Palestína - 01.07.1975, Síða 6

Palestína - 01.07.1975, Síða 6
j PALESTÍNA_________________________ Saga Pakstínu á pessari Öld BARÁTTA ÞJÓDAR FYRIR TILVERURÉTTI SÍNUM j Þessi grein er byggð á löngu viðtali um rætur baráttunnar gegn síonisman- ■ um og baráttuaðferðir Palestínumanna, sem tekið var við J. Faisal, yfir- I mann Evrópuskrifstofu PLO í Beirut, þann 24. maís.l. Af öryggisástæðum l var ekki leyft að taka ljósmyndir með viðtalinu. ’ - Geturðu sagt okkur í nokkrum orð- um frá því, hvernig og hvenær gyð- ingar hófu landnám í Palestínu ? "Uppruna landnáms gyðinga og síon- ismans má rekja til ársins 1897, er síonistar héldu sitt fyrsta þing í Basel í Sviss undii forystuTheodors Herzl. Þetta þing gerði þá ályktun, að "markmið síonismans væri að stofnsetja þjóðarheimili fyrir gyð- inga í Palestínu". A þessum tíma var Palestína undir stjórn tyrkja, en bretar áttu í skærum við þá um yfirráðin vfir landinu. Alþjóðahreyf- ing síonista leitaði fulltingis breta við að fá leyfi til að hefja landnám í Palestínu og studdi með ráðum og dáð tilraunir þeirra til að eignast í- tök fyrir botni Miðjarðarhafs. Um síðustu aldamót voru fbúar Palestínu um 700 þúsund, og aðeins 8% íbú- anna voru gyðingar, og þeir áttu 2,5% jarðnæðisins. En strax um aldamót- in hófst landnám gyðinga, þó að í af- arlitlum mæli væri til að byrja með. Arabar tóku þessum fyrstu innflytj - endum mjög vel og aðstoðuðu þá til að hefja nýtt líf f nýju landi. " - Hvaða áhrif hafði heimsstyrjöldin fyrri á þróun mála í Palestínu ? "Bretar sáu gullið tækifæri til að ná yfirráðum fyrir botni Miðjarðarhafs, þegar stríðið braust út. Þá stóðu tyrkir með þjóðverjum, svo landvinn- ingastríð á hendur þeim var tilvalið. Bretar lofuðu arabalöndunum sjálf- stæði að strfðslokum, ef arabar tækju þátt í baráttunni gegn tyrkjum. Þetta varð til þess að 1917 gerðu palestínuarabar uppreisn gegn Otto- manveldinu og gengu í lið með bandamönnum. Auðvitað sviku bret- ar öll loforð, sem þeir gáfu aröbum, en skiptu í stað þess arabalöndunum milli sín og fraldca, og gerðu þau að nýlendum sínum. En síonistar höfðu mikil áhrif á stríðsrekstur breta í gegnum Rotschild, sem studdi þá með fé. Þannig tókst þeim að fá loforð breta fyrir stofnun sér- staks gyðingaríkis í Palestínu með yfirlýsingu frá Balfour utanríkisráð- herra þ. 2. nóv. 1917." - Ilver var þróun mála á millistríðs- árunum ? "I kjölfar Balfour-yfirlýsingarinnar hófst mikill innflytjendastraumur gyðinga til Palestínu, þó hann væri ekki í nálægt slfkurn mæli sem síon- istar höfðu vonað. Gyðingar fluttu yfirleitt ekki nema nauðbeygðir til Palestínu, eins og t. d. er þeir flýðu undan ofsóknum fasismans í Evrópu. A tfmabilinu 1918-1948 fjölgaði gyð- ingum f Palestínu um 600. 000, þann- ig að við stofnun Israelsríkis voru þeir 33% fbúanna og áttu 5,67% alls jarðnæðis (tölur frá bresku nýlendu- stjórninni). Þegar við sáum að breska nýlendu- stjórnin gekk á rétt palestínuaraba og jók stöðugt aðstoð sína við inn- flytjendur og lög og réttur voru not- uð til að stela jarðnæði og híbýlum til handa gyðingum og að Balfour- yfirlýsingin var greinilega orðin að stefnu breta í Palestínu, hófum við uppreisn. Fyrsta uppreisnin stóð árin 1919-1921 en var þá barin nið- ur. Öll millistríðsárin geisaði bar- átta milli okkar og breta og gyðinga. Við gerðum uppreisnir árin 1929, 1934, 1936, 1947 og 1948, sem allar voru brotnar á bak aftur. Bretar settu palestínuaraba undir herlög sem bönnuðu öll almenn lýðréttindi, s.s. málfrelsi, fundafrelsi og prent- frelsi. Öll vopnaeign var bönnuð, og t.d. var gefin út sérstök reglu- gerð um hvernig borðhnífar okkar skyldu vera, þannig að ekki væri hægt að nota þá sem vopn. Ef menn brutu vopnaeignabannið, var refs- ingin tafarlaus líflátsdómur. Þau 30 ár, sem bretar réðu landinu kost- uðu okkur mikið: - 196 íöðurlandsvinir voru hengdir. - 300 föðurlandsvinir voru dæmdir til ævilangrar þrælkunarvinnu. - Þúsundir palestínuaraba voru sett- ar í fangabúðir. - 50. 000 arabar voru drepnir af bret- um í þessi 30 ár. Mestum árangri náðum við í uppreisn- inni 1936. Þá réðum við stórum hluta Palestínu í 6 mánuði, og um alla Palestínu var allsherjarverkfall í 6 mánuði til að mótmæla stjórn breta. Er síðari heimsstyrjöldin braust út, gerðum við hlé á barátt- unni gegn bretum, því við fengum loforð frá Abdullah konungi um, að er stríðinu lyki, yrði reynt að leysa málin okkur f hag. Líka gengu kon- ungar Saudi-Arabíu og Egyptalands á milli og lofuðu lausn að stríðinu loknu. Með stríðinu kom mikil alda innflytj- enda til Palestínu. Flestir þeirra komu því þeir höfðu engan annan stað að fara til. Flest lönd Vestur- Evrópu og Ameríku sem ekki voru undir hernámi nasista neituðu að taka við gyðingum, sem flýðu undan ofsóknum nasismans. Bandaríkja- menn tóku aðeins þá sem voru mennt- aðri og sem þeir þörfnuðust, Kanada meinaði öllum gyðingum aðseturs, Astralfa líka, svo það var ekki um marga staði að ræða." - Hvernig undirbjuggu síonistar stofnun Israelsríkis á árunum 1945 - 1948? "A þessum árum var um að ræða samsæri síonista og breta gegn pal- estínuaröbum. Við hófum uppreisn- ir gegn bretum og síonistum, sem voru miskunnarlaust barðar niður. Síonistar hófu sýndaruppreisn gegn bretum, sem í raun var stefnt gegn palestínuaröbum. Nýlendustjórn breta hvatti til og stuðlaði að stofn- un pólitískra og hernaðarlegra sam- taka gyðinga, en leysti upp öll sam? tök okkar, jafnt pólitísk, hernaðar- leg og menningarleg. En hin svo- kallaða uppreisn gyðinga gegn bret- um fékk aðrar viðtökur en okkar bar- átta: Þeir fengu öll sfn vopn frá bretum, þeir voru þjálfaðir af bret- um, gyðingar sem verið höfðu í breska hernum á stríðsárunum voru hvattir til að flytja til Palestínu, allt var gert til að auka innflytjenda- strauminn og styðja við bakið á síon- istunum. Fram til 1947 réðumst við ekki gegn gyðingum; meginbarátta okkar var gegn bretum en ekki þeim. Við byrjuðum ekki að ráðast gegn þeim fyrr en þeir hðfu hryðjuverka- árásir gegn alþýðu Palestínu. 1 þessum árásum beittu sfonistar fyrir sig þremur litlum hryðjuverka- herjum, Irgun, Haganah og Stern- Gang. Markmiðið með árásunum var að skapa upplausn meðal araba, hræða þá burt af jörðum sínum og út úr Palestínu. Eitt illræmdasta hryðjuverk sem þeir frömdu og sem varð þekkt um heim allan, sökum þess að það var starfsmaður Alþjóða rauða krossins, sem afhjúpaði það, en er þó ekki einstakt, voru fjölda- morðin við Deir-Yasseen. Þann 8. apríl 1948 réðist hópur Irgun manna inn í bæinn Deir-Yasseen og drápu með köldu blóði alla fbúa hans, jafnt karla, konur sem börn, alls 349 manns. Mörgum árum síðar fann ísraelskur herdómsstóll foringja Irgun-hópsins sekan um stríðsglæp, og hann var dæmdur til að borga 1 (eitt) ísraelskt pund í sekt! Þessi verknaður og aðrir svipaðir ollu mikilli skelfingu meðal alþýðu okk- ar, því hvað getur vopnlaust fólk gegn morðingjum .með hríðskota- byssur (þú manst, að lög breta mein- uðu fbúum Palestínu meira að segja að eiga borðhnffa) og fjöldi palestínu- araba flýði land. Þess má kannske geta hér, að meðal þekktustu yfir- maima í hryðjuverkaherjum síonista voru þeir Moshe Dayanog Shanon" (yfirmaður stórs hluta herafla Isra- els í 6daga-stríðinu/aths. ÖI). RALESTlNAŒ} - Hvernig brugðusi palestínuarabar við, er Ben Gurion lýsti yfir stofnun Israelsríkis 1948? "Bretar ákváðu mjóg skyndilega að draga sig út úr Palestínu, og gerðu það þann 15. maí 1948. Þá var land- ið í upplausn, mikil ringulreið og hræðsla meðal pal^stínskrar alþýðu, sökum undangengú®ar hryðjuverka- herferðar síonista, Sfonistar lýstu yfir stofnun Israelsríkis þann sama dag, en höfðu nokktum klukkustund- um áður ráðist með her sínum gegn okkur í Jerúsalem °g vfðar um land- ið. Herir frá Jórcíaníu, Sýrlandi og Egyptalandi komu okkur "til hjálpar", en það var lítil hjálp í því. Við verð- um að hafa í huga, að á þessum tíma voru þessi lönd unúir breskri og franskri stjórn, og herir þeirra gerðu lítið annað en að skipuleggja undan- hald og jafnvel aftxa olckur frá því að berjast. NiðurstöSur árásar síon- istanna gegn okkur 1948 urðu þær, að 78% Palestínu voru lögð undir Isra- elsríki, 20,5% koniust undir stjórn Jórdaníu og Egyptaland tók Gasa- svæðið. 750. 000 palestínuarabar voru gerðir landlaiisir flóttamenn, og urðu að leita halis í nágranna- löndunum. " - Hvernig fór baráttan fram af hálfu palestínUmanna eftjr 1948 og fram til 1965, er Al-Falah var stofnað? "Við vorum algerloga hindraðir í að hafa nokkuð forræði um okkar eigin mál. Sáttasemjari Sameinuðu þjóð- anna, Bernadotte greifi, rannsakaði ástandið og lagði þ, 17. september 1948 fram tillögu ''m framtíð Palest- ínu, sem fólst í þvf að 3/5 hlutar landsins skyldu tilkeyra palestínu- mönnum og 2/5 fsiaelsríki, og enn fremur skyldi okk r bættur missir landa og fasteigna, sem gyðingar höfðu tekið yfir. Hann var myrtur daginn eftir af hermönnum úr fsra- elsher, og tillagan aldrei rædd. En SÞ samþykktu I nóvember sama ár tillögu sem fól í scr skiptingu Pal- estínu, þar sem róeira en 50% lands- ins skyldu tilheyra gyðingum, og brutu þannig jafnt inannrétcindayfir- lýsingu sjálfs.sfn og gerðu að engu rétt okkar til sjálftákvörðunar. All- ar götur síðan og }>ar til á síðasta ári hafa SÞ kosið í ð lfta á spurning- una um Palestínu íinungis sem flótta- mannavandamál. I' dag er þetta að breytast, er þriðji heimurinn er að koma fram sem st/rkara afl á al- þjóðavettvangi." - En hvernig var kbmið fram við ykkur í hinum aralalöndunum - var litið á palestínuartba sem þjóð? "Já, það var komið fram við okkur sem þjóð, en sem þjóð án réttar til sjálfsákvörðunar. Okkur var bannað að berjast gegn ísrael, engin vopn leyfð, engin þjálfun, búðirnar voru alltaf umkringdar her og lögreglu og okkur var haldið í algeru volæði. Sú kenning var sett fram að arabalönd- in myndu sjá algerlega um öll okkar mál gagnvart Israel, og við skyldum bara vera rólegir og híma í búðunum án atvinnu og án nokkurrar framtfð- ar. Allar tilraunir til að mótmæla voru barðar niður, og í Jórdaníu var raunverulega komið fiiam við okkur sem skepnur. Við höfðum aldrei nein mannréttindi þar. Þannig var ástandið hjá okkur allt fram til 1965, þegar við lýstum yfir upphafi palest- ínsku byltingarinnar. Þá kom Al- Fatah fram í dagsljósið og vonin um nýja framtíð í Palestínu fékk byr und- ir báða vængi." - En viðhorfið til palestfnuaraba hefur breyst í arabalöndunum ? "Vissulega, en emxþá eru viss araba- rfki að reyna að finna lausn fyrir okkur, en sá er munurinn, að í dag og allt frá 1965 höfum við verið að reyna að leysa palestfnuvandamálið sjálfir, og það mun enginn leysa það fyrir okkur. Fyrir 1965 var engin rödd, sem talaði fyrir okkur. I hverju einasta arabalandi voru fang- elsin full af palestínuaröbum sem reynt höfðu að berjast, og það átti sérstaklega við um Jórdaníu. Auðvitað vorum við að mestu leyti neðanjarðar og unnum mest inni á herteknu svæðunum. Þannig var á- standið fram til 1967 er síonistar réðust gegn arabalöndunum. Þá brotnuðu herlið arabalandanna saman þvf þeir voru ekki reiðubúnir. Þetta á sérstaklega við um her Jórdaníu, sem einfaldlega flýði á öllum vfg- stöðvum. Þetta sést best á því að Jórdanir misstu aðeins 300 manns. Hermenn Jórdaníu höfðu úrelt vopn og lélega stjórn og hermennirnir einfaldlega yfirgáfu vígstöðvarnar og fóru heim. Heimspressan vildi láta þetta líta út sem stórhernaðar- sigur Israels, en staðreyndin var sú, að þeir mættu engri mótspyrnu. I Jerúsalem voru 12 jórdanskir her- menn til varnar svo að það varð fsra- elsmönnum auðveldur biti. Það tók jórdanska herinn 1 ár að ná sér eftir þetta áfall, og þá komum við upp á yfirborðið í Jórdaníu, og frelsisher- inn tók að safna liðsmönnum þar. En árás sfonistanna hafði þær afleið- ingar að 400. 000 palestínuarabar urðu að flýja, og sumir þeirra í annað sinn frá 1948. Það er stefna síonistanna að hafa sem fæsta araba innan landamæra "Stór-Israels."" - Hvenær var fyrsta stðr-orrustan sem skæruliðar palestínuaraba háðu við ísraelsher ? "Það var þ. 23. mars 1968 við Al. Karami flóttamannabúðirnar. Við börðumst þar á móti miklum herafla ísraelsmanna, sem höiðu stórskota- lið og flugvélar sér til fulltingis. Okkur tókst að sigra og óvinurinn varð að hörfa við mikið mannfall, 1.200 manns fallnir og særðir, en við misstum aðeins 108 manns. Við þennan atburð varð Al- Fatah eina raunverulega aflið í Jórdanfu. Þetta var f fyrsta skiptið sem arabar höfðu mætt fsraelsmönnum f bardaga og sigrað, og þetta þýddi f arabaheim- inum, að við og frelsishermenn oldx- ar, fedayeenarnir, vorum viður- keimdir sem ail." - Nú byrjar frelsishreyfingin að safna liðsmönnum opinberlega 1968. Hvaða erfiðleikum mætti hún f sam- bandi við þjálfun, aga o.þ.h. ? "Sérhver bylting hefur sfnar eigin reglur og sérhver byltingarher verð- ur að hafa reglur og aga til að geta þjónað markmiðum byltingarinnar. Við námum hugmyndafræði Al-Fatah, reynslu annarra þjóðfélagsbyltinga, lærðum af eigin resmslu f gegnum gagnrýni, og agi var strangur til að geta gefið byltingarsinnað fordæmi. Öllum hermönnum okkar er skylt að vera tilfyrirmyndar í hegðun og reglusemi, og neysla áfengis er ekki leyfð. En þegar við vorum allt í einu orðnir jafn réttháir og jórdanska lögreglan, sem hafði kúgað okkur og pínt í 25 ár er oft erfitt að halda ag- ann. Fyrir 1968 var ekki einn ein- asti af mínum jafnöldrum og jafnvel yngri mönnum (Faisal er um 45 ára /aths. ÖI), sem ekki hafði verið barinn og pfndur af jórdönsku lög- reglunni. Ég var sjálfur næstum barinn til óbóta 1967. Þannig kom oft til smáárekstra milli okkar og yfirvalda f Jórdanfu, þegar við reyndum að hefna okkar. Þetta var eitt af þvf, sem Hussein-afturhaldið notfærði sér þegar hann réðist gegn okkur árið 1970. En raunverulega ástæðan var sú, að við gáfum for- dæmi fyrir kúgaða alþýðu Jórdaníu um, hvernig hægt er að losa sig undan kúgun og áþján, og að Huss- ein var með þessu að losa sig út úr framlínunni gegn ísrael, sem hann ' viðurkennir hálft f hvoru. Þegar hann réðist gegn okkur var það á tfma, þegar aðgerðir okkar gegn Israel voru í hámarki. Flestar að- gerðirnar voru unnar frá vestur- bakka Jórdan, og eitt af markmiðum Hussein var að afvopna okkur - sjálfum sér og Israel til góða. Einn- ig var hann að berjast fyrir því, að hann yrði viðurkenndur sem eini fulltrúi palestínuaraba innan Jórdan- fu." - Gæti atburður sem september 1970 átt sér stað f dag með jafn alvarleg- um afleiðingum? "Nei. 1 fyrsta lagi eru flestar að- gerðir okkar gegn ísrael unnar innan frá, svo að 'rás gegn okkur af hálfu einhvers arabalands gæti ekki haft sömu lamandi afleiðingarnar og 1970. I öðru lagi hefur PLO í dag náð við- urkenningu á heimsmælikvarða sem eini löglegi fulltrúi palestfnuaraba og staða okkar er miklu sterkari en þá. Og í þriðja lagi er samúð allrar alþýðu í arabalöndunum með okkur það sterk að engin ríkisstjórn gæti ráðist gegn okkur eins og Hussein gerði 1970. Þetta hafa falangistarnir verið að reyna hér í Líbanon undan- farna tvo mánuði, en niðurstaðan er sú að þeir eru algerlega einangrað- ir, farið hefur verið í allsherjar- verkfall gegn þeim, og 90% þjððar- innar styður málstað okkar í þessu máli." - Hvað eru margir palestínuarabar flóttamenn f dag ? "Palestfnuarabar eru f dag um þrjár og hálf milljón talsins. U.þ.b. helm- ingur þjóðarinnar lifir undir kúgun ísraels og síonistanna en tæpar tvær milljónir eru flóttamenn. Síonistar segja að Israelsríki sé ávöxtur þess að landlaus þjóð hafi komið til lands án þjóðar. Golda Meir sagði þ. 15. júnf 1969: "Það eru ekki til neinir palestínuarabar, og þeir hafa aldrei verið til." En við erum vissulega til, ogjiegar heil þjóð er risin upp til barattu getur ekkert stöðvað hana. Það er lærdómur sem draga má af sögunni, það er lærdómur sem í dag er að sannast um heim allan eins og t.d. í IndóKfna, og það er lærdómur sem sfonistar eiga eftir að læra. Hversu mjög sem þeir ljúga, geta þeir aldrei þröngvað lyginni upp á raunveruleikann. Ég tek undir orð Yasser Arafats: Þegar strfð brýst út í Palestínu verður markað upphafið að friði í Palestfnu." -/01 )

x

Palestína

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Palestína
https://timarit.is/publication/2048

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.