Margt smátt - 01.04.1989, Blaðsíða 5
LOFTBRÚIN
Loftbrúin til
Suður-Súdan
Þúsundir hafa dáið í Suður-
Súdan í sex ára langri borgara-
styrjöld, sem nú hefur leitt til
hungursneyðar.
Ástandið í Suður-Súdan hef-
irr verið mjög slæmt undanfar-
ið. Talið er að allt að 3 milljón-
ir manna hafi orðið að flýja
heimkynni sín vegna borgara-
styrjaldarinnar milli stjórnar-
hersins, sem berst fyrir samein-
uðu Súdan og uppreisnarhreyf-
ingarinnar SPLA, sem berst fyr-
ir meira sjálfstæði handa Suð-
ur-Súdan.
Það eru aðeins 33 síðan Súd-
an fékk sjálfstæði, en á þessum
stutta tíma hafa tvær langvinn-
ar borgarastyrjaldir verið háðar
í landinu. Sú fyrri stóð yfir allt
til ársins 1972, en sú síðari
braust út árið 1983. Skýringa á
styrjöldinni er að leita í átök-
um milli arabískrar menningar
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi
í Norður-Súdan og afrískrar
menningar í Suður-Súdan.
Sömuleiðis milli múslíma í
norðri og kristinna og afrískra
trúarbragða í suðri. Og milli
hinna efnameiri í norðri og
hinna fátækari í suðri. Síðast
en ekki síst snúast átökin um
miklar náttúruauðlindir í suð-
urhluta landsins.
Stjórnarherinn hefur tögl og
hagldir í stærri bæjum og borg-
um í S-Súdan, en SPLA eru ráð-
andi í dreifbýlinu. Báðir aðilar
hafa gerst sekir um ofbeldi og
hryðjuverk. Flóttamennirnir
sem streyma til flóttamanna-
búðanna hafa margir hverjir
orðið fyrir og orðið vitni að
morðum, ránum, nauðgunum
og barsmíðum í þorpunum.
Flóttinn frá sveitum og þorp-
um til bæjanna hefur kostað
mörg mannslíf. Þúsundir hafa
dáið úr hungri og sjúkdómum
á leiðinni. En flóttamennirnir
eiga ekki annarra kosta völ.
Styrjöldin hefur hrakið stöðugt
fleiri bændur frá jörðum sín-
um, uppskerunni hefur verið
spillt og fjöldi þorpa og bæja
hafa einangrast og íbúar þeirra
geta litla björg sér veitt.
Það hefur reynst erfitt að
koma matvælum og öðrum
nauðsynjum til fórnarlamba
borgarastyrjaldarinnar. Land-
leiðin er of hættuleg, flutn-
ingabflar sem ekið hafa um
þjóðvegina hafa orðið fyrir
skotárásum. Og nú er regntím-
inn að hefjast og þá minnka
enn vonir manna um að hægt
verði að senda aðstoð landleið-
ina.
Þess vegna var ákveðið fyrr í
vetur að hefjast handa um að
flytja hjálpargögn flugleiðis frá
í
V
■H
Nairobi í Kenya til Juba í Suð-
ur-Súdan. Fyrsta flugvélin fór
16. nóv. 1988. Það er Lúth-
erska heimssambandið sem
stendur að baki loftbrúarinnar,
en ýmsar kirkjulegar hjálpar-
stofnanir taka þátt í kostnað-
inum, þar á meðal Hjálpar-
stofnun kirkjunnar á íslandi.
Hjálpin barst á sfðustu
stundu. Síðustu vikurnar áður
en loftbrúnni var komið upp,
dóu um 20 manns á viku úr
hungri í Juba. í bænum eru
venjulega um 100.000 íbúar,
en nú hafa allt að 150.000
flóttamenn bæst í hópinn. í
bænum er alger vöruskortur,
hið eina sem kemur í veg fyrir
ægilega hungursneyð eru mat-
vælin sem berast með Herkú-
les-vélum hjálparstofnananna.
Flogið er með matvæli tvisv-
ar á dag tiljuba. í hverri ferð
eru flutt 16 tonn af matvælum.
í búarnir sýna mikla samstöðu.
Börn og veikburða gamal-
menni fá fyrst mat og þeir full-
orðnu það sem eftir verður.
Hver einstaklingur fær ekki
meira en 200 grömm á dag og
er það algert lágmark. Nauð-
synlegt er að auka matarsend-
ingarnar og sömuleiðis að
reyna aö koma matvælum til
fleiri staða í Suður-Súdan, þar
sem ástandið er enn verra en f
Juba.
Nýjustu fréttir herma að frið-
ur milli stjórnvalda og SPLA sé
nú í sjónmáli. En íbúar S-Súdan
búa áfram við mikinn skort og
öryggisleysi um framtíðina.
Matarsendingarnar verða því
að halda áfram að berast til
nauðstaddra í S-Súdan þangað
til afkoma þeirra verður tryggð
á annan hátt.