Ólafsfirðingur - 15.01.1949, Síða 2

Ólafsfirðingur - 15.01.1949, Síða 2
2 ÓLAFSFIRÐINGUR Hitt og þetta IÆtlunin er að í hverju blaði verði eitthvað rabbað svona um daginn og ( veginn, og er það eindregin ósk J okkar að lesendur sendi okkur línu í eins oft og þeir geta og munum við ; svo koma því á framfæri hér í blað- ( inu undir þessari fyrirsögn. — Þeir Sigmundur Jónsson og Þorsteinn ( Jónsson, Ólafsfirði, munu taka á móti bréfum þessu varðandi. ( Píanó, Píanó! Eins og endranær var mikið um skemmt- anir og gleðskap um jólin hér í Ólafsfirði. Menn skemmtu sér með því að fara í „bíó“, horfa á sprenghlægilegan sjónleik og svo auðvitað með því að dansa. Var það eink- um yngra fólkið, sem notfærði sér þá skemmtun, en þó tók margt af eldra fólk- inu þátt í þessum dansleikjum um jólin líka. Þetta eru mjög ánægjulegar skemmt- anir og mikið fjör oft á tíðum, enda gera allir sitt til, svo að allir skemmti sér, þrátt fyrir harla léleg skilyrði á sumum sviðum, sem samkomuhúsið hefir upp á að bjóða. Þéð er til dæmis eitt fyrir sig, að ekki skuli vera þar til neitt, sem hægt væri að nefna hljóðfæri. Samkomuhúsið hefir aldrei átt svo mikið sem orgel-ræfil, sem hægt væri að nota til þess að leika undir á sÖng- skemmtunum. Alltaf hefir fólk neyðst til að hlaupa út og suður um allan bæinn og biðja einhvern góðviljaðan mann eða konu að gjöra nú svo vel að lána þeim píanó eða orgel, því að þessi eða liinn hafi lofað að syngja einsöng, en nú vanti bara eitthvað hljóðfæri til að leika undir á. Þetta er alveg óviðunandi ástand. Samkomuhúsið verður að eignast sitt píanó, sem það getur leigt með húsinu. Þegar minnzt var á þetta hérna áður fyrr, var vanaviðkvæðið, að það væri svo kalt í húsinu, að ekkert hljóðfæri þyldi það. (Skárri var það nú kuldinn). En nú er varla hægt að bera því við, að kuldinn ráði ríkj- um í samkomuhúsinu, eftir að hin marg- Hyað líður beinamjöls- yerksmiðjunni? í undirbúningi hefur verið að koma upp beinamjölsverksmiðju hér í Ólafsfirði. Það er enginn hégómi og hefði fyrr mátt vera um það hugsað. En hvað lýður svo þessu nauðsynjamáli, og hvað hefur verið gert í því? Spyr sá er ekki veit. Sofnaði málið í fyrra, þegar Jakob steypti undan ykkur vélunum? Og er það satt, að það hafi komið til mála að reist yrði verk- smiðja, sem aðeins ynni úr beinum, en gæti ekki unnið úr síld og síldarúrgangi, sem þó virðist vera stórt atriði í þessu máli? Vonast eftir svari í næsta blaði. Fáfróður. lofaða hitaveita hitar upp hvert hús. Áreið- anlega er nógu heitt í samkomuhúsinu, núna að minnsta kosti, hvað sem áður var, svo að ef viljann ekki vantar er hægt að búast við því, að á þessu eða næsta ári ljúki þessari hvimleiðu betlistarfsemi á hljóð- færaeigendum í Ólafsfirði, og myndu víst fáir gráta þótt hún legðist niður. „Heimur versnandi fer“. „Öllu fer aítur, nú sjást ekki einu sinni dularbúningar," sagði maðurinn. Hvort það sé nú beint svo mikil afturför, þótt menn hafi látið af þeim leik að klæðast allskyns dulargerfum, þegar rökkva tók, og reyna að hræða náungann, skal ég ekki fjöl- yrða um, en hitt er annað mál, hvort ekki sé nokkuð til í því, að um einhverja aftur- för sé að ræða í sumum efnum. Hér fyrir eina tíð, gerðu ungir menn í Ólafsfirði sér það til skemmtunar, þegar allmikið hafði snjóað á götur bæjarins, að þeir tóku sér skóflu í hönd og mokuðu af götunum í sjálfboðavinnu. Þetta var mikið verk, en svo mátti heita, að allir, sem á annað borð gátu mokað, hafi tekið þátt í þessari vinnu. Það þótti hrópleg skömm og aumingjaháttur að sker- ast úr leik, ef um fullfrískan mann var að ræða. Það var að sjálfsögðu álit alls þorra ís- lenzku þjóðarinnar, þá er lýðveldið var stofnað á Islandi fyrir rúmum 4 árum, að þjóðin og forráðamenn hennar væru svo andlega þroskaðir, að þeim tækist í samein- ingu að yfirstíga smá-erfiðleika, sem að kynnu að steðja. Nú eru að sönnu ýms vandamál, sem liggja við dyr þjóðarinnar og krefjast úr- lausnar. Samt er ástandið engan veginn svo slæmt, sem margir vilja vera láta, og firn eru það, hvað fólk miklar nú fyrir sér smá- muni eina. Margt er það samt, sem þarf að breytast til batnaðar, því að mistök og misfellur virðast fara vaxandi með hverjum degi sem líður bæði meðal stjórnenda landsins og þegna þess. Sumt af því sem aflaga fer virðist óvið- ráðanlegt, en án efa er margt sem betur má fara. Allir gera kröfur, en enginn uppfyllir hin allra minnstu skilyrði, til þess að þær nái fram að ganga, eða nokkuð sé með þær gert. Fyrsta krafa: Úr erfiðleikum og vanda verður ekki komizt með því að gera einhliða kröfur til annarra. Ég man að eitt sinn, er verið var að moka göturnar, fóru menn að tala um, hversvegna N. N. kæmi ekki í vinnuna, en er menn voru að ræða þetta sést hann koma sunnan Aðalgötuna. Hann staðnæmdist við syðsta hópinn þar og er spurður um ástæðu fyrir því að hann komi ekki með skóflu, en hann kvaðst ekki hafa nennt því. Var joá ekki að sökum að spyrja. Tóku menn hann þar á loft og „tolleruðu" hann langt út í skafl svo að rétt sá í fæturna, en hitt allt í kafi. Ekki voru viðtökurnar betri sem hann fékk hjá næsta hóp, enda mun honum hafa þótt nóg um, því að hann snéri heim aftur við svo búið. Þetta er aðeins eitt dæmi um, hvernig fyrir þeim fór, sem ætluðu að humma fram af sér þessa vinnu. Það þótti enginn maður með mönnum, sem ekki tók þátt í henni og smástrákarnir hlökkuðu til, þegar þeir fengju að vera með. Þessi sjálfboðaliðsvinna vakti að vonum athygli ókunnugra, og eitt sinn birtist löng grein í „Vísi“ eftir Theódór Árnason um þetta, þar sem hann fór mörgum lofsyrðum um þann þegnskap, sem Ólafsfirðingar sýndu með þessu. En hvernig er nú komið þessum mikla dugnaði ungra manna í Ólafsfirði? Hvernig eru göturnar núna? Varla vantar verkefnið, því að nógur er snjórinn. Ég ætla ekki að brigzla sveitung- um mínum um leti eða framtaksleysi, held- ur ef til vill um gleymsku eða skeytingar- leysi. Vonandi að þetta sé rétt hjá mér og nú er ég búinn að minna menn á þetta svo að allt er í lagi. Það verður ekki dónalegt að spóka sig úti á götunum næstu dagana. Þegnarnir verða fyrst og fremst að gera kröfur til sjálfra sín í samræmi við borgara- legar skyldur við þjóðfélagið og taka á sig þá ábyrgð, sem þeim heiðri fylgir að vera þegn í frjálsu menningarríki. Þegar einstaklingurinn hefur uppfyllt sín- ar borgaralegu skyldur við þjóðfélagið, get- ur hann gert sínar kröfur, og hikar þá ekki við að gagnrína stjórn og framkvæmdavald ríkisins, sem í dag er því miður ekki vel að skapi allra Islendinga. Onnur krafa: Ríkisstjórn og Alþingi verða að leggja niður allt kák og vettlingatök í öllum þeim málum, sem varða heill og hag ríkis og þjóðar, ef þessir aðilar hugsa sér að sigrast á erfiðleikunum og öðlast virðingu þjóðar- innar á ný, en sú virðing virðist því miður vera orðin heldur lítil, svo að ekki sé meira sagt. Þriðja krafa: Næst verðum við að gera kröfu til þeirra stjórnmálaflokka, sem þátt taka í ríkisstjórn á hverjum tíma og ganga til samstarfs við aðra flokka um stjórn landsins, að þeir geri það með einhug og þeim drengskap að þeir Frh. á bls. 4. Allir gera kröfur. - Við líka.

x

Ólafsfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafsfirðingur
https://timarit.is/publication/1944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.