Æskulýðsblaðið - 06.03.1949, Qupperneq 1
ÆSK U LY3SBLADIÐ
I. árgángur Sunnudaginn 6. marz 1949 1. tölublað
Hvað er Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju?
Hvað er Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju?
Þannig kann einhver að spyrja, sem ekki
þekkir þá starfsemi, sem félagið hefir með
höndum. — Æskulýðsfélagið er byggt á ferm-
ingarheiti hinnar íslenzku kirkju, en það heit
er þannig orðað: ,,Ég lofa því af fremsta
megni, að hafa Frelsarann Jesúm Krist að
leiðtoga í lífi mínu.“
Af þessu leiðir, að ekki eru aðrir félagar
í Æskulýðsfélaginu en þeir, sem hafa fermst.
Og af þessu heiti er það augljóst mál, að
félagið byggir starf sitt á Frelsaranum Jesti
Kristi. — Hann er leiðtogi félagsins, og kross,-
merkið hans er sigurtákn þess.
Oft verður það svo, að æskan lætur kristin-
dóminn á hilluna eftir ferminguna, lífið í
Kristi verður ekki raunverttlegt, heldur að-
eins eitthvað, sem geymist í minningunni
um hátíðlega fermingarathöfn og fagrar gjaf-
ir. — Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju vill
sporna við því, að svo verði á þeim stað, sem
það starfar. — Æskulýðsfélagið vill að ferm-
ingin verði upphafið á þróttmiklu og raun-
verulegu kristindómslífi þeirrar æsku, sem
hefir unnið heit sitt. — Æskulýðsfélagið vill
að Kristur móti allt hugsana- og athafnalíf
æskunnar, ekki síður eftir ferminguna en á
meðan hún stendur yfir. — Æskulýðsfélagið
vill að æskan ræki trú sína, en ekki aðeins
játi hana á heilagri og hátíðlegri stund. —
Æskulýðsfélagið er því eins konar framhald
fermingarinnar, sem á að vara á meðan æfin
endist.
Hin heilaga glóð hverrar þjóðar er æskan,
sem á að taka á móti og ávaxta arf hennar. —
í voru landi er mikið kapp á það lagt, að gera
hana hæfa því köllunarstarfi. En æskan lifir
á hugsjón sinni, ef hugsjónin kulnar, þá fjar-
ar tit máttur hennar. Engin hugsjón æsku-
mannsins er jafn glæsileg og göfgandi eins
og sú að vera höndlaður af Kristi. Sti httg-
sjón er fyrst og fremst bundin við hið eilífa
líf, en hefir jafnframt áhrif á hið daglega líf
og notar það á hinn ákjósanlegasta hátt. Þessi
hugsjón er borin uppi af hverjum sönnum
æskttlýðslélaga. — Fyrir þessa hugsjón vill
Æskulýðsfélagið lifa og starfa.
--------
Hvítblái Kristsfáninn
Engir litir eru svo einkennandi
fyrir ísland sem blátt og hvítt. Er
þar átt við „eyjuna hvítu“ með bláa
hafið allt í kring og hinn bláa him-
in öll-u yfir. — Enda var það svo,
að íslenzki fártinn álú upphaflega
aðeins að hafa þá tvo liti.
N ú hefir verið gjörður bláhvítur
fáni með krossmerki Krists, eins og
myndin hér sýnir. Er ætlunin sú, að
þessi fáni verði félagsfáni þessa fé-
lagsskapar, sem á Frelsarann Krist
að leiðtoga og vill leiða merki hans
til sigurs i hinu bláhvíta umhverfi,
sem vér byggjum.
Þakkir til bæjarstjórnar
Nokkrir góðir borgarar hér í
þessum bæ hafa sýnt Æskulýðsstarf-
seminni kærkominn stuðning með
nokkrum gjöfum til félagsins. Fyrir
þær gjafir vill félagið þakka.
Einnig hefir bæjarstjórn Akur-
eyrar látið félaginu í té styrk til þess
að standast hin nauðsynlegustu út-
gjöld, sem hafa verið mikil í sam-
bandi við prentunarkostnað undan-
farið ár. Fyrir þetta viljum vér
þakka bæjarstjórninni af heilum
huga. Það er vissulega mikill styrk-
ur fyrir starf vort, að finna áhuga
og fórnarhug einstakra manna og
bæjarfélagsins á þvr, sem vér erum
að vinna að og starfa fyrir.