Ný menntamál - 01.12.1989, Blaðsíða 6

Ný menntamál - 01.12.1989, Blaðsíða 6
NÝ MENNTAMAL 4. tbl. 7. árg. 1989 Auður Hauksdóttir: TIL HVERS LÆRUM VIÐ TUNGUMÁL? — Um dönskukennslu á framhaldsskólastigi Dönskukennsla á sér langa hefð í íslenskum framhaldsskólum. Danska var ein af aðalkennslugreinunum í Lœrða skólanum í Reykjavík og allar götur síðan hefur hún verið kennd sem fyrsta erlenda mál auk þess sem hún hefur verið skyldunámsgrein í öllum framhaldsskólum. Margt virðist benda til að þeir kennsluhœttir, sem viðhafðir voru í dönskukennslunni í Lœrða skólanum í Reykjavík, hafi orðið mótandi fyrir þróun greinarinnar allt til dagsins í dag. anska er fyrsta erlenda tungumálið, sem kennt er í skólum hérlendis og skyldu- > námsgrein í sex til sjö ár í grunn- og fram- haldsskólum. Margvísleg rök eru fyrir því að kenna dönsku á íslandi. Nefna má söguleg tengsl þjóðanna, norrænt samstarf og þá staðreynd að stað- góð kunnátta í dönsku hefur reynst Islendingum góður lykill að norrænu málasamfélagi. A undanförnum ár- um og áratugum hefur þörfin fyrir tungumálakunnáttu farið vaxandi. Gjörbreyttir lifnaðarhættir, ótakmark- aðir ferðamöguleikar og aukin samskipti þjóða kalla á örugga tungumálakunnáttu. Augljóst er að góð tungumálakunnátta er lykilatriði í samskiptum við aðrar þjóðir hvort heldur um er að ræða menningarleg samskipti eða viðskiptatengsl. Sem dæmi má nefna, að vart verður opnað danskt dagblað um þessar mundir án þess að þar sé verið að fjalla um japönskukennslu í Danmörku en Danir eru einmitt að vinna að auknum viðskiptatengslum við Japani og gera sér ljóst að vænlegast er að þeir sem gerðir eru út af ^ örkinni geti talað mál innfæddra. Oft hefur dönskukennslan verið gagnrýnd fyrir of litla áherslu á þjálfun talmáls og aðra skapandi þætti málanámsins. Heyrst hefur t.d. að ónóg kunnátta í dönsku og öðrum norðurlandamálum hái ýmsum sem vinna að norrænum samstarfsverkefnum og jafnframt hefur verið haft á orði að þeir aðilar sem eru að reyna að markaðssetja íslenska vöru á Norðurlöndum kvarti undan því að erfitt sé að fá viðskiptafræðinga og annað langskólagengið fólk sem hafi dönsku eða annað norð- urlandamál á valdi sínu. Þetta er athyglisvert þegar haft er í huga að allir nemendur njóta dönskukennslu bæði í grunnskóla og framhaldsskóla. 6

x

Ný menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.