Stúdentablað jafnaðarmanna - 15.04.1957, Qupperneq 2
2
STÚDENTABLAÐ JAFNAÐARMANNA
1. tölublað, apríl 1957.
Haukur Helgason, stud. oecon.:
Utanfarir stúdenta og S. S. T. S.
Ar hvert leggja allmargir íslenzkir
stúdentar leið sína til annarra landa,
flestir til náms, en nokkrir sér til
skemmtunar. Slík ferðalög eru að sjálf-
sögðu mjög kostnaðarsöm, og er flest-
um stúdentum ofviða að kljúfa þau út-
gjöld. Vegna fámennis okkar og eigin
fátæktar hefur 'Stúdentaráð ekki reynzt
þess megnugt að veita stúdentum neina
fyrirgreiðslu um þessi efni, nema hvað
nokkrir forystumenn stúdenta fara
utan árlega, sumir til lengri tíma dval-
ar og lýjandi ferðalaga víða um lönd.
Samt er nokkur von til þess, að úr
rætist, ef vel verður á málum haldið.
Svo er mál með vexti, að stúdenta-
samtök hinna Norðurlandanna hafa
komið á með sér samtökum til að
auðvelda stúdentum ferðalög um um-
heiminn, og er þess að vænta, að
SHI muni innan tíðar gerast aðili að
þessu samstarfi. Yrði það án efa ís-
lenzkum stúdentum til mikilla hags-
bóta.
Fyrir rúmu ári síðan samþykkti
Stúdentaráð tillögu frá Björgvini Guð-
mundssyni, þáverandi formanni ráðs-
ins, þess efnis, að leitað skyldi sam-
vinnu við ferðamálasamtök stúdenta á
Norðurlöndum, SSTS, sem aðsetur
hafa í kaupmannahöfn, og var nefnd
skipuð í þessu skyni.
Síðastliðið haust sat ég fyrir hönd
Stúdentaráðs stjörnarfund samtakanna
í Kaupmannahöfn og kynntist þar
hinni blómlegu starfsemi þeirra.
Samtök þessi eru nú hin langöflug-
ustu sinnar tegundar í Evrópu, og þótt
víðar væri leitað.
SSTS styrkir Stúdentaráðs.
Það er alkunna, að flestar alþjóð-
legar ráðstefnur (einkum stúdenta)
eru aðallega gleðisamkomur, þar sem
menn af ýmsu þjóðerni koma saman
til að færa Bakkusi fórnir og flytja
langar og innantómar tölur um hin
ómerkilegustu efni. Gagn það, er
verður að slíkum samkundum, er oft
næsta lítið. Þó verður það að segjast
frændum okkar á Norðurlöndum til
verðugs lofs, að fæstir fulltrúar á
stjórnarfundi SSTS .síðastliðið haust
urðu svo ofurölvi, að styðja þyrfti þá
í ræðustóli. (Að vísu urðu eins og oft-
ast vill verða nokkrar undantekningar
frá þessari reglu).
Eg varð þess fljótt áskynja, að hinir
norrænu frændur okkar væntu þess,
að íslenzku stúdentasamtökin væru
mjög öflug, enda töldu þeir, að ís-
lenzkir háskólastúdentar væru a ð
minnsta kosti þrjú þúsund, og gætum
við í samræmi við það lagt nokkurt fé
af mörkum til samtakanna, ef við yrð-
um aðilar að þeim. Nauðugur viljugur
varð ég að minnka ísland allverulega
í þeirra augum. Var það erfiðara en ég
hafði búizt við, en tókst þó um síðir.
Annars tóku forystumenn SSTS
málaleitan okkar af mikilli velvild, og
féllust þeir að lokum á að veita SHI í
styrk tvö þúsund krónur danskar —
(tæpar fimm þúsund íslenzkar) til að
komast yfir byrjunarörðugleika í
þessu samstarfi, og skyldi fé þessu
varið til að launa fastan starfsmann,
er ynni nokkrar klukkustundir á dag
í 3—4 mánuði næsta sumar að því að
skipuleggja ferðalög stúdenta á veg-
Haukur Helgason.
um SSTS. Er þetta ágætur stuðningur
og ber vitni um velvild forráðamanna
samtakanna í okkar garð og einlægan
vilja þeirra, að okkur megi takast,
þrátt fvrir fátækt og fámenni, að njóta
góðs af starfi þeirra.
Ferðamálasamtök stúdenta á Norður-
löndum, Scandinavian Student Travel
Service, eru upphaflega sprottin af
samvinnunefnd, sem stúdentasamtök í
Danmörku og Svíþjóð stofnuðu með
sér árið 1950 og stuðla að ódýrum og
hagkvæmum ferðalögum stúdenta
þessara landa erlendis. Norska stúd-
entasambandið gerðist aðili að þessari
samvinnu hinn 18. febrúar 1951, og er
SSTS talið stofnsett þann dag. Loks
gengu Finnar í samtökin árið 1952.
Eins og stúdentum er kunnugt voru
beinir námsstyrkir til stúdenta við Há-
skóla íslands felldir niður árið 1952,
er Lánasjóður stúdenta var stofnaður.
Hafa stúdentar hér heima síðan aðeins
átt kost á námslánum á sama tíma og
t. d. þeir stúdentar, er utan hafa haldið,
hafa fengið bæði lán og styrki. Á það
hefur verið bent, að hér gæti nokkurs
misræmis og íslenzkum stúdentum við
nám erlendis væri beinlínis búin betri
kjör en heimastúdentum með þessu
fyrirkomulagi.
í október s.l. skipaði núverandi
menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason,
5 manna nefnd til þess að gera tillögur
um fyrirkomulag á veiting náms-
styrkja og námslána. 1 nefndina voru
skipaðir: Dr. Leifur Asgeirsson, pró-
fessor, dr. Þorkell Jóhannesson, há-
skólarektor, Pálmi heitinn Hannesson,
menntaskólarektor, Olafur Hansson,
menntaskólakennari og undirritaður,
er þá var formaður stúdentaráðs. Dr.
Leifur Ásgeirsson var skipaður for-
maður nefndarinnar. Pálmi Hannesson
lézt meðan nefndin var enn að störf-
um og var Sigurkarl Stefánsson,
menntaskólakennari, skipaður í hans
stað.
Nefndin skilaði ýtarlegum tillögum,
er fólu í sér allmiklar breytingar á nú-
Markmið SSTS er þríþætt:
1) Að efla samvinnu milli stúdenta á
Norðurlöndum.
2) Að gangast fyrir hagkvæmum og
ódýrum ferðalögum norrænna stúd-
enta til annarra landa.
3) Að veita erlendum stúdentum, er
ferðast um Norðurlönd, hvers kon-
ar aðstoð og fyrirgreiðslu.
Oflug samtök.
SSTS hefur stöðugt aukizt ásmegin,
enda hafa ávallt valizt þar til forystu
úrvalsmenn. Má einkum nefna Danann
Kaj Pitzer Jörgensen, sem verið hefur
framkvæmdastjóri samtakanna lengst
af, en lét af þeim störfum síðastiiðið
haust.
Af eftirfarandi töflu, er sýnir fjölda
flugferða á vegum samtakanna, og
þátttakenda í þeim, má ráða hinn öra
vöxt, sem orðið hefur á starfsemi sam-
takanna hin síðustu ár.
Fjöldi Seldir
Ár flugferða farmiðar
1950 ................. 85 4002
1951 ................. 40 1334
1952 ................. 60 1800
1953 ................ 160 3402
1954 ................ 190 5700
1955 ................ 311 9064
Enn hafa ekki borizt heildarskýrslur
fyrir árið 1956 ,en flugferðir voru á
því ári áætlaðar um 400.
Auk flugferðanna má svo t. d. nefna,
að árið 1955 voru farnar á vegum sam-
takanna 174 hópferðir með járnbraut-
arlestum, og voru þátttakendur í þeim
2812. Enn fremur gengust samtökin
fyrir allmörgum hópferðum með öðr-
um farartækjum.
verandi kerfi. Verða þær tillögur ckki
raktar hér, þar eð þær hafa enn ekki
verið birtar. Hér skal aðéins vikið að
einni tillögu nefndarinnar, er undir-
ritaður bar fram. Fjallar sú um, að
upp verði teknir á ný beinir náms- og
húsaleigustyrkir til stúdenta við Há-
skóla íslands. Var það einróma álit
nefndarinnar að úthluta þyrfti ein-
hverjum beinum styrkjum samhliða
lánum úr Lánasjóði stúdenta.
Til athugunar í ráðuneytinu.
Tillögur nefndarinnar hafa undan-
farið verið til athugunar í mennta-
málaráðuneytinu. Hefur menntamála-
ráðherra tjáð mér, að hann muni vinna
að því að upp verði teknir einhverjir
námsstyrkir á ný til stúdenta við Há-
skóla íslands. Standa því vonir til þess,
að það mál nái fram að ganga í ein-
hverju formi.
Brýnt hagsmunamál.
Hér er um svo brýnt hagsmunamál
stúdenta að ræða, að öll hin pólitízku
félög háskólans ættu að sameinast í
baráttunni fyrir framgangi þess. Stúd-
entafélag jafnaðarmanna hefur riðið á
vaðið og gert skelegga ályktun í mál-
inu. Onnur félög ættu að fylgja fast á
eftir, svo að eigi verði um villzt hver
vilji stúdenta er í þessu máli.
Þá hefur SSTS stofnsett eigin skrif-
stofur víðs vegar um Evrópu, m. a. í
Aþenu, Barcelona, Genf, London,
Múnchen, París, Róm og Feneyjum,
auk þess í New York og víðar, en
aðalstöðvar samtakanna eru í Kaup-
mannahöfn, eins og áður var sagt.
Odýrar og hagkvæmar ferðir.
Hvaða hagnað höfðu svo stúdenta-
samböndin á Norðurlöndum af því að
mynda þessi samtök meðlima sinna?
Því er til að svara, að á þennan veg
verður allur kostnaður minni. Er það
einkum af þremur ástæðum:
1) SSTS tekur gjarna á leigu farþega-
flugvélar, stórar og smáar, fyrir
hópferðir og kemst þannig hjá að
greiða óhóflegan arð til flugfélaga.
2) Með því að annast kaup fyrir stóra
hópa í einu fær SSTS afslátt á hvers
kyns þjónustu.
3) Allur stjórnarkostnaður minnkar til
muna við það, að starfsemin er í
höndum eins aðila.
Auk hinnar stórvægilegu kostnaðar-
lækkunar má nefna, að stúdentar eiga
með þessu fyrirkomulagi völ miklu
fleiri ferða en ella.
Þá hefur SSTS tekizt, einkum vegna
góðrar forystu, að skapa sér gott álit
víðs vegar um heirn. Af þeirn sökum
ná samtökin að jafnaði hagstæðari
kjörum og geta veitt betri þjónustu.
ITugarfarsbreyting Vöku.
Á því er enginn vafi, að aðild SHÍ
að SSTS geti orðið til mikilla hags-
bóta fyrir stúdenta. Gætu þeir tekið
þátt í ferðalögum á vegum samtak-
anna og notið fyrirgreiðslu þeirra.
Nokkuð hefur þó skort á, að þessi mál
hafi ætíð mætt þeim skilningi, er
skyldi.
I janúarmánuði síðastliðnum gaf ég
hinu nýja Stúdentaráði skýrslu um
utanför rnína og viðhorfum í þessum
efnum. Mættu þessi mál góðum skiln-
ingi allra fulltrúa, jafnvel Vöku-
manna, enda þótt Sigurður Líndal og
félagar hans hefðu áður talið tillögu
Björgvins Guðmundssonar um sam-
starf við SSTS algera firru og fávita-
hátt.
Er þessi hugarfarsbreyting mjög eðli-
leg, og þess að vænta, að þetta hags-
munamál stúdenta verði í framtíð
hafið yfir dægurþras og pólitískar erj-
ur, sem undanfarið hafa einkennt fé-
lagslíf háskólastúdenta og spillt stór-
lega fyrir framkvæmd eiginlegra hags-
munamála stúdenta.
IUS-málið
Varðandi stefnu Stúdentafélags
jafnaðarmanna í IUS-málinu vísast til
greinargerðar fulltrúa félagsins í stúd-
entaráði, er birtist í nýútkomnu Stúd-
entablaði S.H.Í.
------------------------_
Stúdentablað jafnaðar-
manna
Útgefandi:
Stúdentafélag jafnaðarmanna.
I ritnefnd:
Kristinn Guðmundsson, form. ábm.,
Björgvin Guðmundsson, Auðunn
Guðmundsson, Emil Hjartarson,
Unnar Stefánsson.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
v----------------------------—/
Björgvin Guðmundsson, stud. oecon.:
Námsstyrkir við Háskóla íslands
brýnasta hagsmunamálið