Fylkir


Fylkir - 01.06.2024, Blaðsíða 2

Fylkir - 01.06.2024, Blaðsíða 2
2 FYLKIR - 1. maí 2024 Útgefandi: Eyjasýn ehf. fyrir hönd Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. Umbrot: Leturstofan Prentun: Stafræna Prentsmiðjan. Upplag: 1800 eintök. Ritnefnd: Eyþór Harðarson, ábm. Arnar Sigurmundsson Jarl Sigurgeirsson Thelma Hrund Kristjánsdóttir Gísli Stefánsson Fyrirtæki í uppsjávarveiðum og vinnslu hafa undanfarin misseri greint tækifæri til nýsköpunar í sjávarútvegi. Hefur þessi greining verið unnið af Félagi uppsjávar- iðnaðarins sem er félag þeirra fyrir- tækja hér á landi sem eru í útgerð og vinnslu á loðnu, makríl, síld og kolmuna. Á sama tíma hafði Þekk- ingarsetur Vestmannaeyja verið að vinna að metnaðarfullu þróunar- verkefni um möguleika á sjóeldi við suðurströndina , sem er stórt og mikið framtíðarverkefni. Þessu ransóknaverkefni sem var styrkt af Uppbyggingasjóði SASS lauk með viðamikilli skýrslu haustið 2022 og síðar kynningu á vegum ÞSV. Fjölmörg verkefni við að auka virði sjávarfangs hér á landi eru sífellt í gangi og ávallt verið að leita að nýjum tækifærum í sjávarútvegi. Á síðasta ári voru teknar upp viðræður milli stjórnenda ÞSV og forsvarsmanna uppsjávarfyrirtækja um að vinna að verkefni sem felur í sér að velja og þróa áfram bestu tækifærin í uppsjávariðnaði á Ís- landi. Þessum viðræðum lauk með samkomulagi í byrjun maí sl. sem felur ma. í sér að ráða sérstakan nýsköpunarstjóra sem staðsettur verður í Vestmannaeyjum. Í aug- lýsingu sem birst hefur í fjölmiðlum er greint nánar frá starfslýsingu og kröfum sem gerðar verða til þess sem ráðinn verður . Umsóknar- festur rennur út 30. maí 2024. Hér um mikið frumkvöðlastarf að ræða sem krefst í senn mikillar reynslu við að koma nýsköpunarverkefn- um frá þróunarstigi til verðmæta- sköpunar auk eru gerðar kröfur um drifkraft, hæfileika til að leiða saman frumkvöðla til samstarfs og hafa einnig að baki farsælt sam- starf með fjárfestum og hagaðilum. Þegar þetta er skrifað var umsóknar- frestur ekki liðinn en það skiptir gríðarlegu máli fyrir framhaldið að vel takist til með ráðningu og þá vinnu sem framundan er. Það var ekki sjálfgefið að koma á þessu samstarfi en mikill áhugi hagaðila sem koma að verkinu er sannarlega til staðar . Tryggvi Hjaltason form. stjórnar Þekkingar- seturs Vm. og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson í VSV , form. Félags uppsjávariðnaðarins leiddu þessa vinnu ásamt stjórnendum samn- ingaðila. AS Eins og eyjamenn þekkja vel er kostnaður okkar við hita, rafmagn og vatn mjög hár og hefur hækk- að um fjórðung að hundraði á innan við ári. Rekja má þetta til orkuskortsins í landinu sem hækk- að hefur orkuverð sem og þeirra bilana sem orðið hafa á innviðum þessu tengdu undanfarin ár. Flutningsgjöldin og framtíðin Stór hluti vandans eru þau flutn- ingsgjöld sem Landsnet, opin- bert fyrirtæki sem sér um flutning orkunnar milli landshluta, leggur á hverja kílóvattstund. Eftir því sem við flytjum meira rafmagn fáum við betra verð, en ef við spörum ork- una eins og gert er í varmadælu- stöðinni hækkar verðið. Hvatinn til sparnaðar á orku er því frekar takmarkaður í þeim orkuskorti sem kemur til með að vera viðvarandi næstu ár. Í ofan á lag má reikna með enn frekari hækkunum þegar orku- öryggi eyjanna hefur verið bætt með tveimur nýjum rafstrengjum. Við það verður ekki í boði að kaupa skerðanlegan orkuflutning sem er mun ódýrari en sá öruggi. Það kemur til með að ýta verðinu upp enn frekar nema að fjarvarmaveit- um þvert yfir landið verði tryggð kjör sem eru í samræmi við rekstr- arforsendur þeirra og tilgang. Fullt í gangi en ekkert að frétta Nýlega héldu HS Veitur íbúa- fund í Eldheimum, sjálfsagt með því markmiði að skýra sína hlið á ástandinu. Undirritaður sat þann fund og fannst margt ágætt koma þar fram en eins og á samgön- gufundinum sem haldinn var í Akóges fyrr í vor virtist fullt vera í gangi en samt ekkert að frétta. Það er verið að athuga þetta og hitt til að bæta ástandið en ekkert er fast í hendi. Úrbætur eða plástrar? Á fundinum kom fram að von væri á úrbótum í varmadælustöðinni sem gætu uppfyllt þarfir okkar hvað varðar húshitun allt árið og þannig geti stöðin náð markmið- um sínum um að lækka húshitun- arkostnaði í eyjum. Ég hef sjálfur haft samband við Orkusjóð og fengið það staðfest þar að fimmta vélin sé styrkhæf fyrir allt að 33% af kostnaðinum. Ekki kom þó fram á fundinum hvenær farið verður í þessar úrbætur. Þingið duglegra að setja lög en að losa úr snörum Þungir vegatálmar innan lagara- mmans sem snýr að orkuupp- byggingu eru ein helsta ástæða stöðnunarinnar. Þegar horft er í baksýnisspegilinn er það ljóst að það hefur verið furðu auðvelt fyrir þáverandi þingmenn að setja slík lög. Lög sem hafa þann tilgang að verja almenning gegn því sem kalla má skemmdu eplin en reyn- ast svo á ögurstundu vera fyrst og fremst heftandi fyrir þann mikla meirihluta sem ætlað var að verja. Það er ljóst í mínum augum að tengja þarf framhjá þessari vitleysu og það sem allra fyrst og það er aft- ur hlutverk þingmannanna. Verst er að ég hef takmarkaða trú á að það gerist í þessari ríkisstjórn. Við erum því klemmd í furðulega patt- stöðu sem ekki sér fyrir endann á. GISLI STEFÁNSSON BÆ JARFULLTRÚI OG FOR- MAÐUR SJÁLFSTÆÐISFÉLAGS VESTMANNAEYJA Klemmd inn í furðulega stöðu í orkumálum Nýsköpunarstjóri uppsjávariðnaðarins Sjómannadagsblað Vest- mannaeyja var dreift frítt á öll heimili í Vestmannaeyjum í vikunni líkt og undanfarin ár. Blaðið er undir nýrri ritstjórn Leturstofunnar, sem sér nú í fyrsta skipti um blaðið frá A til Ö. Hingað til hefur hún aðeins séð um umbrot og auglýsinga- sölu. Ritstjórn var að mestu í höndum Lindar Hrafnsdóttur sem einnig braut um blaðið. Farið er um víðan völl í efnistök- um líkt og vaninn er. Púlsinn er tekinn á nokkrum sjómönnum og sjómannskonum. Dætur sjó- manna eru spurðar útí hvernig var að alast upp með pabba á sjó. Hörður Sævaldsson veltir fyrir sér hvernig vekja má áhuga unga fólksins á sjómennsku. Stefán Jónsson í Skipalyftunni er í léttu spjalli en hann hef- ur þjónustað skipaflota Vest- mannaeyja í tugi ára. Þá er spjall við hjónin Einar Bjarna- son og Ester Ólafsdóttur sem hafa helgað sig sjávarútvegin- um. Spjall við Gísla Val Gíslason sem réði sig á skemmtiferða skip, Eykyndill fagnar 90 ára af- mæli og margt fleira. Forsíðuna prýðir mynd úr safni Harðar Sigurgeirssonar og má finna fleiri magnaðar myndir frá honum inni í blaðinu. Frá tilraunaveiðum Bjarna Sæmundssonar nálægt Eyjum á vegum ÞSV -Rauðátu ehf. 27. maí sl. - Verið að koma kari með rauðátu í kælilest skipsins. Ljósm Hörður Bald. Farið um víðan völl

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.