegna þess
að börnin voru ekki látin vita
um ferðir skólabílsins, þegar
vafi lék á að hann kæmist
vegna ófærðar, óveðurs eða
af öðrum ástæðum, og þá
orðið að bíða hans tímum
saman í algerðri óvissu. Óveð-
ursdagana 13.-15. þ.m. keyrði
þó um þverbak í þessu efni,
þá þurftu börnin að bíða á
bersvæði í ailt að 9 stiga
frosti og 12 stiga veðurofsa,
án þess að hafa hugmynd um
hvort bíllinn kæmi eða kæmi
ekki.
Hnífsdælingar, sem börn
eiga í skólanum, eru mjög
óánægðir með þetta ástand,
hafa nokkrir þeirra rætt við þá
aðila, sem hlut eiga að máli,
en engar úrbætur fengið. Op-
inberlega hafa þeir ekki
minnst á málið fyrr en nú, að
kona í Hnífsdal, sem barn á
í skólanum, hefur ekki getað
þagað lengur og beðið Vest-
firðing fyrir eftirfarandi um-
kvörtun. Hún segir:
Ég get ekki lengur orða
bundist yfir því tillitsleysi
sem skólabörnum héðan úr
Hnífsdal er sýnt í Gagnfræða-
skólanum á ísafirði. Út yfir
allit tók í iþvi óveðri sem var
dagana 13., 14. og 15. janúar.
Á mánudagsmorgun, þann 13.,
var sagt 9 stiga frost og 12
vindstig. Þá biðu börnin í
20-30 mínútur eftir skólabíln-
um, en hanm kom þá og í
skólann var farið þrátt fyrir
erfiða færð og óveður. Á þrið-
judag var veður ekki betra.
Þá var beðið eftir að heyra í
útvarpi auglýsingu um lokun
skólains eða ferðir hingað, en
enginn kom. Þá var talið víst
að kennsla yrði og eðlilegar
ferðir. Börnin fóru þá á venju-
legum tíma, sem er kl. 7.40 -
7.45 fh., og biðu til k'l. 8.20,
en ekki kom bíllinn og enginn
orðsending. Þá var ekki annað
að gera en að fara heim, enda
ekfci vanþörf á að velgja sér,
þar sem bíða þurfti á ber-
svæði. Á miðvikudag var kom-
ið sæmilegt veður, svo talið
var öruggt að kennsla yrði í
skólanum og skólabíllinn yrði
á venjulegum tíma. Börnin
biðu þá til kl. 8.30, en enginn
fcom bílinn. Seinna fréttist að
hann hefði komið kl. 9.30-10,
en það var bara enginn látinn
vita af þeirri ferð.
Það er engan veginn hægt
að fá vitneskju um ferðir bíls-
ins eða aninað þar að lútandi,
því það er aldrei að vita hver
er bílstjóri í það og það skipt-
ið. Við skólann er ekki hægt
að ná símasambandi fyrr en
kl. 8, a.m.k. svaraði enginn
er ég reyndi að hringja áður
nefndamorgna. Og nú spyr ég:
Finnst ekki flestum það
dæmalaust tillitsleysi að láta
börnin standa þrjá daga í röð
í 9 stiga froisti og roki, skýhs-
lauis í hálftíma til þrjúkorter,
þegar ekki þarf annað en eitt
símtai til Reykjavíkur til að
koma til þeirra orðsendingu?
Það finnst okkur foreldrum
þeirra að minnstakosti.
vting innlendra orkugjafa
stað olíu
Tveir þingmenn Alþýðubandalagsins Magnús Kjartansson
og Lúðvík Jósepsson, hafa lagt fram á alþingi eftirfarandi
tillögu til þingsályktunar:
Alþingi álvktar að skora á ríkisstjórnina að láta fullgera
endanlega áætlun um nýtingu inlendra orkugjafa í stað
innflutrar olíu og nái áætlunin jafnt til framkvæmda sem
fjármögnunar. Verði áætlunin við það miðuð að lokið verði
við jarðvarmaveitur, þar sem þær eru hagkvæmar, á árinu
1977, og að fyrir lok þessa áratugs eigi landsmenn kost á
nægri raforku til húshitunar og annarra þarfa. í áætluninni
verði ákveðnar virkjanir, samtenging allra orkuveitusvæða
landsins og brevting á dreifikerfum til að ná þessu marki,
enn fremur árleg fjármögnun með innlendum sparnaði og
erlendum lántökum.
Töldu nýtingu innlendra
orkulinda þjóðhagslega
óhagkvæma.
Á síðasta reglulega þingi
flutti þáverandi ríkisstjóm
ályktunartillögu um hliðstæð
markmið og hér er f jallað um.
Tillagan studdist við skýrslu
sem á alþingi var flutt um nýt-
ingu i'nnlendra orkugjafa í
stað olíu, en ýtarleg könnun
á því efni hafði verið framkv-
æmd af Verfræðiskrifstofu
Sigurðar Thoroddsen og Seðla-
bankanum að ósk iðnaðar-
ráðuneytisins. Skýrslur þessar
báru ljóslega með sér að þessi
markmið væru bæði þjóðhags-
lega hagkvæm og raunsæ.
Ályktunartillaga ríkisstjórn-
arinnar varð ekki útrædd, en
fulltrúar allra flokka lýstu
stuðningi við þau markmið
sem þar var gerð tillaga um.
Fyrir tæpum áratug var því
haldið fram af þáverandi
stjórnarvöldum að nýting inn-
lendra orkulinda væri að verða
þjóðhagslega óhagkvæm, aðrir
ódýrari og hagkvæmari orku-
gjafar mundu taka við. 1 sam-
ræmi við það var meira en
helmingi alirar raforkufram-
leiðsilu landsmanna ráðstafað
til erlends fyrirtækis fyrir
afar lágt verð sem haldast
skyldi óbreytt til ársins 1997.
Reynslan hefur nú stafest
hversu fráleitar þær kenn-
ingar voru og sú orkusala
sem þá var ákveðin. Þetta
hefur aldrei orðið augljósara
en eftir að olíukreppan hófst,
olía og aðrir hliðstæðir orku-
gjafar margfölduðust í verði
og reynslan leiddi í Ijós að
rafarkuframleiðsla í kjarnork-
uverum var margfalt áhættu-
samari og dýrari en menn
höfðu ímyndað sér.
Orkulindir íslendinga
verða æ dýrmætari.
Um það verður ekki lengur
deilt að orkulindir íslendinga
verða æ dýrmætari og geta á
ókomnum áratugum tryggt
landsmönnum vaxandi öryggi,
veimegun og sjálfræði. Nær-
tækasta og brýnasta verkefnið
er að tryggja landsmönnum
öllum næga orku til daglegra
þarfa sinna, þ.á.m. til húsa-
hitunar. Slík nýting jafngildir
verulegri gjaldeyrisöflun þar
sem hún dregur stórlega úr
innflutningi á æ dýrara elds-
neyti. Hún styrkir efnahags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar,
gerir hana óháðari pólitískum
átökum sem hlotist geta af
sívaxandi orkukreppu. Hún
eykur jafnrétti landsmanna og
jafnvægi í byggð um leið og
aflétt hefur verið því ástandi
að verulegur hluti landsins
búi við orkuskort. Því telja
flutningsmenn að þetta verk-
efni verði að hafa algeran
forgang á sviði orkumála
næstu árin; ráðstöfun orku
til annarra þarfa komi ekki til
greina ef hún rekst á þau
markmið að flýta svo sem
vinnuafl, fjármagn og aðrar
aðstæður leyfa nýtingu inn-
lendra orkugjafa í stað innfl-
utts eldsneytis og tryggja
jafna aðstöðu almennings í
öllum landshlutum.
Baráftu-
söngvar
Bandarískur söngvari, Joe
Glaiser var hér á ferð fyrir
nokkru ásamt aðstoðarmanni
og túlk. Joe Glaiser kom hing-
að til lands á vegum Alþýðu-
sambands íslands og söng
hér baráttusöngva banda-
rískra verkamanna. Hér á
ísafirði söng hann í báðum
frystiihúsunum og hafði auk
þesis almenna söngskemmtun
í Templarahúsinu. Mörg af
lögunum og ljóðunum, sem
hann söng, hafði hann sjálfur
samið en aðrir voru eldri og
eftir aðra. Söngvarinn lék
sjálfur undir á gítar. 1 Templ-
arahúsinu tóku margir áheyr-
endur undir sönginn. Söngv-
arnir voru allir á ensku en
auk þess söng hann eitt ísleskt
kvæði, Nú er frost á fróni.
Söngskemmtanirnar voru aug-
lýstar á vegum Verkalýðs-
félagsins Baldurs. Aðgangur
var ókeypis.