Ólafsfirðingur - 15.01.1949, Síða 4
4
ÓLAFSFIRÐINGUR
ALLIR GERA KRÖFUR. —
VIÐ LÍKA.
Frh. af bls. 2.
leiki engan loddaraleik meðan stjórnarsam-
vinna helzt. Einnig verður að krefjast þess
að stjórnmálaflokkarnir leggi niður þann
ósið, sem sagt er að þeir hafi tekið upp, og
þá vitanlega á kostnað ríkis og þjóðar, það
er stofnun hinna mörgu embætta, ráða og
nefnda, sem oítast virðast þarflitlar, og skip-
aðar mönnum talsvert af handahófi, en ekki
af hæfni til starfsins. Þetta verður um lram
allt að stöðva, því að í slíkum aðgerðum ligg-
ur stór hætta fyrir ríki og þjóð. Þetta verður
smánarblettur á íslenzkum stjórnmála
mönnum, og á þessu hefur allur almenn-
ingur í öllum stjórnmálaflokkum megnustu
andstyggð.
Fjórða krafa:
Starfsmenn ríkisins eru nú orðnir svo
margir og hafa svo víðtæk áhrif á allt at-
hafnalíf þjóðarinnar, að minnsta krafa, sem
hægt er að gera til þeirra, er eitthvað á
þessa leið: — Að þeir reyni að koma fram
við alþýðu manna, sem til þeirra þarf að
leyta, eins og þeir væru af jarðneskum upp-
runa, en ekki sem líkamningar í andaheimi,
sem guía upp, ef til þeirra þarf að taka í
málum, sem heyra undir starfssvið þeirra.
Því að hvað höfum við að gera með ríkis-
starfsmenn. fyrir ofan stjörnur og tungl?
Hér hafa verið bornar fram nokkrar þýð-
ingarmiklar kröfur, þær eru fáar og ekki ó-
sanngjarnar. Reyndar virðist sem óþarfi sé,
að slíkar kröfur þurfi að gera, þar sem það
sýnist liggja í augum uppi, að i þeim felist
ekki annað en sjálfsagðar skyldur viðkom-
andi aðila. Ef kröfurnar eiga rétt á sér, gera
þær ekki annað en minna á vanræktar
skyldur, og tilganginum er náð, ef áminn-
ingin verður til eftirbreytni. A+B
*
ÚTVEGSMÁL ÓLAFSFIRÐINGA
Frh. af bls. 3.
á þetta, og þrátt fyrir að trillurnar hafa gert
það sæmilegt þessi árin og það efli trú
þeirra, sem hana hafa, —• þá vildi ég meira
að segja vara við of mikilli bjartsýni á
trilluútgerðina og atvinnu þá, sem hún
skapar auk annarra byrða, sem útgerð þessa
bæjar lilýtur að verða að bera er lengra
líður.
Þó að ég sé vantrúaður á trilluútgerðina
til að standa undir öllum þörfum vorum í
sjávarútvegsmálum og veita næga atvinnu
til sjós og lands og bera þær byrðar, sem
útgerð þessa bæjar kemur til með að þurfa
að bera, þá er reynsla þessara ára ekki glæsi-
leg af annarri útgerð til að byggja traust
sitt á. Það vitum við líka öll, sem vaxið höf-
um upp í útgerðarþorpi og fylgzt með gangi
útgerðarinnar, að þar skiptast á skin og
skúrir. Hitt er svo það, sem mestu máli
skiptir, að möguleikarnir hljóta að vera
mun meiri fyrir stærri báta, þar sem fjöl-
breyttni í veiðiaðferðum, útbúnaður allur
og aðbúnaður er slíkur, að skilyrði til sjó-
sóknar ef um það væri að ræða er ekki
saman að jafna.
Óhöpp og aflabrestur þetta árið eða hitt,
er ekkert aðalatriði, þegar um stefnu út-
vegsmálanna er að ræða, — heldur það,
hvaða líkur eru til að þessi stefnan eða hin,
þ. e. í þessu tilfelli úgerð trillubáta eða
stærri báta, verði heppilegri og happadrýgri
þegar til lengdar lætur, ekki einasta fyrir
útvegsmenn og sjómenn, heldur og fyrir
byggðarlagið.
Eg fyrir mitt leyti er í engum vaia, hvor
stefnan verður heilladrýgri, og ástandið eins
og það er nú má ekki lengi haldast.
Framhald í næsta blaði.
*
Giftingar og trúlofanir.
Á jóladag voru gefin saman í hjónaband
af séra Ingólfi Þorvaldssyni, ungfrú Helga
Eðvaldsdóttir, Siglufirði og Magnús Stefáns-
son, iðnnemi, Ólafsf. Heimili ungu hjón-
anna verður að Aðalgötu 10 hér í bæ.
Á nýjársdag voru gefin saman í hjóna-
band af séra Ingólfi Þorvaldssyni, ungfrú
Jóhanna Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Sig-
urbjörnsson, vélstjóri. Heimili ungu hjón-
anna er að Vesturgötu 1.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína Hall-
dóra Gísladóttir, Hóli og Hannes Sigurðs-
son, Vémundastöðum.
Nýtt félag.
Nýlega var stofnað leikfélag hér í bæn-
um og nefnist það „Leikfélag Ólafsfjarðar".
Mjiig mikill áhugi virðist ríkja hér fyrir
leikstarfsemi, sem sjá má af því að 59 manns
innrituðust í félagið á stofnfundi. Ætlun fé-
lagsins mun fyrst og fremst vera sú, að hafa
forgöngu um leiksýningar hér i bæ.
Það er gleðilegt til þess að vita, að þetta
þarfa menningarfélag skyldi vera stofnað,
enda eðlilegt og sjálfsagt, þar sem hér eru
til mjög góðir kraftar í þágu leikstarfsem-
innar. (
Stjórn félagsins skipa eftirtaldir menn:
Formaður: Ragnar Þorsteinsson, kennari.
Ritari: Björn Stefánsson, kennari. Gjald-
keri: Sigmundur Jónss., málaranemi. Með-
stjórnendur frú Dalla Jónsdóttir, Gunnl.
Jónsson, framkvæmdastjóri og frk. Hólm-
íríður Magnúsdóttir.
Fyrsti sjónleikur félagsins mun verða
„Saklausi svallarinn", eftir Arnold & Bach.
„Ólafsfirðingur" óskar félaginu alls góðs
á komandi starfsárum.
Höfnin.
Unnið hefur verið við hafnargerðina í
sumar og haust, en vegna erfiðra veðurskil-
yrða hefur ekki tekizt að ljúka því verki,
sem ráðgert hafði verið.
Árangur hafnarmannvirkisins sjáum við
nú glöggt, og þó langt sé í Iand að verkinu
verði lokið er munurinn þó mikill og við
fögnum því, jafnframt sem við óskum eftir
að verkinu verði hraðað svo sem hægt er.
ATHUGIÐ!
Þeir, sem fá þetta blað sent til sín, eru
vinsamlegast beðnir að athuga að end-
ursenda blaðið hið fyrsta, ef þeir óska
ekki að gerast áskrifendur.
Afgreiðsla blaðsins er hjá Ásgrími
Hartmannssyni og mun hann ásamt rit-
stjórunum og þeim Sigmundi Jónssyni
og Þorsteini Jónssyni veita móttöku efni
í blaðið og öðru er það varðar.
Bókaverzlun Brynjólfs Sveinssonar
Ólafsfirði.
hýður ykkur ávallt gott úrval af
allskonar islenzkum hókum.
MUNIÐ, að góð bók er gulls ígildi.
aqíslands?
annast brunatryggingar á hverskonar
innanstokksmunum og innbúi.
Enginn veit hvar eldur veldur næst
tjóni.
Brunat'/yggið eigur ykkar strax i dag, á morgun verður það kannske of semt.
UMBOÐSMAÐUR:
Brynjólfur Sveinsson,
Ólafsfirði
Sjóvátnjqqi