Kjördæmablaðið - 19.05.1959, Page 4

Kjördæmablaðið - 19.05.1959, Page 4
4 Þriðjudaginn 19. maí 1959 Gunnar Dal: Afnám kjördæmanna er dauðadómur íslenzks lýðræðls í nafni réttlætis og lýðræðis hyggjast nú þrír stjórnmála- flokkar landsins breyta stjórn arskrá íslands, og leggja nið- ur öll hin fornhelgu kjördæmi utan Reykjavíkur. Einmenn- ingskjördæmin, sem eðli sínu samkvæmt hljóta að vera flokksvaldinu helztur Þránd- ur í Götu, og tryggja því lýð- ræðið bezt, eiga að leggjast niður, en í þeirra stað að koma fá og stór kjördæmi með hlut- fallskosningum. Ég fæ því ekki skilið á hvern hátt slíkar breytingar yröu til styrktar lýðræðinu. Lýðræði í hinu fyrsta lýð- ræðisríki álfunnar, íslandi, jafnt og í hinum helztu lýð- ræðisríkjum nútímans, Eng- landi og Bandaríkjunum, hef- ur alltaf byggzt á valdi hér- aða — ákveðinna hagsmuna- hópa, sem markast af land- fræðilegum og sögulegum rétti, — til að velja sér íull- trúa. Þetta hefur hingað til ver- ið talinn sjálfsagður grund- völlur lýðræðisins bæði í Bandaríkjunum og í Bret- landi, þótt fólksfjöldi kjör- dæmanna sé þar mjög mis- jafn. í Bandaríkjunum hafa t. d. fámennustu ríkin alveg jafn an rétt til öldungadeildarinn- ar og hin fjölmennustu. Það er alkunna að höfuð- borg Bandarikjanna var í upp hafi valinn staður utan sam- bandsríkjanna. Ástæðan er vitanlega sá skilningur Banda ríkjanna, að ef hún hefði ver- ið reist í einhverju ríkjanna mundi það þar með fá mikil sérréttindi og áhrifavald á stjórn landsins, sem hin hefðu ekki. Eftir að Washington óx fiskur um hrygg þótti af sömu ástæðum ekki rétt að veita henni fulltrúa á þingi. — Með þessu er ekki verið að gefa í skyn, að Reykjavík eigi eng- an þingmann að fá kjörinn(!) göngu á vörum, sem allir kaupa aðrir en bændur. Ríkis- stjórnin virðist helzt forðast að lækka með niðurgreiðslum verð þeirra vara, sem búand- lið kaupir jafnt og aðrir lands menn. Hins vegar stóð ekki á því að lækka kaup hjá bænd- um jafnt og hjá launafólki. Látum svo vera. Bændur hafa ekki og munu ekki skorast undan byrðum til jafns við aðra. En auk þess var lögfest að beita bændur sérstökum rangindum í verðlags- og þar með kjaramálum, aleina stétta þjóðfélagsins. Það er hnefahögg, sem ekki gleymist auðveldlega. Allt er þetta þó aöeins inn- gangur, eins konar uppljóstr- un um hugarfar. Meira stendur til, þar sem eru ráðagerðir um niðurskurð opinberra framkvæmda, sem á að beina fyrst og fremst að dreifbýlinu í sveit og við sjó. Þá er líka og jafnframt ætl- unin að taka fyrir fjármagn til framkvæmda í landbúnað- inum og er búið að senda út opinbera aðvörun um það efni. Þessi áform verður að koma í veg fyrir. Þessar öfugsnúnu ráðagerðir og úrtöluraddir verður að kveða niður með illu eða góðu, hver svo sem hefir þær uppi. Hér er um svo mikið að tefla fyrir alla sem Ef heruð landsins afsala sér rétti sínum, tákna þær kosningar, er nú fara í hönd, endalok þeirrar menningar, er hefir réttlætt sjálfstæöa tilveru þessarar þjóðar — aðeins bent á að það er réttmætt og heilbrigt vegna jafnvægis landsbyggðarinnar að taka nokkurt tillit til sér- stöðu höíuðborgar. Þá er einnig alkunna, að á þingi Sameinuðu þjóðanna hafa þjóðirnar (að stórveld- unum undanskildum) jafnan rétt þrátt fyrir mjög mismun- andi íbúatölu. Ég efast um að nokkur íslendingur teldi það réttmætt, að Danir t. d. (sem eru 25 sinnum fjölmennari en íslendingar) ættu þar 25 full- trúa á móti einum fulltrúa ís- lands. Eða hver er sá íslend- ingur, sem kallaði það rétt- læti að Bretar fengju á al- þjóðlegri ráðstefnu um land helgismál 325 fulltrúa gegn hverjum einum fulltrúa ís- lands? Höfðatölureglan er eins og sjá má af þessum dæmum, engan veginn algild í sam- skiptum lýðræðisþjóða. Þvert á móti er þar jafnan tekið til- lit til hins landfræðilega og sögulega réttar ákveðins sam íélags. Með þessu er ekki sagt, að kjördæmaskipunin þurfi engr ar endurskoðunar með. En hér sem annars staðar er meðal- hófið mezt og skaðlegt að rasa um ráð fram. Nauðsynlegar leiðréttingar er hægt að gera án þess að fremja það glap- ræði að leggja niður ein- menningskjördæmin og hin fornu kjördæmi landsins og brjóta þannig niður sjálf- an grundvöll þess lýðræðis, sem bezt hefur reynzt með vestrænum þjóðum. Það verða að teljast grunn- færir menn, sem trúa því í al- vöru að fá og stór kjördæmi með hlutfallskosningum yrðu til styrktar lýðræði og heil- vilja hag og heill sveita og sj ávarplássa, að það verður að setja ofaý öllum þeim flokks- sjónarmiðum, sem hingað til hafa ráðið. Kosningarnar í vor snúast um kjördæmamálið eitt í fyrstu lotu ber að gera allt, sem unnt er, til að koma vitinu fyrir stjórnmálamenn- ina og fá þá ófan af því á- formi, að legja kjördæmin niður. Þaö á ekki að þurfa að mis- takast, ef nógu margir þekkja sinn vitjunartima. Kveðjið ykkur hljóðs, hvar í flokki sem þið standið, og látið fulltrúa ykkar og forystumenn vita ó- tvírætt að þið samþykkið aldrei slíkt réttindaafsal, sem afnám kjördæmanna er. Láti þeir sér ekki segjast að held- ur og verði kosið um þetta mál, má enginn láta blekkj- ast. Þá verður ekki um neinar vanalegar kosningar að ræða. Þar verður um tilverumögu- leika dreifbýlisins að tefla í nútíð og framtíð. Hvaða flokki sem við kynnum annars helzt fylgja endranær, þá yrði það í það sinn kosið um það eitt, hvort þetta yrði í síðasta sinn, sem menn mættu kjósa sér þingmann fyrir sitt kjördæmi. Játvarður Jökull Júlíusson. brigðu stjórnarfari í þessu landi. Augljóst er, að með þessu yrði val frambjóðandans ekki lengur á valdi kjósandans. Fá- mennur hópur manna í innsta hring flokksins mundi þá fá hina ákjósanlegustu aðstöðu til að ota sínum mönnum fram sem þingmannsefnum og verða einráður innan flokks- ins. — í fyrstu mundu vafa- laust rísa hér upp margir smá flokkar, sem kæmu manni á þing, eins og raun hefur á orð- ið í Frakklandi t. d. og annars staðar, þar sem svipað fyrir- komulag hefur komizt á. Vegna þess öngþveitis, sem við þetta skapaðist, er afar lík- legt að einn flokkur, sennilega Sjálfstæðisflokkurinn, næði að lokum hreinum meirihluta. Það er á allra vitorði, að valdamestu menn Sjálfstæðis- flokksins og þeir, sem skipu- leggja flokksstarfsemina öðr- um fremur, eru öfgamennirn- ir lengst til hægri, mennirnir, sem áður fyrr gengu erinda Nazismans, og þótt þeir hafi nú afklæðzt einkennisbún- ingnum, er innrætið enn hið sama, og þekkingin á skipu- lagningu og beitingu flokks- valdsins hefur jafnvel ávaxt- azt með aukinni reynslu. — Meirihlutastjórn Sjálfstæðis- flokksins mundi því ekki mark ast af frjálslyndi og húmanisk um lífsviðhorfum Gunnars Thoroddsen og f ylgj enda hans. Þvert á móti mundi flokkseinræði hins svartasta afturhalds leggjast eins og myrkur yfir þjóðina. Fyrsta verk þess yrði efling ríkis- valdsins, því að án hers inn- lends eða erlends, mundi það aldrei geta stjórnað íslend- ingum. Meirihlutastjórn Sjálfstæð- flokksins — hvernig svo sem hún yrði — hlyti að knýja öll hin mörgu brot vinstri flokk- anna til að sameinast — á annan hátt yrðu þau dauða- dæmd. — En vegna hinnar nýju kjör- dæmaskipunar yrði jafnvel sigur þeirra engan veginn hættulaus lýðræðinu. Stærst- ur vinstri flokkanna og bezt skipulagður, yrði þá ef til vill r Dal „Alþýðubandalagið“. Innsti kjarni þess flokks er eins og menn vita, fámennur, og járnharður hópur Moskvu- kommúnista, sem haldið hef- ur völdunum i flokknum gegn- um þykkt og þunnt, þótt önn- ur flokksbrot og foringjar hafi verið' innbyrtir. Ekkert er lík- legra, en að þessir menn gerðu völd sín að skilyrði fyrir vinstri einingu. Þótt vinstri öflin sigruðu hin íhaldssömu einræðisöfl, byði það því aðeins nýjum hættum heim. Lýðræðið væri þar jafnt í veði. Þannig leiddi þessi bylting á kjördæmaskipuninni, afnám hinna fornu kjördæma lands- ins, fyrst til upplausnar, sem gæfi síðan einræðisöflunum lengst til hægri og lengst til vinstri, byr undir báða vængi, og fyrirheit um lokasigur ann aðhvort kommúnismans eða íhaldseinræðis, sem stutt yrði innlendu eða erlendu vopna- valdi. Þetta er ástæðan til að ein- ræðisöflin í „Alþýðubanda- laginu“ og Sjálfstæðisflokkn- um sækjast svo ákaft eftir þessum þjóðhættulegu breyt- ingum, sem vega fyrst og fremst að lýðræðinu í landinu. Hjá Sósíalistum hefur verið ákaft deilt um þetta mál. Hin- ir lýðræðissinnaðri þingmenn flokksins vildu fresta öllum breytingum á þessum málum. Moskvumennirnir voru þessu mótsnúnir og sigruðu hér sem endranær. — Svo þýðingar- mikil er hin fyriihugaða breyt ing kjördæmanna í þeirra aug um, að jafnvel dauði Alþýðu- flokksins gat ekki freistað þeirra til að eiga neitt á hættu með, að hinn nýi grundvöllur flokksræðis og einræðis yrði lagður. Þessir menn ættu sízt að hampa fána lýðræðisins. í hjarta sínu vita hinir greind- ari stjórnmálaforingjar vel að afnám kjördæmanna felur í sér dauðadóm yfir því lýðræði, sem íslendingar urðu fyrstir þjóða til að skapa. — Þeir fylgja dæmi Loka Laufeyjar- sonar, sem fékk hinum blinda goða mistilteininn í hendur, og lét hann í blindni sinni vega að því, sem bezt var með ásum. í hlutverki hins blinda goða eru svo hinir óbreyttu fylgismenn þeirra, sem unna frelsi og lýðræði -— en vega samt að því í blindni sinni. Ef flokksblindan fær íbúa þessa lands og þá ekki sízt þá, sem búa utan Reykjanesskag- ans — til að koma á kjör- dæmabyltingunni með at- kvæði sínu, verður afleiðing- anna skammt að bíða. Áhrif allra byggða utan Reykjanes- skagans fara að sjálfsögðu stórlega minnkandi, og lands- byggðin afsalar sér völdum, sem hún getur aldrei endur- heimt. Hagsmunir Reykjavík- ur og Suðurnesja mundu þá mestu ráða, og dregið verður úr öllum framkvæmdum út um land. Þetta mun aftur valda nýjum og auknum fólks flutningum til Reykjanes- skagans og raska enn jafn- væginu í byggð landsins. í þessu fellst mikil og aug- ljós hætta ekki aðeins fyrir héruð landsins, heldur einnig fyrir Reykjavík. Þeir tímp’- hljóta að koma, að íslending- ar geta ekki lengur lifað á hermangi og erlendum lánum, heldur verða að byggja líf sitt /á sinni eigin framleiðslu. Hætt er þá við, að dansinn kringum gullkálfinn í Reykjavík og á Suðurnesjum verði að lokum hrunadans, þar sem þúsundir manna verða atvinnulausar og bíða efnahagslegt skipbrot. Að stuðla að þessari þróun, er bví vafasamur areiði við höf- uðborgina. — Með því að reka þjóðina í einn hnapp á Suð- urnesin, er ekki aðeins menn- lingu okkar stefnt í voða, held- ur fellst einnig í því framtíð- arhætta fyrir efnahagslegt sjálfstæði landsins. Við erum vaxandi þjóð og verðum því fyrst og fremst að rækta landið og nytja auð- lindir þess. Því má ekki binda starfsorku íslendinga við dauð og ónýt störf, hvorki á Keíla- víkurflugvelli né skrifstofu- báknum Reykjavíkur. Þannig yrði hin fyrirhugaða bylting á kjördæmaskipun- inni sízt til að leysa vanda atvinnuveganna, þar sem þær mundu enn auka á misræmið í byggð landsins og draga enn fleiri hendur frá framleiðsl- unni að dauðum störfum. Þá ætti það atvinnuleysi, sem sívaxandi fólksflutning- ar til höfuðborgarinnar hljóta fyrr eða síðar að skapa, að vera Reykvíkingum lítið til- hlökkunarefni. Hin geigvænlegasta hætta í sambandi við afnám kjör- dæmanna er þó sú eins og fyrr segir, að hún felur í sér dauðadóm hins íslenzka lýð- ræðis og gerir að engu áhrif dreifbýlisins á stjórn lands- ins. Því verður þess vegna ekki trúað, fyrr en í lengstu lög, að íslenzkir bændur og íbúar sjávarþorpanna dragi nú svefnhött flokksblindninnar yfir höfuð sér og íylgi böðl- um sínum eins og þæg og hlýðin fórnardýr. Ef héruð landsins afsala sér lífsrétti sínum, tákna þær kosningar, sem nú fara í hönd, fall og endalok hinnar ís- lenzku bændamenningar, þeirrar menningar, . sem ein hefur réttlætt sjálfstæða til- veru þessarar þjóðar.

x

Kjördæmablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjördæmablaðið
https://timarit.is/publication/2063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.