Palestína - 01.07.1975, Qupperneq 9
PALESTtNA ■> '
Rauði hálfmáni Palestínu -
eitt af baráttu tækjum
palestínsku þjóóarmnar
Það var árið 1969 sem í iyrsta skipti í sögu palestínsku þjóðarinnar var
sett á laggirnar stofnun sem annast skyldi heilsugæslu - Rauði hálfmáni
Palestínu. Forgöngu um stofnun hans hafði PLO og var hún liður f að gera
Palestínuaraba sjálfstæða á sviði heilsugæslu, og sem slík, þáttur f frels-
isbaráttunni.
Frá þeim tíma að Palestfnuarabar voru gerðir útlægir frá heimalandi sínu
árið 1948, veittu alþjðða Rauði krossinn og hjálparstofnanir í Arabalöndun-
um þeim alls kyns hjálp, t.d. alla nauðsynlegustu læknisþjónustu, nauðsyn-
leg búsáhöld f tjöldin o.s.frv. Arið 1950 tók UlíRWA (Hjálparstofnun SÞ)
yfir þetta hlutverk. En læknishjálpin sem UNRWA veitti var aldrei full-
nægjandi fyrir þarfir Palestínuarába. Hún var aldrei annað en bráðabirgða-
ráðstöfun. Þíirí' á breytingu var orðin mjög knýjandi. Rauði hálfmáni Pal-
estfnu opnaði sína fyrstu deild f Kuwait 1969 og viðbrögðin urðu undraverð.
^Stuttu seinna voru deildir opnaðar vfða um Arabalöndin. ^
Starf RHP að heilsugaeslu og læknis-
þjónustu
Sem andsvar við þörfum allrar pal-
estínsku þjóðarinnar hefur RHP reynt
allt frá upphafi að auka fjölbreytni í
þjónustu sinni og víkka út starfssvið
sitt. Þar með eru talin hlutverk sem
í öðrum löndum eru í höndum sér-
stakra ráðuneyta og stofnana, t. d.
félagsleg hlutverk, heilbrigðiseftir-
lit o.þ. h. Svo að í dag eftir 6 ára
starfsemi sér RHP um endurhæfing-
arnámskeið fyrir særða og fatlaða,
alls kyns upplýsingajijónustu og starfs-
þjálfun auk læknisþjonustunnar. Eitt
af markmiðunum á sviði heilsugæsl-
unnar er að setja á stofn sjúkrahús í
hverjum flóttamannabúðum, sem
hafa 20. 000 íbúa eða fleiri, og þá
jafnt með almennri læknisþjónustu,
handlækningadeild og skurðstofu.
Þó að árangurinn af starfi stofnunar-
innar hafi verið gífurlegur á hún enn
langt í land í s júkrahúsmálunum.
Nokkrar flóttamannabúðir hafa enn
engin sjúkrahús, og víða eru of fá
sjúkrarúm og ófullkomin fæðingar-
hjálp. Það sem helst háir RHP á
þessu sviði er fjármagnsskortur.
Mörgum sjúkraskýlum hefur verið
komið á stofn til að þjóna búðunum.
Vandamálin eru mörg, því ýmsir
skæðir sjúkdómar eru útbreiddir
sökum þéttbýlis og ills aðbúnaðar.
Þótt fjöldi lækna, hjúkrunarfólks,
lyfjafræðinga og annars starfsfólks
á þessu sviði haldist nú stöðugur,
er þörf á fjölmennara starfsliði því
hvert sjúkraskýli þarf a. m.k. 3
lækna auk annars starfsliðs, og
sjúkraskýlin eru alls rúml. 70 tals-
ins. RHP þjálfar slíkt starfslið í
skólum sem hann rekur víða um ar-
abalöndin. Nemendunum er |jar
kennt hvernig eigi að takast a við það
ástand sem þeir eru líklegastir til
að starfa við. Skólarnir þurfa að út-
skrifa það marga, að nægt starfslið
sé í öllum sjúkraskýlunum, tann-
lækningastofunum, læknamiðstöðv-
unum, sjúkrahúsunum og ferðasjúkra-
húsunum.
Efling RHP á sviði læknavísinda hef-
ur leitt af sér náið samstarf við op-
inberar stofnanir í arabalöndunum
hvað varðar læknisfræðilegar rann-
sóknir. Allt samstarf við arabalönd-
in er talið mjög mikilvægt, því þann-
ig er oft hægt að ná betri árangri.
T. d. vinna þeir nú með Almanna-
tryggingum hinna ýmsu arabaríkja
að stofnun sam-arabískrar hjálpar-
miðstöðvar. Arangur þessa er, að
RHP vimiur ekki aðeins fyrir palest-
ínuaraba, heldur þjónar á sam-arab-
ískum grundvelli.
og hermenn sem hafa bæklast. Mik-
ilvægur hluti starfsmannanna búa
inni á herteknu svæðunum, u.þ.b.
3.000, en aðrir eru dreifðir um ar-
abalöndin.
Félagsmáladeildin reynir eftir megni
að kenna fötluðu fólki og þurfandi
fjölskyldum einhverja iðn við þeirra
hæfi. Hún iðmnenntar fólk á her-
teknu svæðunum svo það geti verið
sem mest óháð framleiðsluskipulagi
óvinanna, hjálpar þeim sem særst
hafa til að framfleyta sér, og að-
stoðar fjölskyldur pólitískra fanga,
og á allan hátt að hækka fjárhags-
stöðu palestínskra fjölskyldna. Iðn-
þjálfun er margs konar, og menn
geta valið á milli útvarps- og raf-
virkjanáms og tungumálanáms.
Aprfl 1975 - Rauði hálfmáni Palestfnu bregður skjott við. Hér er verið
að sinna einu af fórnarlömbum ógnarárása Falangista f Beirút, Libanon.
Starf RHP að félagsmálum
Innan félagsmálanefndar RHP er
starfrækt deild, sem sér sérstaklega
um að menningu palestínuaraba sé
viðhaldið. Víða eru sýningar haldn-
ar á handiðnaði alþýðunnar. Þar er
að finna tréskurðarmyndir, teppi, út-
saum o. fl. Heiðurssætið á þessum
sýningum skipar safn af útsaumuðum
kjólum frá hinum ýmsu héruðum
Palestfnu. Hvert hérað hefur sín
sérstöku munstur og liti. Einn af
fulltrúum félagsmálanefndarinnar,
Umm Walid, skýrði tilgang sýnirg-
anna þannig:
"Það er algjörlega nauðsynlegt fyr-
ir okkur að leggja rækt við iðkun
palestínsku alþýðulistarinnar, því
brottrekstur okkar frá heimalandi
okkar, og hversu við dreifðumst
víða leiddi til hnignunar á henni.
Sjálfur brottreksturinn gerir söfn-
un og skýringu á listinni mjög erf-
iða. Þó að ég hafi kynnt mér al-
þýðulistina í 10 ár, verð ég oft að
leita til eldra fólksins til að fá
skýringar á ýmsu, t. d. sniði og
munstri á kjólum."
Tilgangur sýninganna er ekki ein-
göngu menningarlegur, þær skapa
launuð störf fyrir u. þ. b. 8 þúsund
manns, því þær gera það mögulegt
að koma handiðnaðinum í sölu.
Flestir starfsmennirnir eru konur,
Nefndin þakkar erlendum vinum víða
um heim fyrir að hafa gengist fyrir
sýningum á palestfnskum handiðnaði,
þvf slíkar sýningar kynna sögu fólks
sem hefur orðið að þola það að láta
óvini sfna stela menningu sinni og
jafnvel gera hana að sinni eigin.
Einn liður í þvf hjálpar- og uppbygg-
ingarstarfi sem RHP og PLO vinna,
er SAMED ("Synir píslarvottanna").
SAMED er félagsskapur sem sér um
rekstur verksmiðja og verkstæða og
dreifingu afurða þeirra. SAMED
einbeitir sér að því að veita fjöl-
skyldum sem misst hafa meðlimi,
feður eða mæður í frelsisbaráttunni
launuð störf, og tryggja þeim þar
með efnalega afkomu. Verksmiðjur
þessar og verkstæði eru starfrækt
við flestar fíóttamannabúðirnar.
Þær framleiða allar tegundir fatnað-
ar, og tryggja öllum palestínuaröbum
fatnað á verði, sem ákvarðast af
tekjum fólksins, þannig að enginn er
klæðlaus sökum þess að hann hafi
litlar tekjur. Framleiðsla SAMED
er líka seld um öll arabalönd og
jafnvel víðar. SAMED sér einnig um
starfrækslu handiðnaðarverkstæða
innan flóttamannabúðanna. SAMED
er rekið á samvinnugrundvelli, og er
mikilvægur liður f að skapa þjóðar-
vitund og anda samvinnu. Þannig er
verkafólk SAMED pólitískir og þjóð-
félagslegir baráttumenn.
FRAMHALD A BLS. 11