Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Blaðsíða 8

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Blaðsíða 8
Í fátækrahverfum í Kampala, höfuðborg Úganda, vinnur Hjálparstarf kirkjunnar með UYDEL (Ugandan Youth Development Link) að vald- eflingarverkefni í þágu barna og ungmenna á aldrinum 13–24 ára. UYDEL eru virt samtök í Úganda sem hafa áratuga reynslu af því að vinna með ungu fólki í fátækra- hverfunum og eru leiðandi í málsvarastarfi fyrir börn og unglinga. UYDEL aðstoðar unglingana sem ljúka ársnámi í smiðjum samtakanna við að komast á starfs- nemasamning hjá fyrirtækjum í Kampala og í framhaldinu að fá þar vinnu. Einn þáttur í náminu hjá UYDEL er verslunarfræði en mörg þeirra sem ekki fá starf hjá fyrirtæki eftir námið opna eigin búðarbás og selja til dæmis flíkur sem þau hafa saumað eða prjónað eða reka við- gerðarþjónustu. UYDEL leggur sérstaka áherslu á að ná til stúlkna, ungra kvenna og einstaklinga með fötlun en ár hvert útskrifast fleiri en 500 ungmenni úr þremur smiðjum samtakanna. Kórónuveirufaraldurinn hefur haft áhrif á starfið í smiðjunum en með útsjónarsemi hefir starfsfólki UYDEL tekist að veita fulla þjónustu um leið og varúðar hefur verið gætt. Hadijah Nagawa er 19 ára gömul stúlka sem býr með mömmu sinni og sjö yngri systkinum í einu af fátækra- hverfunum í Kampala. Hún varð að hætta námi eftir grunnskóla þar sem skólagjöldin í framhaldsskólanum reyndust of mikil fjárhagsleg byrði fyrir mömmu hennar. Hadijah átti erfitt með að finna vinnu og hennar beið því fátt annað en að giftast og eignast börn. Vinkona hennar sem sjálf stundaði verknám í smiðju UYDEL benti Hadijah hins vegar á að tala við félagsráðgjafa þar. Í framhaldinu var henni svo boðið að koma í smiðjuna og velja sér þar iðn- grein til að sérhæfa sig í, auk þess sem hún lærði verslunarfræði og fékk fræðslu um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjónustu. Hadijah valdi að læra vélprjón og að loknu ársnámi í smiðjunni fékk hún prjónavél í útskriftargjöf. Nú hefur hún komið sér upp sölubás þar sem hún býður fólki að prjóna á það flík eftir máli. Með vinnu sinni er hún ekki aðeins fær um að sjá fyrir helstu nauðsynjum fyrir sig, mömmu sína og yngri systkin heldur nær hún að leggja til hliðar og safna fyrir því að stækka básinn sinn. KRAKKARNIR Í KAMPALA FÁ TÆKIFÆRI TIL AÐ LIFA MEÐ REISN Markmiðið er að unga fólkið öðlist verkkunnáttu sem eykur atvinnumöguleika þess. Einnig að unglingarnir taki þátt í uppbyggilegum tómstundum og námskeiðum sem styrkja sjálfs- myndina og að þeir séu upplýstir um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjónustu. Með fræðslu og valdeflingu má koma í veg fyrir að barnungar stúlkur verði þungaðar, hefta útbreiðslu HIV/alnæmis og kynsjúkdóma ásamt því að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. SAGAN HENNAR HADIJAH NAGAWA Hér læra stelpurnar að baka nokkurs konar kleinur en eftir ársnám, t.d. í að þjóna, baka og elda einfalda rétti, fá mörg þeirra sem koma í smiðjurnar vinnu á hóteli eða á veitingahúsi. Anna segir að íþróttaiðkun í smiðjunum hafi margvísleg jákvæð áhrif á unglingana. Krakkarnir þurfi að einbeita sér, gleymi erfiðum aðstæðum um stund og losi þannig um streitu. Á íþróttaæfingum gefist líka tækifæri til að tala um neikvæðar afleiðingar fíkniefnaneyslu og um kynheilbrigði. Vorið 2019 sýndi Anna Kawuma forstöðukona hjá UYDEL Bjarna Gíslasyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar aðstæður í smiðjunum og í fátækrahverfunum þar sem unglingarnir búa við skelfilegar aðstæður. 8 – Margt smátt ...

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.