Kjördæmablaðið - 19.05.1959, Side 2

Kjördæmablaðið - 19.05.1959, Side 2
2 Þriðjudaginn 19. maí 1959 — KJÖRDÆMABLAÐIÐ „Deildu og drottnaðu“ sögðu Rómverjar og reyndu að vekja innbyrðis deilur meðal þjóða, sem þeir voru að yfirvinna. — „Deildu og drottnaðu“ hugsaði Hákon gamli, er hann atti saman íslenzk- um höfðingjum, til þess að auðveldara væri að leggja landið undir sig. — „Deildu og drottnaðu, hugsaði íhaldið, er það berst fyrir hlutfallskosn- ingum í stórum kjördæm- um.— I. í vetur minntist þjóðin fjöru- tíu ára fullveldis. Fáum dögum seinna, þegar sól var lægst á lofti, gerðust þeir atburðir, sem munu verða eftirminnilegir á öfugan hátt við fullveldishátið- ina, ef þjóðin stendur ekki á verði gegn óheillaöflunum og þekkir ekki sinn vitjunartíma. Árin 1917—1918 eru tímamót á tvennan hátt. Fram að þeim tíma hafði þjarkiö við Dani skipt þinginu i flokka. Áratug- ina 1908—1918 voru þær deilur mjög ófrjóar og oft deilt um keisarans skegg. Almenningur henti gaman að og nefndi flokka og deiluefni skopnöfn- um: „þversum“ og „langsum“, „grút“ og „bræðing“. Með sam- bandslögunum 1918 hófst sam- staða meginhluta þjóðarinnar um sjálfstæðismálið og afstöðu til erlendra þjóða. Hins vegar skiptust menn í nýja flokka um innanlandsmál eftir hagsmuna aðstöðu. Bændur um allt land urðu me'ginstofn Framsóknar- flokksins. Lifið og sálin i þeim flokki voru annars vegar roskn- ir menn, sem höfðu fengið fé- lagsþjálfun i samvinnufélögun- um, en hins vegar ungir menn, sem höfðu skapað sér bjartsýni við óeigingjarnt starf ung- mennafélaganna. í kaupstöðun um reis verkamannaflokkur, sem að nokkru var risinn af sömu fé- lagsrótum, þó þar gætti meira erlendra áhrifa. En allt um það fundu allir, að þessir flokkar áttu samleið. Þeirra var að berjast fyrir rétti og hagsmunum hinna vinnandi manna, sem neyta brauðsins í sveita síns andlitis. Þriðji flokkurinn myndaðist á fyrstu fullveldisárunum sem eðlilegt mótvægi hinna tveggja. Það var flokkur þeirra, sem ekki unnu að beinni framleiðslu, þeirra, er völdin höfðu haft og bezta aðstöðu, sökum efna eða atvinnuforráða. Þangað kom einnig fjöldi manna, sem vegna lundernis voru vanir að beygja sig fyrir ráðamönnum. Þessi flokkur nefndi sig rétti- lega íhaldsflokk, vitandi það, að í hverju þjóðfélagi er nauðsyn mótvægis móti þeim, sem fram sækja. Fram yfir 1930 unnu flokkar vinnandi stétta saman að marg- víslegum réttarbótum og kjara- bótum og drógu með eðlilegum hætti hverja hönk úr höndum íhaldsins. En eftir 1930 fara flokkalínurnar að verða óhreinni, mest vegna erlendra áhrifa. Tvö stórveldi eru þá rísandi í álfunni með miklum hraða. Æðistór hóp ur úr verkamannaflokknum vill ekki lengur una hægfara þróun og horfir í austur til hinnar upp- rennandi sólar kommúnismans, og fær glýju í augun. Kommún- istar mynda sérstakan flokk, og verkamannaflokkurinn veikist af þeim orsökum. Nazisminn eflist í Þýzkalandi. Ekki þarf lengi að fletta Morg- unblaðinu frá þeim tíma til þess að sjá hrifningu á Þýzkalandi. íhaldsflokkurinn lærði á þeim ár um áróðurstækni af nazistum, sem þeir enn ekki hafa gleymt, heldur þroskað og endurbætt. KJORDÆMAMALIÐ Höggormur Ihaldsins rétti Evu Alþýðuflokksins lostætt epli Hið fyrsta merki þessarar tækni var, að flokkurinn skipti um nafn og tók að kalla sig Sjálf- stæðisflokk, en hér munum við nefna hann skírnarnafninu, en ekki eigin uppnefni. Áratuginn 1930—1940 veltur á ýmsu um samstöðu flokkanna, og þó standa vinnustéttaflokkar oft saman um mikilsverð framfara- mál. — Eftir 1940, og eftir tvenn ar kjördæmabreytingar, þar sem hlutfallskosningar hafa vaxandi gengi, riðlast flokkarnir meir og meir og örðugra verður að mynda ábyrga ríkisstjórn með samstæð- um þingmeirihluta. Stjórnir eru myndaðar með samningamakki án fastrar stefnu. II. Samstaða verkamanna og bænda í síðustu kosningum voru mikil gleðitíðindi mörgum þeim, sem fyrir 40 árum höfðu staðið að myndun vinstri flokkanna og hinu gifturíka samstarfi þeirra frá 1917—1931. Þeir eygðu þar hækkandi gengi f r j álslyndrar stjórnmálastefnu, er náð gæti hreinum meirihluta og myndað sterka stjórn, er stundir liðu. Það var öllum ljóst, að for- ingjar Alþýðuflokksins höfðu að undanförnu verið kvikulir í rás- inni, leitað til hægri eða vinstri í leit að kjörfylgi. Sumir tóku undir línudanslög kommúnista. aðrir leituðu samfélags við íhald ið. Þetta veikti flokkinn, hann var „alltaf að tapa“. Nú hugðum vér enn, að hinir skynsamari menn þeirra hefðu séð villu þess arar vegleysu — fundið hina fornu leið, sem í upphafi var mörkuð — samstöðu framleiðslu- stéttanna. Allt virtist ganga vel í tvö og hálft ár. En nú i skammdeginu kom aftur í ljós veilan á foringj- um Alþýðuflokksins. Það sást, að samvinna við Framsókn hafði fyrst og fremst verið gerð til þess að fá stoð í kosningunum. Efna- hagsmálin voru höfð að yfirvarpi samvinnusslita. Ný stjórn var síð an mynduð með „nýja“ lausn þessa dægurmáls. En lausnin var raunar ekki önnur en að fella nið ur þær kauphækkanir, er stjórn- arandstaðan hafði knúið fram. Hin raunverulega ástæða varð öllum augljós: Höggormur íhalds ins hafði rétt Evu Alþýðuflokks- ins lostfagurt epli. Þetta epli var kjördæmamálið. III. Umræður stúdenta um kjör- dæmamálið vöktu mikla athygli. Ræða Jóns Emils var óvenjulega hreinskilin og undirgefnin undir íhaldið fullkomin. Þar á að verða félagsbú milli flokkanna upp á líf og dauða. Þessi Emils skilur lítið í vinnubrögðum og áróðurs- tækni yfirflokksins. Flestir utan fjölskyldunnar sjá, hvernig fara muni. íhaldið ætlar sér hróður- inn af öllu, sem vel mælist fyrir, en láta litla bróður bera synd- irnar og þjáninguna, unz hann fær hægt andlát í faðmi þess. Mesta athygli vakti þó ræða Gísla Guðmundssonar.Ekki skulu hér endurtekin hin ágætu rök hans fyrir hinum sögulega rétti héraðanna, sem á meira en þús- und ára hefð, en á nú að ræna frá þeim. íslenzkt lýðræði er elzt hér í álfu, þótt þjóðin sé yngst og minnst. Frumhugsjón lýðræðis- ins kemur fyrst fram í okkar fornlögum, þar sem menn máttu velja sér goða. Allt lýðræði hefir síðan byggzt á því, að þeir, sem áttu staðhætti og hagsmuni sam eiginlega, veldu þann mann, sem þeir treystu bezt til að fara með sín málefni. Flokkskjör var ó- þekkt. Þegar flokkar mynduðust á Sturlungaöld og persónusam- bönd rofnuðu milli bænda og goða var grundvellinum undan kippt og sjálfstæðið glataðist. Lýðræði reis síðan í álfunni, fyrst með Bretum, en síðan með öðrum vestrænum þjóðum. Alls staðar var það reist á rétti hér- aða eða samstæðra hagsmuna- hópa til þess að velja sér trúnað- armenn. Brezkar þjóðir halda ennþá austan hafs og vestan fast við þessa fornu grundvallarreglu lýðræðisins. Einmenningsval í kjördæmum, byggðum á stað- háttum, þar sem þeir, sem sam- an búa velja sér trúnaðarmann. Ennþá heyrast engar raddir um, að þeirra lýðræði sé ófullkomið. og eru þó kjördæmi geysilega misjöfn að fólksfjölda. Hvergi kemur þetta skýrara fram en í Bandaríkjunum. Fámennustu ríkin hafa jafnan rétt til öldung adeildarinnar og hin fjölmenn- ustu. Allt lýðræði þeirra byggist á þessari grundvallarhugsjón, að hagsmuna samstæður velji sér trúnaðarmenn, Þar er kosið um menn, en ekki flokka. Valdmestu menn okkar daga, forsetar Bandaríkjanna, eru að minnsta leyti valdir eftir flokkssjónarmið um, persónulegt traust þjóðar- innar hefur þar miklu meira að segja, þess vegna hafa í þá stöðu valizt fleiri höfuðskörungar og afburðamenn — maður eftir mann — en hægt mun vera að finna dæmi til i mannkynssög- unni um nokkra stöðu á jafn- löngum tíma. Einmenningskjöri fylgja að jafnaði aðeins tveir öflugir flokkar eða flokkasamstæður, og hinir sömu flokkar varanlegir áratug eftir áratug. Innan þess- ava flokka er venjulega mikið lýðræði. Þetta skapar öruggt stjórnarfar, ábyrgar og sterkar ríkisstjórnir og ábyrga stjórnar- andstöðu. Öðruvísi hefur þessu verið far- ið víða um Mið-Evrópu og álfuna sunnanverða. Víða hafa smá- flokkar barizt um völdin, þar sem hlutfallskjörs- og höfðatölu reglan hefir ríkt, og svo farið að lokum, að ríkin hafa hafnað í einræði. Einmenningskjörið er hins vegar þrautreynt í hinum elztu lýðræðislöndum, en hlut- fallskjörið hefir grátlega oft hafnað í einræði, og það meðal gamalla hámenningarþjóða. IV. Ef til vill er stjórnarflokkunum ekki ljóst hvílíka byltingu mundi leiða af tillögum þeirra. Goðorð- in fornu voru smáríki, þjóðveldið sambandslýðveldi. Frá upphafi höfðu hrepparnir mikið sjálf- stæði, bæði stjórnarfarslega og eigi síður í vitund fólksins. Sterk bönd tengja saman sveitunga. En hrepparnir innan hverrar sýslu mynda eina fjölskyldu. Þeir eru að lögum allir jafnrétt- háir. Hver hreppur, hinn smæsti sem hinn stærsti hefir jafnan rétt, kýs einn mann i lýðræðis- stjórn sýslunnar. Sterk bönd tengja samhéraðsmenn. Ef ég mæti ókenndum manni, t. d. í höfuðborginni, og veit það eitt um hann, að hann er Þingeying- ur, rennur mér óðara blóðið til Jón Sigurðsson, Yztafelli. skyldunnar. Þessi ósýnilegu átt- hagabönd eru mjög sterk. Ey- firðingar, Skagfirðingar og Hún- vetningar finna þau jafnvel sem Árnesingar, Rangæingar og Skaftfellingar. Átthagafélögin, eru byggð á þessum böndum. Mikið má það vera, ef foringjum I átthagafélaganna er öllum ljúft I að hjálpa til að afnema stjórn- málalegt sjálfstæði innan síns heimahéraðs. Kjördæmin fornu eru einmitt byggð á þessum sam hug innan hvers héraðs. Afnám þeirra sker þessi sögulegu erfða bönd og skipar óskyldu saman eftir kaldri stærðfræði. Bylting tillagnanna styrkir þá öfugþróun, er eyðir byggðum og eyðir áhrifum héraðanna, en dregur fólkið og safnar valdinu að suðvesturhorninu. Einmenn- ingskjördæmi knýja menn til að finna sér frambjóðendur og síð- an þingmenn, sem þeir þekkja persónulega og treysta. Stóru kjördæmin með hlutfallskosning um þverhöggva þetta mannlega sjónarmið. Þar er heimtað. að kosið sé aðeins um flokka. Val frambjóðendanna verður ekki á váldi kjósenda. Flokksstjórnirn- ar í Reykjavík skipa listana. En flokksstjórnir eru aðeins hópar Reykvíkinga, sem deila um völd- in. Kjósandinn fær aðeins að ráða, hvern þessara fjarlægu óþekktu mannhópa hann vill styðja. Annars er það eigi ein- vörðungu, að byltingartillögurn- ar styrki vald Reykjavíkur yfir dreifbýlinu. Sjónarmið sveitanna getur orðið mjög fyrir borð borið innan einstakra kjördæma. Tök- um t. d. aðstöðu Akureyrar með 8000 íbúa og þorpanna allra við Eyjafjörð gagnvart sveitunum í kjördæminu, sem við þessi pláss á að binda. V. Fólksflutningar að sunnanverð um Faxaflóa hafa verið miklir, vegna þess að ríki og einkafyrir- tæki hafa haft þar mesta fjár- festingu, — þjóðin hefir öll við- urkennt, að viðhalda þyrfti bet- ur jafnvægi í byggð landsins. — Engir hafa um þetta meira talað en íhaldsleiðtogarnir, rétt eins og þeir hræðist ofurmagn eigin þunga þar á suðvesturhorninu, sem mun sporðreisa hólmann. En nú koma þeir með tillögur, sem yrði áhrifameira en allt ann að til þess að auka misvægið. Þingmannafjölgun tillagnanna lendir öll á suðvesturhorni. Eng- inn mundi hafa á móti fjölgun einmenningskjördæma á Reykja nesskaga. Er víðar hallast á. Eg vil taka eitt dæmi. Ibúatala kjördæmisins Suður-Þingeyjar- sýsla var 4170 árið 1951. Sama ár var íbúatala 5 tvímenningskjör- dæma sem hér segir: N-Múl 2492, S-Múl. 5584, Rangárvallas. 3088, Skagafjörður 3846, Eyjafjarðars. 4699. Þrjú af þessum tvímennings kjördæmum hafa færri íbúa en S-Þing., tvö litlu fleiri. Mér vitan lega hefir þó aldrei komið krafa um að þetta „misrétti" væri leið- rétt þannig, að Suður-Þingeyjar- sýsla fengi tvo þingmenn. Öðru máli gegnir um hina geysilegu þingmannafjölgun Reykjavíkur, samkv. tillögunum. Þar um ætti að verða sterk andstaða. Það er viðurkennt almennt í lýðræðislöndum, að borgir hafa betri aðstöðu til þess að ráða gangi mála en dreifbýlið. Þetta er víða jafnað, svo sem í Noregi og Bretlandi, með því að fleiri at kvæði koma á þingmann í borg- um. Þá hafa höfuðborgir alveg sérstaka aðstöðu til forræðis. — Bandaríkin, sterkasta lýðræðis- ríki veraldar, þar sem almenn ingur leggur alveg sérstaka á- herzlu á að ekki séu brotnar lýð- ræðisreglur, tekur þarna til rót- tækraráðstafana. Höfuðborgar- búar fá ekki að kjósa neinn þing mann. Þessi aukna þingmannatala í Reykjavik og öllu suðvesturhorni landsins eykur mjög vald þess landshluta, en dregur jafnmikið úr áhrifavaldi annarra. En þó munar meira um valda- aukningu Reykvíkinga á annan hátt. Eftir byltingartillögunum yrði alls staðar hlutfallskjör. Kjósendur kysu hvergi um menn, eins og hið forna lýðræði gerir ráð fyrir, heldur alls staðar um flokka. Á þessu er reginmunur. Þetta er róttækasta byltingin. En af þessu leiðir alveg rökrétt, að flokkssstjórnirnar ráða „lista- mennina“ og raða þeim niður. Á þenna hátt afsalar dreifbýliö réttindum sínum með hinum nýju tillögum. VI. Þegar Ólafur konungur Har- aldsson leitaði yfirráða á íslandi, kvaðst Einar þveræingur vel mega trú.a því, að sá konungur væri góðviljaður íslendingum. Hann minnti á, að þeir afsöluðu eigi aðeins eigin rétti, heldur og niðjanna, alinna og óborinna. og væru konungar misjafnir, og gætu þeir komið, sem verri væru: Ólafi. Þessi orð mega aldrei gleymast neinum íslendingi. Ef dreifbýlið afhendir nú rétt sinn, þá kemur það einnig niður á niðjunum, öldnum og óbornum. Og á einn hátt erum við verr settir en Einar. Hann gat trúað því, að Ólaur konunugur væri góðviljað- ur íslendingum. Við getum hins. vegar ekki trúað því, að Ihalds- flokkurinn, sem að tillögunum stendur, sé góðviljaður fram- kvæmdum, sem skapa lífsmögu- leika í dreifbýlinu. Við höfum meira að segja orð þeirra fyrir hinu gagnstæða. Það á að verða eitt af bjargráðum þeirra að draga úr fjárfestingarfram- kvæmdum út um land. — Og stjórnin ætlar að halda fast við þessa stefnu. Fyrir fáum dögum heyrðist mér einnig hljóma í út- varpinu viðvörun frá ríkisstjórn- inni til bæjarstjórna um það, að varast fjárfestingar. Auðvitað eru ýmis ummæli, sem sýna andúð á dreifbýlinu, sögð í „ógáti“ af þeim, sem ekki kunna

x

Kjördæmablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjördæmablaðið
https://timarit.is/publication/2063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.