Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Qupperneq 3
Kæru gestir
Velkomnir á Afmælismót aldarinnar, sem
haldið er til að minnast 40 ára afmælis
Einvígis aldarinnar. Einvígisins 1972 á milli
Spassky og Fischer sem kom Reykjavík á kortið.
Viðburðurinn hefur verið á
listum yfir merkilegustu atburði
20. aldarinnar, nreðal annars að
mati BBC.
Míkil skákbylgja kom í
framhaldi af einvíginu, og
bytjuðu ungir drengir að tefla
kringum einvígið sem síðar
urðu stórmeistarar. Það er því
tilvalið að halda stórt barnamót nú á 40 ára afmæli
mótsins, sem og svokallaðan heiðursflokk mótsins
sem er fyrir skákmenn 60 ára plús og eru því af
sömu kynslóð og þeir meistarar senr háðu einvígið.
Stjórn Skáksambands Islands, undir forystu
Guðmundar G. Þórarinssonar, sem og aðrir sem
komu að einvíginu, unnu sannkallað þrekvirki á
sínum tíma og verður seint þakkað fyrir að landa
einvíginu og halda það með þessum myndarbrag.
Eg vil þakka öllum þeim sem koma að þessari
afmælishátíð. Skákakademíunni, taflfélögum
borgarinnar og síðast en ekki síst Reykjavíkurborg
sem átti frumkvæðið að hátíðinni og hefur staðið
myndarlega á bak við hana.
Gens Una Sumus -Við erum ein fjölskylda,
Gunnar Björnsson,
forseti Skáksambands Islands.
Þúsund börn
fíY-f
Þá er kennsla Skákakademíunnar farin af stað eftir sumarleyfi grunnskólanna
Mikil tilhlökkun er í skákkennurunum en samanlagt kenna kennarar
Skákakademíunnar rétt yfir 1000 börnum í hverri viku, þar af tæplega 300
á mánudögum! Góð samvinna hefur náðst við grunnskóla borgarinnar og
stjórnendur þeirra síðustu árin. Eins og síðasta vetur er
lögð áhersla á að skákkennslan fái sinn stað á stundatöflu
nemenda — rétt eins og önnur fög. Sífellt fleiri skólar hafa
farið þessa leið, sem er rnikið gleðiefni þvi þannig verður
umhverfi skákkennslu eins og hvað best verður á kosið. Fleiri
og fleiri kennarar, stjórnendur og foreldrar hafa sannfærst um
ágæti skákiðkunar fyrir börn. Margar erlendar rannsóknir
hafa sýnt fram á góð áhrif skákkennslu á námsgetu. En ef
til vill þarf ekki þessar rannsóknir til að átta sig á góðum
áhrifum skákiðkunar á börn. Þær staðreyndir að í skák beita börnin fyrir sig
sinni eigin hugsun og sköpunargáfu, bregðast við nýjum aðstæðum eftir hvern
leik, sýna andstæðingnum virðingu með því að taka í hönd hans fyrir og eftir
skák og tefla á taflborði sem er lítið hnitakerfi, gæti verið nóg til að sannfærast
um ágæti skákiðkunar. Með öðrum orðum; það ætti að vera hveijum sem er
nokkuð augljóst að skáknám er góð viðbót við verkefni skólabarna. Sérstaklega
í hinu nútímalega umhverfi sem er innan skólanna, þar sem óhefðbundnar
kennsluaðferðir ryðja sér til rúms svo að allir nemendur fái að njóta sín.
Afmælismót aldarinnar er nú haldið til að minnast Einvígis aldarinnar haldið
1972. Árið 1992 þá átta ára gamall fylgdist ég með einvígi Fischers og Spasskys
í Sveti Stefan, sem haldið var til að minnast 20 ára afmæli Einvígisins og fékk
gríðarlegan skákáhuga — hann hefur haldist síðan. I menntaskóla gerði ég yfir
10 verkefni um Fischer og Spassky eða Einvígið, hvort sem það var að skrifa
um frægan mann í ensku eða stór ritgerð í sögu. Og í dag, 15. september 2012,
er ég þeirrar gæfu smiður að fá að koma þessu skemmtilega móti, Afmælismóti
aldarinnar.
Til hamingju með daginn kæru vinir,
Stefdn Bergsson,framkvœmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur.
Undirbúningsnefnd: Kjartan Magnússon formaður, Óttarr Ólafur Proppé, SóleyTómasdóttir og Diljá Ámundadóttir. Framkvæmdahópur: Stefán Bergsson
mótsstjóri, Gunnar Björnsson, Helgi Ólafsson, Vigfús Vigfússon, Gunnar Freyr Rúnarsson, Helgi Árnason, Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, Hrafn Jökulsson,
Róbert Lagerman. Hönnun: Jón Óskar. Prentun: Prentmet.
3