Kosningablað Sjálfstæðismanna - 14.07.1933, Page 3

Kosningablað Sjálfstæðismanna - 14.07.1933, Page 3
ekki ríkisstjórn, heldur flokks- stjórn framsóknar og jafnaðar- manna. — Fylttu hlutdrœgni var beitt í embæítaveitingum. — Nægir í því sambandi að benda á veitingu sýslumannsembættanna í Baröa- strandarsýslu og Snæfellsnessýslu, rektorsembættisins við Mentaskól- ann, skólastjórastarfans við nýja Barnaskólann í Reykjavík, svo að ekki séu nefnd önnur eins hneixl- ismál og skipun Áfengisverslunar- forstjórans, útvarpsstjórans og bankastjóra Útvegsbankans. í einu og öllu höfðu flokks- menn og stuðningsmenn stjórnar- innar forgangsrétt til allra hlunn- inda, og bitar og bein voru óspart réttir að þeim undir ótrúlegasta ylirskyni, t. d. utanfararstyrkur Magnúsar Torfasonar og Halldórs Kr. Júlíussonar og 2000 krónur sem réttar voru að Gísla Guð- mundssyni ritstjóra, til undirbún- ings kvikmyndalöggjafar. Það var orð'n atvinna að fylgja stjórninni og átti þetta má'alið ekki litinn þátt í þeirri atkvæða- aukningu, sem flokkurinn fékk.— En andstæðingarnir — þeir voru ekki einasta útilokaðir frá eðlileg- um störfum og embættum í þágu þjóðfélagsins og að saklausu rekn- ir úr embættum og sýslunum, heldur voru þeir bókstaflega oft- lega ofsóttir á alla enda og kanta. „Réttvísin" svokallaða, ákæru- valdið — nauðsynlegasta, en um leið hættulegasta vald hvers þjóð- félags — var nú tekið í flokks- þjónustu á svipaöan hátt og á sér stað í Rússlandi. Jafnframf því, sem hlífiskildi var haldið yfir grófustu glæpum flokks- manna (t. d. sjóðþurðarmálið á Vífilsstöðum, sjóðþurðarmálið við Áfengisverslunina í Hafnarfirði, vörufals og svikamál Áfengisversl- unarforstjórans, hnuplmál útvarps- stjórans, svo að aðeins séu nefnd nokkur þekt dæmi), var þessari gæsalöppuðu „Hrifluréttvísi“ sigað á saklausa andstæðinga. — Nægir að benda á Shellmálið, málið gegn föður mínum, læknamálin, Behr- ensmálið, Kvöldúlfsmálið o. fl. og altaf vildi það svo til, að ef hinn reglulegi dómari hafði ekki þegið embætti af Hrifluréttvísinni, eins og t. d. lögreglustjórinn í Reykja- vík, þá var skipaður sérstakur dómari í málinu, sem ekki einasta fákk konunglega borgun fyrir málsmeðferðina, heldur sem þar að auki stóð í þakklætisskuld við Hrifluvaldiö. Sem betur fór var minna skaö- ræði aö þessu en til var stofnað, vegna þess, að tekist hafði að búa «vo um lokadómstól þjóðarinnar, Hæstarétt, að töf varð á því, að honum, frá því aö vera einasti öryggisventill þjóðfjelagsins, yröi breytt í flokkstæki Framsóknar- manna. Það vantar þó ekki, aö tilraun- ir hafi verið gjörðar margar og miklar í þessa átt, enda heföi það verið lokahjallinn í einræðisbrölti Jónasar frá Hriflu, ef honum hefði tekist að veikja sjálfstæði Hæsta- réttar. — Þing eftir þing kom hann fram með frurnvarp sem miðaði í þá átt, að gera æösta dómstól þjóö- arinnar að ósjálfstæöu verkfæri í höndum ráðandi stjórnar og vlð lá að honum tækist það með til- styrk jafnaöarmanna. — En þá gripu hans eigin flokks- menn, Jón frá Stóradal og Guð- mundur í Ási í taumana og björg- uðu sjálfstæði réttarins og um Ieið íslandi frá að verða skrílland. Jafnhliða tilraunum sínum tfl þess með lögum að gera dóms- valdið að undirlægju framkvæmda- valdsins, hófu blöð Framsóknar- manna hinar grimmilegustu árásir á Hæstarétt, sem auðvitaö berg- máluðu í blððum jafnaðarmanna. En þó kastaði fyrst tðlfunum, þegar sjálfur dómsmálaráðherrann leyfði sér úr ráðherrasæti að ráð- ast á æðsta dómstól þjóðarinnar og meðlimi hans og bera þeim á brýn rangdæmi, aö þeir litu póli- tiskum augum á mál þau, er fyrir þá \orulögð o. s. frv. Allir lögfræðingar óska þess, að Hæstiréttur verði styrktur meö mannfjölgun. Þeir óska einnig margir annara smábreytinga á fyr- irkomulagi hans, t. d. opinber dómsatkvæði o. fl. En ef það verður samþykt, verð- ur líka að verja rétiinn og dóm- ara hans fyrir órökstuádum og ófaglegum árásum. Engin verk eru eins vanþakklát og vandasöm eins og dómara- starfið. — Aðiljar eru altaf 2 eða fleiri og venjulegn trúa þeir á að málsstaður þeirra sé réttur. Ég hef flutt mikið á annað hundrað mál fyrir Hæstarétti og unnið og tapað á víxl. En mér er óhætt að fuilyrða það, að ég hef aldrei haft ástæðu til þess að ef- ast um að dómararnir dæmdu eftir bestu vitund og þekkingu. Og ég get bætt því við, að þeg- ar ég seinna eftir bardagann hef rifjað upp þau mál, sem ég hefi tapað, hef ég venjulega séð að ég hefi litið of einhliöa á málið, en dómur réttarins verið réttur. Mitt álit skiftir auðvitað litlu máli, og þori ég þó óhræddur að leggja mína þekkingu á lögum á móti hverjum einasta af þeim rit- höfundum, sem mestu aurkastinu hafa varpað og mest að því unn- ið, að grafa undan virðingu rétt- arins. — Ég veit aö „kollegar" mínireru sömu skoðunar. Einróma fundar- samþykt er til fyrir því. En þaö sem mestu er um vert er það, að Hæsúréttur nýtur rnik- ils og verðskuldaðs trausts eriend- is, þrátt fyrir alt aðkastið. í sambandi við bresk-íslenska samninginn í vetur var því opiri- berlega lýst yfir af ensku stjórn- inni, að Hæstiréttur nyti fylsta trausts hennar og s. 1. vetur dæmdi rétturinn í mjög vandasömum málum, sem ég flutti, þar sem ís- lenskir og danskir hagsmunir ráku sig verulega á (Tang & Riis málin). Ég vann þau mál gegn hagsmun- um Dana og nú hefur komið fram uppástunga frá Dönum um að af- gera slík mál milli Norðurlanda. með ríkjasamningi, eftir þeim lín- um, sem Hæsriréttur þar dró upp. — Ég er nú orðinn ærið lang- orður, enda er miklu af að taka. Því þaö gildir einu, frá hvaða sjónarmiði litið er á stjórnarfar Framsóknai og jafnaðarmanna. Það hefir í öllum greinum orðið þjóðinni til ósóma og skaða, og það er ekki ofsagt þótt sagt sé að meginþungi þeirrar kreppu, sem nú rlkir hér á landi, eigi beinlínis rót sína að rekja til fjár- málaóstjórnar Framsóknar og jafnaðarmanna. —o— j Við þessar kosningar eiga kjós- endur að velja um það, hvort þeir yilja heldur sterka og gætna rík- isstjórn Sjálfstœðismanna, eða vanmáttuga og óhæfa flokksstjórn Framsóknar, ef til vill studda jafn- aðarmönnum. Ég segi vanmáttuga Framsókn- arstjórn, því ég býst viö því, að það yröi erfitt fyrir Framsókn að mynda stjórn, þótt svo ótrúlega tækist til, að hún kæmi með hreinum meirihluta út úr kosn- ingunum, og tæplega myndi það auka starfhæfni hennar, ef hún þyrfti að kaupa stuðning jafnað- armanna. Framsóknarflokkurinn er svo sundurleytur og innbyrðis andvíg- ur, að sérhver stjórn, sem hann reyndi að tiidra upp, væri and- vana fædd. — Flokkur, sem hat- ast og rífst innbyrðis, er á falianda fæti og það mun sýna sig við þessar. kosningar, jafnvel þó að hann hafi meira og minna kosn- ingabándalag við jafnaðarmenn í sumum kjördæmum. Ef athugaðar eru gjörðir síðasta þings, sést það, að enda þótt Fram- sóknarflokkurinn vegna hinnar ranglátu kjördæmaskipunar og ótrúlega sniðugra kosningabeitu, hafi haft meiri hluta þings eða 23 þingmenn, en Sjálfstæðisflokk- urinn aðeins 15 þingmenn, pá hafa Sjálfstæðismenn þó komið fram hverju stórmálinu á fætur öðru i þinginu — og það jafnvel þeim málum, sem Framsókn not- aði sem átyllu til þingrofsins 1931. Fyrsta þrifaverkið var að koma Jónasi Jónssyni frá Hriflu úr rík- isstjórninni og þar með stöðva þá spillingu, hlutdrægni og fjársóun, sem þeim manni fylgir trúrra en hans eigin skuggi. — Þá var stjórnarskrármálið leitt til Iykta við sæmileg málalok, þrátt fyrlr öll stóryrði Framsókn- armanna við kosningarnar. Þá var samþykt frumvaip um virkjun Sogsins, nákvæmlega eins og það var borið fram af Sjálf- stæðismönnum 1931, nema að nú er frjálst, hvort Efra eða Neðra Sogið er virkjað. — Við kosn- ingarnar 1931 var þetta mál stór- kostlegt árásarmál af hendi Fram- sóknarflokksins á Sjálfstæðisfnenn og þótti svo miklu skifta að hefta framgang þess, að jafnvel þótti nauðsynlegt að rjúfa þing til þess. Um ríkislögregluna má segja það, að hún sé komin á fyrir til- styrk jafnaðarmanna og kommun- ista, því að eftir hamfarir þeirra á bæjarstjórnarfundinum í Reykja- vík 9. nóv. s.l. gat engum lengur dulist það, sem Sjálfstæðismönn- um var ljóst frá upphafi, að eitt- hvert vald verður að vera til þess nú halda uppi lögum og reglum í ríkínu þegar mest á reynir, þ. e. þegar óeirðir eru svo almennar, að hin reglulega Iögregla fær eigi rönd við reist. — Lausn kreppumálanna á síðasta þingi gefur ekki tilefni til sérstakra deilna — þar voru ailir flokkar sammála, nema helst um það, hvort stjórn sjóðsins skyldi heldur gæta hagsmuna bændanna sjálfra, eða skuldheimtumanna þeirra. Sambandið vildi fá stjórn sjóðs- ins í sínar hendur, en Sjálfstæðis- menn björguðu því með aðstoö Ásgeirs Ásgeirssonar og Tryggva Þórhallssonar, sem nú voru sjálf- ir farnir að óttast skuldahelsisvald Sambandsins. — Eg hygg að lausn sú, er fékst, sé eftir atvikum sú skásta, sem völ var á, þótt mér ekki dyljist hitt, að útgáfa kreppu- lánsbréfanna sem í raun og veru eru ekki, eflir ákvæðum þeim, sem um þau gilda, annað enn rentu- berandi seðlar, geti liqvidikt bank- anna, og þá sérstaklega Lands- bankans, í allverulega hættu. —o— Að lokum vil ég geta þess, sem raunar allir vita, að Sjálfstæðis- flokkurinn er einasti landsmála- flokkurinn, sem nú er hér á landi. Hinir flokkarnir eru stéttaflokkar — flokkar, sem eru að reyna að skapa stéttamuninn eftir erlendum fyrirmyndum og skara eld að sín- um flokksmönnum. Með þessu er þó ekki sagt að þeir vinni þessum „stéttum" nokkuð gagn, ogreynsl- an virðist sýna það, að meiri áhersla sé lögð á hagsæld og vel- liðan foringjanna, en hinna óbreyttu liðsmanna. Þessir flokkar — eða réttara sagt foringjar þeirra, vilja slíta einstakar stéttir þjóðfélagsins út úr eðlilegu samhengi þeirra við þjóð- félagsheildina, en Sjálfstæðisflokkn- um er ljóst, að eins og manni getur því aðeins liðið vel, að all- ur líkaminn sé hraustur, eins er Þeð nauðsynleg undirstaða farsæls þjóðfélags, að öllum einstaklingum þess líði vel, hvaða nauðsynja- vinnu sem þeir vinna í þjóðfélag- inu. — Þessvegna berst Sjálfstæðisflokk- urinn fyrir samstilling og velferð allra stétta þjóðfélagsins. Enda er ekki nokkur sú stétt til innan þess, hvert sem litið er, aö hann eigi ekki fleiri eða færri stuðningsmenn innan hennar.

x

Kosningablað Sjálfstæðismanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kosningablað Sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/2046

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.