Skák


Skák - 01.12.2002, Blaðsíða 33

Skák - 01.12.2002, Blaðsíða 33
bxc5 fixc5 40. Aal Hxc2 41. g5! íxg5 42. Hxe5 h3 43. <ý>xh3 Hb3 44. <á?g4 fixg2 45. *f5 flb7 46. flh6 <á?g8 47. flh8! # 1 I ■ ■ 1 i ■| i ■ H1 I [1:0] I annari umferð gerði ég jafntefli með svörtu gegn Vladimir Sutorikhin. Sigurbjörn hafði svart gegn syni hans og gerði einnig jafntefli. Magnús hafði hvítt gegn Sárosi sem virtist jafna taflið nokkuð örugglega eftir byrjunina. Magnúsi tókst hins vegar að ná smávægilegu frumkvæði eftir drottningar- kaup og sveið að lokum Ung- verjann skemmtilega í riddara- endatafli. Eg var bærilega sáttur með upphafið en í þriðju umferð fór að síga á ógæfuhliðina. Þá mætti ég Sutorikhin yngri með hvítu. Ég tefldi ekki nógu nákvæmt gegn Pirc/Philidor samkrulli hans. Rússinn hrifsaði til sín frumkvæðið með vel tímasettu gegnumbroti á miðborðinu. Hann uppskar svo mjög vænlegt endatafl sem dugði til sigurs. Sigurbjörn hafði hvítt á hergbergisfélagann Magnús og gerðu þeir stutt jafntefli í Lasker-Pelican afbrigði Sikileyj- arvarnar. Ég mætti Sigurbirni með svörtu í fjórðu umferð. Hugðist ég koma á óvart og beitti af- brigði í Sikileyjarvörn sem ég hafði einungis beitt stöku sinn- um í hraðskák. Það kom í bak- ið á mér, lenti í stöðu þar sem ég hafði lítið mótvægi gegn frum- kvæði hvíts á kóngsvæng. I tímahraki misreiknaði ég mig í taktíkinni en þá voru varnir kóngsins brostnar og staðan töp- uð hvort eð var. Magnús hafði hvítt gegn Schwartz sem beitti Tískuvörn. Magnús lagði til at- lögu með því að fórna peði (e4- e5-e6) en mun ekki hafa fundið sterkasta framhaldið, lenti í verra endatafli og tapaði. Við Magnús mættumst í fimmtu umferð og hafði ég hvítt. Lék ég af mér miðborðspeði með fáránlegum hætti eftir fáa leiki og tokst aldrei að skapa neitt mót- spil. Óneitanlega þótti mér súrt í broti að tapa þriðju skákinni í röð en verst fannst mér þó að leika af mér svo snemma og fá ekki að tefla almennilega skák. Sigurbjörn hafði svart á Hodjko í æsilegri skák Upp kom skoskur leikur og hrifsaði Sigurbjörn fljótlega frumkvæðið. Óveðurs- ský hrönnuðust upp yfir kóngi Rússans. I tímahraki fyrir 40. leik fann Sigurbjörn hins vegar ekki öflugt framhald og Hodjko tókst að stöðva sóknina og kom út tveimur peðum yfir. Sigur- börn átti einhverja þráskákar- möguleika þó staðan væri líklega töpuð. Urvinnslan fórst Hodjko hins vegar illa úr hendi en Sigur- björn sýndi sína frægu baráttu- gleði og náði jafnteflisstöðu. Tók nú við æsilegt tímahrak þar sem Hodjko lék m.a. hróki beint í dauðann en Sigurbjörn tók því miður eldd eftir því. Síðasta af- leikinn í hrakinu átti svo Sigur- björn og beið því heldur súran ó- sigur. I sjöttu umferð tókst mér að binda enda á taphrinuna og koma um leið fram nokkrum hefndum fyrir Sigurbjörn með því að leggja Hodjko með hvítu. Sigurbjörn lagði Vamos með hvítu. Magnús gerði jafntefli við Reiss með hvítu, en sá síðar- nefndi hafði unnið fjórar skákir í röð eftir tapið gegn mér í fyrstu umferð. Skákin Páll-Hodjko Páll Þórarinsson - Hodjko V. L <§ð£3 ^ðf6 2. c4 g6 3. ^c3 É,g7 4. e4 d6 5. d4 c6 [5. - 0-0 er að sjálfsögðu langalgengasti leikurinn. Hodjko forðast troðnustu slóðirnar. Hann fær í framhaldinu fremur óhagstæða útgáfu af kóngsind- verja] 6. Ae2 0-0 7. 0-0 £g4 8. Ae3 Wc7 9. <5ðd2 J,xe2 10. ®xe2 e5 11. d5 S K A K 317

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.