Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Blaðsíða 8
r | $ . V
i > • x útsj e
SKÁKDAGATAL
BARIMA 2012-13
Fyrir utan hinar reglulegu æfingar taflfélaganna eru fjölmörg mót haldin yfir veturinn.
íslandsmót í aldursflokkum og alls konar skemmtileg mót félaganna. Flest mótin taka
einn dag og 2-4 klukkutíma, en stöku mót eru haldin á tveimur dögum. Flest mótin eru
keppendum að kostnaðarlausu.
Hér að neðan má finna það helsta, nákvæma mótaáætlun Skáksambands íslands má svo finna á skak.is.
Á skak.is birtast svo nánari upplýsingar um alla þessa viðburði þegar þeir nálgast.
20. - 21. okt Skákbúðir Fjölnis.Tilvalið fyrir alla skákkrakka.
28. - 29. okt Unglingameistaramót Hellis.
2. - 4. nóv Unglingameistaramót íslands. Drengja- og telpnameistaramót íslands.
Teflt um íslandsmeistaratitla í nokkrum flokkum.
10. nóvTorgmót Fjölnis. Skemmtilegt mót í Grafarvogi með flottum vinningum.
24. nóvember (slandsmót unglingasveita. Krakkar tefla fyrir sín taflfélög.
2. des JólaskákmótTR og skóla- og frístundasviðs íyngri flokki. Reykvískir skólar keppa innbyrðis.
3. des JólaskákmótTR og skóla- og frístundasviðs í eldri flokki. Reykvískir skólar keppa innbyrðis.
22. des Jólapakkamót Hellis. Frábært og fjölmennt krakkamót rétt fyrir jólin - haldið í Ráðhúsinu.
12. janúar íslandsmót barna, fædd 2002 og yngri.
26. janúar Skákdagurinn til heiðurs Friðrik Ólafssyni.
2. feb (slandsmót grunnskólasveita í stúlknaflokki.
3. feb íslandsmót stúlkna.
11. feb Reykjavíkurmót grunnskólasveita.
17. feb Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur. Stúlknameistaramót Reykjavíkur.
16. mars íslandsmót barnaskólasveita.
25. mars Páskaeggjamót Hellis.
13. -14. apríl (slandsmót grunnskólasveita.
21. - 23.júní Skákhátíð á Ströndum. Sannkölluðfjölskylduhátíð sem sífellt verður fjölmennari og vinsælli -
takið þessa helgi frá og komið á Strandir!
Fyrir utan þessa viðburði verður fullt afskemmtilegum mótum!
Fylgist með á bestu skákfréttasíðu landsins, skak.is
Öllum fyrirspurnum um mótin er svarað í skakakademia@skakakademia.is
8