Þingey - 01.05.1945, Blaðsíða 3
ÞINGEY
3
ÞINGEY
MÁNAÐARBLAÐ
Utgefendur:
Sósíalistafélögin í Þingeyjarsýslu.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Páll Kristjánsson,
Valdimar Hólm HallstaS.
Afgreiðslumaður:
Jóhannes GuSnason.
Utanáskrift blaðsins er:
Mánaðarblaðið Þingey, Húsavík.
Prentsmiðja Björns jónssonar h.f.
1. maí
í dag er 1. maí. Um hin sögn-
legu rök, sem liggja til grund-
vallar því, að þessi dagur sér-
staklaga var valinn, sem bar-
áttudagur verkalýðs og vinnandi
stétta er óþarfi að eyða löngu
máli. Aratuga harðsótta bar-
áttu hefir það kostað íslenzkan
verkalýð að fá þennan dag við-
urkenndan af valdhöfum þjóð-
arinnar. Saga þeirrar haráttu
er þrungin af sigrum og ósigr-
um, fórnum og fyrirheitum, sem
seint munu fyrnast.
A þessum hátíðadegi verka-
lýðsins er meiri þróttur í ís-
lenzkri verklýshreyfingu en
nokkru sinni fyrr, þess vegna
er 1. maí að þessu sinni dagur
meiri og voldugri fyrirheita og
dagur meiri og voldugri verk-
efna en nokkur 1. maí hefir
verið, síðan íslenzkur verkalýð-
ur tók að halda þann dag hátíð-
legan. 1 dag skynjar verkalýð-
urinn köllun sína og hlutverk
í þjóðfélaginu á Ijósari hátt en
áður, það hlutverk að vera leið-
andi kraftur til sköpunar full-
komnara þjóðfélags, meiri far-
sældar, meira öryggis.
í dag er íslenzkur verkalýður
fullur aðdáunar á hreysti og
þrautseigju verkalýðs þeirra
landa, sem villimennska auð-
valdsins hefir gert að ægileg-
asta blóðvelli mannkynssögunn-
ar og heitir þeim verkalýð að-
stoð sinni til að binda um sárin
og til að binda auðvaldinu hel-
skó.
í dag heitir íslenzkur verka-
lýður því að varðveita sjálfstæði
Islands og tryggja öryggi
íslenzkrar alþýðu á ókomnum
tíma.
í dag heitir verkalýðurinn
því að taka höndum saman við
smáframleiðendur og aðrar
vinnandi stéttir um nýsköpun
íslenzkra atvinnuvega og eflingu
íslenzks menningarlífs.
í dag heitir verkalýðurinn
því að gera ísland að landi al-
þýðusamtakanna.
tR P0KAH0RN1NU
Fundafréttir
/
Þriðjudagskvöldið ]0. apríl
s. 1. var að tilhlutun hrepps-
nefndar Húsavíkurhrepps hald-
inn almennur þorpsfundur í
Húsavík.
1. Fundurinn hófst með því,
að oddvitinn Karl Kristjánsson
gerði grein fyrir viðhorfi hafn-
arbótamálsins í Húsavík, en
hann hafði falið sjálfum sér að
fara til Reykjavíkur undir því
yfirskini að vinna að velferð
og hraðgengi framfaramála
Húsavíkur. -— Annars er al-
menningi í Húsavík það vel
kunnugt að störf Karls Krist-
jánssonar hafa fremur miðað að
því að draga úr framkvæmdum
framfara- og
þorpsins, heldur en
þau fram. — I
oddvita kom ýmislegt fram, sem
vakti athygli og andúð. T. d.
skal nefna það hversu mikill
seinagangur og sleifarlag virð-
ist vera á undirbúningi mála í
vitamálaskrifstofunni, þar sem
áætlun fyrir framhaldsvinnu
hafnargarðsins í Húsavík var
ekki fullgerð í marz-hyrjun,
þegar oddviti kom suður. Enn-
fremur hafði vitamálaskrifstof-
an í samráði við oddvita, samið
við Kaupfélag Þingeyinga um
efniskaup til mannvirkisins, án
þess að leita tilboða hjá öðrum,
svo vitað sé. Skipti hafnargerð-
arinnar við K. Þ. s. 1. sumar
virðast þó ekki hafa verið sem
hagkvæmust, því sementið var
sótt á bílum til Akureyrar og
ekki örar en það, að stundum
stóð á steypuefninu. Ekki er
heldur vitað annað en efnis-
kaupin hjá K. Þ. hafi verið með
smásöluverði.
Um sementsmálið urðu all-
langar og heitar umræður.
Deildu sósialistar hart á oddvita
fyrir skort hagkvæmrar fyrir-
hyggju í máli þessu sem öðrum,
2n Karl sem líka er varaform. í
újórn K. Þ.'ög'Þörh'alhtr Sig-
tryggsson kaupfélagsstjóri, sem
einnig er varaoddviti hreppsins
reyndu að hera fram varnir fyr-
ir málstað sínum, enda þótt þeir
væru í miklum minnihluta á
fundinum.
2. Næsta mál á dagskrá var
bátakaup. í Húsavík eru fáir
hátar og smáir og ófullnægjandi.
Húsvíkingum er því mikil nauð-
syn á hættum og auknum skipa-
kosti og því fremur sem ráðast
þarf í margar kostnaðarsamar
framkvæmdir á næstunni og
lielzt allar í einu vegna undan-
farandi kyrrstöðu þorpsmála í
höndum núverandi oddvita.
Hafði Samvinnufélag útgerð-
ar- og sjómanna í Húsavík skor-
að á hreppsnefndina að panta
háta og síðar har Þórður Egg-
ertsson fulltrúi jafnaðarmanna
í hreppsnefndinni fram svipaða
tillögu á hreppsnefndarfundi
studda af sósialistum. I tilefui
þeirrar tillögu kom nú mál þetta
fyrir almennan þorpsfund.Hafði
oddviti framsögu og mátti glögg-
lega greina að honum fannst
lítið liggja á að panta hátana.
Kom hann fram með tillögu þess
efnis að fresta málinu og leita
Idutafjárloforða í bátana áður
en ákvörðun væri tekin.
Að tillagan er ekki hirt hér
vitinn vildi ekki láta formann
verkamannafélagsins í Húsavík
hafa afrit af henni. Þvi næst har
Þórður Eggertsson fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Almennur horgarafundur í
Húsavík haldinn að tilhlutun
hreppspefndar Húsav íkur-
lnepps, þriðjudaginn 10. apríl
1945 samþykkir að skora á
hreppsnefnd Húsavíkurhrepps,
að senda nú þegar beiðni til Ný-
Ijyggingaráðs um tvo 55 lesta
háta af hátum þeim, er ríkis-
stjórnin hyggst að láta hyggja
á þessu og næsta ári.“
Um tillögurnar urðu hvassar
umræður, sem stóðu þar til kl.
að verða 12 um nóttina, en þá
hafði oddviti það fram að fresta
fundi eftir að hafa neitað að
hera tillögurnar undir atkvæði
og sniðgengið venjuleg funda-
sköp.
Mánudagskvöldið 16. apríl
hófst fundur á ný. Gat oddviti
þess að tillaga sín væri nú úr
sögunni. Hann vildi þó ekki taka
hana aftur á fyrri fundinum, en
um það hafði konrið ósk frá
Páli Kristjáns'syni. Var tillaga
Þórðar ein til umræðu, en odd-
viti gat þess að hann mundi
koma með viðbótartillögu varð-
andi hlutafjársöfnun til háta-
kaupanna. Vildu Karl og mál-
þófsmenn hans að einstaklingar
ættu hátana og rækju þá. Þórð-
ur Eggertsson lagði aftur á móti
til að hreppurinn keypti hátana
og annaðist rekstur þeirra og
það sagðist hann líka eiga við
með tillögunni. Fylgdu álmga-
menn þorpsins Þórði fast að
máli, enda var tillagan sam-
þykkt gegn einu atkvæði.
Þá las oddviti eftirfarandi
viðhótartillögu, sem hann bar
svo undir atkvæði án þess að
gefa mönnum kost á að ræða
liana:
„Jafnframt lýsir fundurinn
yfir því, að hann telur rétt, að
hreppsnefndin leiti sem allra
fyrst hlutafjárframlaga til háta-
kaupanna.“
Tillögunni greiddu örfáir at-
kvæði.
3. Að lokum var lítilsháttar
minnst á rafmagnsmál Húsavík-
ur, en það mál verður rakið sér-
staklega hér í hlaðinu síðar.
II
Laúgardagskvöldið 21. apríl
s. 1. var haldinn fundur í Verka-
mannafélagi Húsavíkur. Voru
þar samþykktar lagahreytingar
og kosið trúnaðarmannaráð í
fyrsta sinn. Kosningu hlutu:
Geir Asnnmdsson, Baldur
Kristjánsson, Jóhannes Haralds-
son og Hallur Jónasson, ásamt
nreð stjórn félagsins.
A fundinum voru rædd at-
vinnumál Húsavíkur og vinnu-
miðlun í samhandi við þau.
Trúnaðarmannaráð kom sam-
an 23. f. m. Var þar samþykkt
að senda oddvita eftirfarandi
yfirlýsingu: Fundur í trúnaðar-
ráði V. H. 23. apríl 1945 lýsir
yfir f. h. verkamannafélagsins,
að hann leggur rika áherzlu á,
að hreppsnefnd Húsavíkur-
hrepps gæti þess að heimilis-
fastir Húsvíkingar sitji fyrir
húsnæði í þorpinu, og enn frem-
ur sé þess stranglega gætt að að-
komumenn séu ekki látnir hafa
vinnu í þorpinu, nema að þorps-
húum frágengnum, enda auglýst
opinber aðvörun til manna um
það að koma ekki hingað í at-
vinnuleit.
III
Mánudaginn 23. apríl s. 1. var
haldinn fundur í Húsavík til
þess að ræða um húsnæðisvand-
ræðin. Stofnað var Byggingar-
félag verkamanna í Húsavík og
samþykkt lög fyrir það.
Stofnendur voru 28. I stjórn
voru kosnir: Páll Kristjánsson
gjaldkeri, Magnús Jónsson rit-
ari, Geir Ásmundsson og Jón
Guðmundsson meðstjórnendur.
Lagt verður til að Hallur Jón-
isson verði af ráðherra skipað-
ar formaður félagsins.
Nýlega er látin hér í þorpinu
Guðrún Jónsdóttir 81 árs að
aldri. Guðrún sál. hafði dvalið
hér um langt skeið og eignast
marga vini og kunningja, sem
munu minnast hennar með virð-
ingu og þakklæti.
AUGLÝSIÐ í ÞINGEY.
menningarmála
að knýja
greinargerð
orðrétt er aðeins af því, að odd-
Fyrstu bækur HJARTAÁSÚTGÁFUNNAR eru að verða uppseldar. Tryggið yður þær í tíma.