Palestína - 01.07.1975, Page 4

Palestína - 01.07.1975, Page 4
4 PALESTfNA Skceruliðasveitirnar PJÁLFUN OG BARÁTTA Palestínumenn hafa lært það af baráttu sinni, að aðeins með vopnaðri bylt- ingu er hægt að sigrast á ómannúðlegri drottnun síonismans í hinni hernumdi Palestínu. Einn höfuðþátturinn í starfsemi aðildarsamtaka PLO er í dag þjálfun skæruliða og skipulagning skæruárása inn í ísrael (hina herteknu Palestínu). Sérhver aðildarsamtök PLO hafa sínar eigin æfingabúðir og stjórna skæruliðasveitum sínum, en PLO sér um heildarstjórn og skipulagn- ingu. Þvf miður gafst okkur félögunum ekki tækifæri til að heimsækja æf- ingabúðir skæruliðanna og þvf byggi ég kaflann um æfingabúðirnar í eftir- farandi grein á bðk franska rithöfundarins, Gérard Chaliand, The Palest- anian Resistance. Æfingabúðirnar I æfing'abúðum A1 Fatah, skammt frá Damascus í Sýrlandi eru 120 menn f þjálfun. Það er tveggja tíma líkamleg þjálfun á hverjum morgni: grundvallaræfingar, bardagaþj álfun, jujitsu og karate. Flestir eru f mjög góðri þjálfun. Þj álfunarnám- skeiðið, sem stendur f tvo til þrjá mánuði er mjög stíft: aginn er strangur, tfmataflan ströng, áfeng- isnotkun bönnuð og maturinn borðað- ur standandi. Matartfminn er stund- um truflaður með útkalli og hinir tilvonandi skæruliðar bregðast fljótt við og koma sér fyrir í sinni stöðu. Þjálfunarnámskeiðinu lýkur með löngum næturgöngum í öllum veðrurn Öll léttavopn, sem eru af sovéskri gerð og framleidd f Kína, eru vand- lega smurð og fægð. Það eru nægar vopnabirgðir og skæruliðaþjálfunin miðar að því að þjálfa bardagamenn í notkun flestra skotvopna og sprengjuvarpa. Það eru líka sérstök námsskeið undir sérhæfðri þjálfun í notkun sprengiefna. Flestir hinna tilvonandi skæruliða eru ungir, milli 17 og 25 ára, allir Palestínu- menn, nema tveir Tyrkir og einn Júgóslavi. Jafnframt hernaðarlegu þjálfuninni fer fram pólitísk upp- fræðsla. Það eru fyrir hendi pðli- tískar bækur, t.d. eftir Maó Tse- tung o. fl. A1 Fatah hafa komið upp tveimur búðum, sem eru aðskildar frá her- stöðvunum og þjálfunarbúðunum, er veita pólitískan og hernaðarlegan undirstöðugrundvöll fyrir unga drengi - Ashbalana (ljónsungana) - milli tíu og fjórtán ára gamla. f öðrum þessara búða, skammt frá flóttamannabúðunum E1 Bakaah, eru 350 drengir, sem skipt er f tvo hópa; annan sem kemur á morgn- anna og hinn seinni part dagsins. Þeir drengir sem ganga f skóla Sam- einuðu þjóðanna eru ekki teknir í búðirnar; þeir verða að halda áfram náminu. Ashbalarnir eru allir drengir, sem ekki ganga í skóla. Þeim er kennt að lesa og skrifa í búðunum, þar sem þeir eyða mestum hluta dagsins, áður en þeir snúa heirn í flðttamannabúðirnar til fjöl- skyldna sinna til að sofa. Þjálfun drengjanna heldur áfram þangað til þeir hafa náð fimmtán ára aldri, en þá ganga þeir í skæruliðasveitirnar. Hernaðarlega baráttan. Hinar stöðugu_skæruárásir Palest- ínumanna inn f ísrael (Palestínu) eru fyrst og fremst svar við dagleg- um árásum bæði flughers og land- hers fsraelsku síonistanna á varnar- laust fólk flóttamannabúðanna í Líb- anon, Sýrlandi og Jórdaníu, jafn- Palestfnuarabar leggja mikla áherslu á að mennta börn sm, bæði pðlitískt og hernaðarlega, til að undirbúa þau betur undir baráttuna fyrir frelsi Palestfnu. Þessi mynd er tekin a æfingu hjá "Ljónshvolpunum". T þjálfunnarbúðunum eru kennd öll undirstöðuatriði f hernaði. Arangur allra aðgerða er ræddur. framt þvf sem þær miða að þvf að veikja mátt ísraelshers og veita stuðning baráttu Palestfnumanna innan ísraels. A meðan Palestínu- skæruliðar ráðast eingöngu á hern- aðarlegá mikilvæg svæði ogherstöðv- ar f ísrael, beina síonistaherirnir meginþunga sínum að því að myrða varnarlaust fólk, konur, börn og gamalmenni innan flóttamannabúð- anna með þvf að hella gífurlegu magni sprengjuefna yfir flótta- mannabúðir nar. Fréttastofur vesturlanda hafa verið iðnar við að tfunda flugvélarán "palestínskra hryðjuverkamanna" og önnur svokölluð glæpaverk þeirra. Fyrir þessu hafa samtök Palestínu- manna verið borin og gengið svo langt, að samtökin "Svarti septem- ber" voru sögð hryðjuverkaarmur A1 Fatah. Sannleikurinn um þessi samtök er hins vegar sá, að f raun hafa þau aldrei verið til sem samtök heldur aðeins sem nafn eða yfirlýs- ingar um ábyrgð á flugvélaránum og líkum aðgerðum. En meðan Palest- fnumenn hafa verið ásakaðir um flugvélarán og morð hefur marg- ftrekuðum yfirlýsingum PLO, eina lögmæta fulltrúa Palestínumanna, um að þau fordæmi alla slíkar að- gerðir verið að mestu stungið undir stól. Jafnframt hefur varla verið minnst einu orði á sannleikann um þúsund morð og misþyrmingar síon- istaherjanna á saklausu og varnar- lausu fólki, sem hrakið hefur verið út úr landi sfnu og lifa í útlegð f flóttamannabúðum. Til að fá greinilega fram afstöðu PLO og allra aðildarsamtaka þeirra til vopnaðrar baráttu Palestfnumanna f Evrðpu, spurðum við J. Faisal, yfir- mann Evrópuskrifstofu PLO og A1 Fatah um afstöðu PLO f þessu máli. Svar hans hljóðaði svo: "PLO hefur ekki trú á vopnaðri bar- áttu Palestínumanna f Evrðpu og slík barátta er þvf í andstöðu við PLO og fordæmd af þeim. En þetta þýðir ekki, að við munum láta það afskiptalaust, að fulltrúar okkar í FRAMHALD A BLS. 12

x

Palestína

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Palestína
https://timarit.is/publication/2048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.