Palestína - 01.07.1975, Side 3

Palestína - 01.07.1975, Side 3
°> 5 - ■>/ PALESTlNA IXI Hvernig hefur svo alþýða Palestínu sýnt vilja sinn til að styrkja PLO? Við sjáum greinilega stuðning Pal- estínuaraba við PLO ef við lítum á starfsemi þeirra sarrfaka og flokka, sem Palestfnumenn hafa stofnað. Slík samtök eru: t Fjöldasamtök: Hagsmunasamtök, sem grundvallast á atvinnu og ann- arri hópamyndun, s.s. verkalýðs- félög, kvenfélög, stúdentasamtök, listamannasamtök o. s. frv. t Andspyrnuhreyfingar, sem virkja pólitíska og hernaðarlega virkni palestínsku alþýðunnar. Félagar palestínsku fjöldasamtak- anna kjósa leiðtoga sína í frjálsum kosningum. Sérhagsmunir fjöldasam- takanna eru settir fram milliliðalaust á þjóðþingi PLO. Þessi samtök senda reglulega á þingið sendinefnd- ir, en fjildi fulltrúa fer eftir stærð samtakanna. Uppbygging allra sam- . taka palestínsku alþýðunnar gefur þeim sérstakt mikilvægi þar sem þau gefa ljósasta heildarmynd af vilja palestfnsku þjóðarinnar. Öll þessi samtök hafa lýst yfir, að "PLO eru eini lögmæti fulltrúi Palestfnuaraba, hvar sem þá er að finna". Palestínsku andspyrnuhreyfingarnar eru skipulagðar sem hernaðarlegt og pólitískt afl palestínsku alþýðunnar. Sameinuðu þjóðirnar hafa viðurkennt grundvallarlegan rétt Palestínuaraba til vopnaðrar baráttu. A 28. þingi Sþ var samþykkt ályktun nr. 3070, en itvö af sex atriðum hennar hljðða svo: 2.atriðj : "Allsherjarþingið ítrek- ar einnig rétt baráttu alþýðunnar fyrir frelsi undan erlendri kúgun og nýlendukúgun og samsvarandi ástandi með öllum tilrækum ráðum, og þar með talið vopnaðri baráttu." 6»atriði : "Allsherjarþingið for- dæmir allar ríkisstjórnir, sem eldci styðja réttinn til sjálfsákvörð- unar og sjálfstæðis þjóða, einkum þjðða Áfríku sem enn búa við ný- lendukúgun, og palestínsku þjóðar- innar." Palestínsku andspyrnuhreyfingarnar hafa tekið þátt f starfsemi PLO frá upphafi, en þátttaka þeirra varð formleg á 4. þjóðþingi Palestínu í júlí 1968. Allar andspyrnuhreyfing- arnar, sem taka þátt í starfsemi PLO hafa lýst yfir stuðningi við þjóð- arsáttmála palestínsku þjóðárinnar og grundvöll PLO. FRAMHALD A BLS. 11 Ösigur Araba f stríðinu 1967 hafði gífurleg eftirköst meðal Palestínu- araba. Með honum brustu endanlega vonir margra Palestfnuaraba um að Arabaríkin myndu frelsa heimaland þeirra undan síonismanum, og þeir lærdómar, sem frelsishreyfingarn- ar drðgu af ósigrinum, léiddu til deilna um hvaða bardagaaðferð skyldi beitt, Annars vegar voru þeir sem ekki vildu breyta um bar- dagaaðferð og stjórnlist og neituðu að horfast í augu við þá staðreynd, Stofnun PLOmarkaðiupphafiðaðskipulagðri, pólitískri og hernaðarlegri baráttu palestfnumanna, gegn sfonistumf fsrael - PALESTfNSKU BYLTINGUNNI. Yasser Arafat - formaður PLO "Gamla PLO". PLO var upphaflega stofnað á fundi Arabarfkja í Alexandríu árið 1964. Það var þá algerlega háð stjórnum Arabaríkjanna um alla fyrirgreiðslu, fjármagn og aðstöðu, og her PLO, Frelsisher Palestínuaraba (PLA), var skipulagður sem hluti af her Arabaríkj anna. Fyrir Arabaríkjun- um var PLO aðeins hugsað sem varnagli, "tæki til að hafa hemil á Palestínuvandamálinu" eins og em- bættismaður einn í Kairo orðaði það. Þar sem samtökin voru þá slitin úr tengslum við palestfnsku alþýðuna, var ekki hægt að líta á þau sem pólitískan eða hernaðarleg- an fulltrúa hennar. að stefna þeirra hafði sýnt sig ger- samlega ómegnuga um að færa Pal- estfnumenn feti nær heimalandi sínu. Hins vegar voru þeir sem dregið höfðu lærdóma af ósigrinum í strfðinu og eftirköstum hans. Þeir sýndu réttilega fram á, að samkvæmt þáverandi skipulagi var PLO ekki annað en þunglamalegt skriffinnsku- bákn, en mynda yrði heildarsamtök Palestfnuaraba, sem grundvölluð væru á því, að frelsun Palestfnu yrði að vera verk Palestínumanna sjálfra. Því yrði að gefa PLO sjálf- stætt skipulag og fjárhagsgrundvöll, sem gera myndi samtökin óháð mis- viturri stefnu ríkisstjórna Araba- ríkjanna, og um leið óumdeilanlegan fulltrú palestínsku alþýðunnar. 5. Þjóðþing Palestfnu í Kairo 1969 markaði fullan sigur hinna framsýnu afla, sem þýddi stórt stökk fram á við í frelsisbaráttunni. PLO í dag. Grundvöll PLO í dag má draga sam- an í þrjár lykilsetningar: 1. Palestfna er föðurland Palestínu- araba. 2. Frelsun Palestínu færir Palestínu- manninum aftur heiður, stolt og frelsi. 3. Palestínsk alþýða hefur óskoraðan rétt til að frelsa og stjórna landi sínu. Það sem felst í þessum setningum er á núverandi þróunarskeiði grundvöll- ur þjóðlegrar vitundar Palestfnuar- aba og tjáning á vilja þeirra. Þannig hafa Palestínuarabar meðtekið PLO sem óumdeilanlegan fulltrúa sinn, og PLO byggir á þeim grundvelli sem allir Palestínuarabar geta stutt og styðja, jafnt þjóðlegir borgarar, smáborgarar,verkamennsem mennta- menn. f ár, á 10 ára afmæli palestínsku byltingarinnar, eru bjartari vonir en áður bundnar við árangursrík úrslit baráttunnar fyrir endurheimtingu heima- landsins, Palestínu, úr höndum Zionismans. í hinu sjálfstæða Palestínu- ríki munu Palestínuarabar, Palestínugyðingar og aðfluttir gyðingar lifa sam- an á jafnréttisgrundvelli, með trúfrelsi og öll önnur lýðréttindi. Tvímælalaust má segja, að það sé barátta PLO - Frelsissamtaka Palestínu- manna - jafnt meðal palestínu alþýðunnar sem á alþjóðagrundvelli, jafnt pólitískt, hernaðarlega og menningarlega, sem sé grundvöllur þessara björtu vona. PLO-Eini löglegi fulltrúi Palestínuaraba, hvar sem þá er að finna

x

Palestína

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Palestína
https://timarit.is/publication/2048

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.