Fylkir - 01.06.2024, Side 4
Aðalfundur Sjómannafélags Jötuns
var haldinn 27. des. 2023. Á fund-
inum var gerð grein fyrir starfsemi
félagsins, ársreikningur samþykkt-
ur og kosið í stjórn og trúnaðarráð
félagsins.
Í stjórn Jötuns eiga nú sæti,
Kolbeinn Agnarsson, formað-
ur, Ríkharður Zoega Stefánsson,
varaform., Árni Þór Gunnarsson,
gjaldkeri, Sigurfinnur V. Sigur-
finnsson, ritari. Meðstjórnendur
eru Ingi Þór Arnarsson, Finnur Freyr
Harðarson, Eysteinn Gunnarsson
og Ingólfur Svavarsson. Skrifstofa
Jötuns er að Heiðarvegi 9 og veitir
Hulda Skarphéðinsdóttir henni for-
stöðu. Skipstjóra og stýrimanna-
félagið Verðandi er með skrifstofu
í sama húsnæði. Umfangsmestu
og stærstu málin síðustu miss-
eri eru kjarasamningar sjómanna
við SFS og tókst að lokum að gera
langtíma kjarasamning sem var
samþykktum hjá félagsmönnum
Sjómannasambands Íslands sem
Jötunn er aðili að. Vinna við gerð
þessa nýja langtíma kjarasamn-
ings hafði staðið yfir í langan tíma,
en loks tókst að ljúka því verki og
taldi Kolbeinn nýja samninginn
mjög góðan fyrir sjómenn. Þá hef-
ur Jötunn nýlega lokið við gerð
nýs kjarasamnings við bryta, undir-
menn og þernur á Herjólfi. Tvo stór
verkefni eru því að baki hjá Jötni
og lokið farsællega.
Aðalfundir Sjálfstæðisfélags
Vestmannaeyja og fulltrúaráðs
flokksins fóru fram í Ásgarði 29.
febrúar sl. Á báðum fundum var
farið yfir verkefni félaganna á ný-
liðnu ári
Jarl Sigurgeirsson var endurkjör-
inn formaður fulltrúaráðsins og
Gísli Stefánsson endurkjörinn
formaður Sjálfstæðisfélagsins.
Aðrir í sameiginlegri stjórn Sjálf-
stæðisfélaganna og fulltrúaráðs
eru Thelma Gunnarsdóttir, rit-
ari, Bjarni Ólafur Guðmunds-
son, varaform, Sigurbergur
Ármannsson, gjaldkeri og aðrir í
stjórn Arnar Gauti Egilsson, Rut
Haraldsdóttir, Ragnheiður Perla
Hjaltadóttir og Hannes Kristinn
Sigurðsson
Aðalfundur Eyverja fór fram 28.
febrúar sl. í Ásgarði. Arnar Gauti
Egilsson var endurkjörinn for-
maður Eyverja. Aðrir í stjórn eru
Anika Hera Hannesdóttir, Garðar
B. Sigurjónsson, Reynir Egilsson
og Guðný Rún Gísladóttir.
Á öllum fundunum var umfjöll-
un um bæjarmálin eðlilega fyr-
irferðamikil Þá var einnig fjall-
að um málefni kjördæmisins og
landsmálin í heild. Nú er kjör-
tímabil núverandi bæjarstjórnar
hálfnað og rúmlega eitt ár til
næstu Alþingiskosninga.
Aðalfundur Skipstjóra og stýri-
mannafélagsins Verðandi í Eyjum
var haldinn 20 desember 2023.
Mæting var góð á fundinn og var
þar fariđ yfir helstu verkefni fé-
lagsins.
Viðamesta verkefnið var vinna
við gerð langtíma kjarasamnings
milli Félags skipstjórnarmanna og
Verðandi annars vegar og SFS -
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
hinsvegar.
Það hafði sannarlega tekið sinn
tíma að ljúka þessu brýna og stóra
verkefni og var undanfari þess að
loks tókst á þessu ári að ljúka kjara-
samningum við aðra sjómenn á
fiskiskipum.
Á milli jóla og nýárs 2023 var
haldið uppá 85 ára afmæli ss/ Verð-
andi með pompi og prakt.
Í stjórn Verðandi eiga sæti, Berg-
ur Guðnason formaður, Þorbjörn
Víglundsson varaformaður, Andrés
Þorsteinn Sigurðsson, gjaldkeri,
Ómar Steinsson, ritari og Sigurður
Konráðsson, meðstjórnandi.
Skrifstofa félagsins er ađ Heiðar-
vegi 9 og deilir félagið húsnæði
með Sjómannafélaginu Jötni .
Starfsmađur Verðandi er Ómar
Steinsson og er skrifstofan opin
mánudaga og miðvikudaga frá kl
10-12.
Viđ teljum framtíðina bjarta hjá fé-
laginu með öflugri stjórn og flott-
um félagsmönnum sagði Bergur
Guðnason, formaður Verðandi að
lokum.
EH.
Aðalfundur Verðandi
Aðalfundur JötunsAðalfundur Full-
trúaráðs og sjálf-
stæðisfélaganna
í Vestmannaeyjum
11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE
og Jötuns á Nausthamars-
bryggju.
Vegleg verðlaun, stærsti
fiskur, flestir fiskar og fleira.
13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi
Séra Viðar blessar daginn.
Kappróður, koddaslagur,
tuðrukvartmíla, lokahlaup,
sjómannaþraut, foosball völlur á
staðnum, þurrkoddaslagur. Blaðrar-
inn mætir á svæðið. Hoppukastalar.
ÍBV verður með poppkorn, Kjörís
gefur ís og Bylgjuhraðlestin verður á
svæðinu ásamt matarvögnum.
14-18 Myndlistasýning í Akóges
Viðar Breiðfjörð og Andrea Fáfnis
Ólafs sína málverk sín í Akóges.
16.00 ÍBV-Fjölnir / Lengjudeild karla
Upphitun kl 15:00 grill og léttar
veitingar.
20.00 Sjómannadagsball
Vestmannaeyja
Glæsilega dagskrá og frábær
matur frá Einsa kalda.
Veislustjórar kvöldsins verða
Auddi og Steindi.
Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar
verða með frábært
tónlistaratriði. Eyjahjónin Kristín
og Sæþór Vídó mæta. Kristó tekur
nokkur lög. Þá mun ballband kvölds-
ins, Bandmenn, líta við á borðhaldið.
23.00 Dansleikur
með Bandmönnum
F Ö S T U D A G U R 3 1 . M A Í 2 0 2 4
L A U G A R D A G U R 1 . J Ú N Í 2 0 2 4 S U N N U D A G U R 2 . J Ú N Í 2 0 2 4
08.00 Opið Sjómannagolfmót
Ísfélags Vestmannaeyja
Skráning í síma 481-2363 og
golf.is. Vegleg verðlaun í
boði.
12-14 Eldri borgarar í kúluhúsinu
Sjómannadagsráð og Súlna-
salur bjóða eldri borgurum til
matar í Súlnasal (Kúluhúsinu).
17.00 Lífið á sjónum
Ljósmyndasýning Hlyns
Ágústssonar opnar
í Einarsstofu, Safnahúsi
21.00 Nýdönsk alelda í Eyjum
Þeir Björn Jörundur,
Daníel Ágúst, Jón Ólafs,
Stefán Hjörleifs og Óli Hólm
hafa sannarlega engu gleymt
og flytja sitt besta efni frá
ferlinum og er aldrei að vita
nema ein og ein saga læðist
með. Húsið opnar kl. 20.00
og tónleikar hefjast kl. 21.00.
10.00 Fánar dregnir að húni
13.00 Sjómannamessa
í Landakirkju.
Séra Guðmundur Örn predikar
og þjónar fyrir altari.
Eftir messu verður minningar-
athöfn við minnisvarða hrap-
aðra og drukknaðra. Lúðrasveit
Vestmannaeyja leikur nokkur
lög og Drengjakór Reykjavíkur
syngur. Blómsveigur lagður að
minnisvarðanum. Guðni Hjálm-
arsson stjórnar athöfninni.
Að lokinni athöfn býður
Drengjakór Reykjavíkur uppá
fría 30 mín. tónleika í Landa-
kirkju.
14-17 Eykyndilskaffi í Akóges
14-18 Myndlistasýning í Akóges
Viðar Breiðfjörð og Andrea
Fáfnis Ólafs sína málverk sín.
15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó
Lúðrasveit Vestmannaeyja
leikur undir stjórn Jarls Sigur-
geirssonar. Heiðraðir aldnir
sægarpar. Valmundur
Valmundsson stjórnar.
Karlakór Vestmannaeyja flytur
nokkur lög undir stjórn
Matthíasar Harðarsonar.
Ræðumaður Sjómannadagsins
er Gísli Matthías Sigmarsson.
Verðlaunaafhending fyrir
keppnir helgar innar, Fimleika-
félagið Rán, hoppukastalar og
popp.
V I N S Æ L T
T Ö K U M
Þ Á T T
M I Ð A S A L A
Á T I X . I S M I Ð A S A L A
Á T I X . I S
Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á Facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567
S J Ó M A N N A -
3 1 . M A Í - 2 . J Ú N Í 2 0 2 4
D A G S H E L G I N