Nefndarálit - 31.12.1944, Blaðsíða 4
4
NEFNDAIIÁLIT ATVINNUMÁLANEFNDAR
leirinn þar, þrunginn af bætandi efnum fyr-
ir gigtveika og aðra sjúka. Víða erlendis eru
slík hressingarheimili og sumarhótel mjög
mikið sótt, og er eigi ólíklegt að svo myndi
einnig verða með sumarhótel og hressingar-
heimili, sem stæði við suðurenda Kleifar-
vatns.
Fiskirækt í Kleifarvatni getur mjög
sennilega orðið til þess að veiði úr vatninu
verði arðvænlegur atvinnuvegur þegar tím-
ar líða fram. En eins og kunnugt er, er
eigi annað um fisk í vatninu nú en horn-
síli. Til mála gæti komið að flytja fisk
(vatnafisk) hingað erlendis frá og setja
hann í Kleifarvatn. Væri það eigi lítið hag-
ræði Hafnfirðingum að geta veitt í Kleifar-
vatni gnægð af allskonar vatnafiski, sem
þar væri orðinn til vegna fiskiræktar, en
fiskirækt víða um land hefur gefið svo
góðan árangur, að eigi er ástæða til annars
en ætla, að hún mundi heppnast vel í
Kleifarvatni.
Nefndin gerir sér fulla grein fyrir því, að
greinargerð þessi er hvergi nærri nægilega
ýtarleg, þar scm um svo víðtækar tillögur
er að ræða og hér hafa verið settar fram,
en nefndin telur sig ekki hafa tök á að
ha!fa greinargerðina svo fullkomna, sem
yfirráð yfir fjárhagslegri og verkfræðilegri
séíþekkingu myndu gera kleift, og lætur því
nægja það, sem hér á undan, að því við-
bættu, sem nefndin setur fram sem sína
ósk, að alda sú, sem nú er risin, til við-
reisnar og eflingar atvinnulítfinu (samanber
málefnasamning stuðningsflokka núverandi
ríkisstjórnar), megi ná til Ilafnarfjarðar í
sem ríkustum mæli.
Háfnarfirði, 25. október 1944.
ATVINNUMÁLANEFND „HLÍFAR“
Helgi Sigurðsson, Grímur Kr. AncLrésson,
Bjami Erlendsson, Bergsteinn Björnsson,
Sigurbjöm Guðmundsson, Þorleifur Guð-
mundsson, Ilermann Guðmundsson.
P. S.
Einn nefndarmanna, Bjarni Erlendsson,
vill taka það fram, að hann er mótfallinn
því, að bærinn kaupi Víðistaðina, þar sem
hann sein eigandi, vill ekki selja staðinn.
0\(0
■vtr
fólki heim sanninn um
Reynslan
að þessi verzlunarsamtök voru trygging
fyrir betri lífsafkomu.
yðar eigin verzlunarsamtök á nýja árinu
því að verzla jafnan í
VlKINCSPRENT H.F.