Bæjarblaðið Jökull - 16.05.2002, Side 4
Frambjódandahjal.
Senn líður að sveitastjórnar
kosningum hér í Snæfellsbæ
eins og annars staðar á land-
inu. Ég var nú alveg salla ró-
legur yfir þessari staðreynd
fyrir nokkrum vikum síðan
og var með hugann við allt
annað en kosningar. Eins og
góðum bónda sæmir var
kominn í mig vorhugur og ég
farinn að undirbúa mig and-
lega og líkamlega undir sum-
arið.
Þegar það var orðað við mig
að taka sæti á J lista nýstofn-
aðra bæjarmálasamtaka Snæ-
fellsbæjar samþykkti ég það
fljótlega eins og mér hættir til
þegar ég er beðinn um að taka
að mér eitthvert starf sem
tengist félagsmálum.
Þannig er nú forsagan að
því að ég er farinn að hugsa
eins og sveitastjórnarmaður
(sem allt veit).
Snæfellsbær er fyrir margra
hluta sakir merkilegur. Tveir
þéttbýlisstaðir norðan jökuls
og blómlegar sveitir sunnan
megin. Þessi svæði tengir svo
hundleiðinleg Fróðárheiðin
saman. Þetta er nú blanda
sem ætti að öllu jöfnu ekki
geta gengið, sem sagt að Óls-
arar, Sandarar og sveitavarg-
urinn geti myndað saman öfl-
ugt sveitarfélag en þetta hefur
samt tekist alveg þokkalega.
Snæfellsbær er kannski ekki
mjög öflugt sveitarfélag en
hann á þó að vera full fær um
að sinna sínu hlutverki og
veita íbúum sínum alla þá
þjónustu sem þeir eiga rétt á.
En góðan bæ má alltaf gera
betri og hvernig er það best
gert? Þegar stórt er spurt
verður oft fátt um svör en mín
skoðun er sú að það eigi að
byrja á grunninum eins og
verklagnir menn gera yfirleitt
og í þessu bæ eru það börnin
og unglingarnir sem eru
grunnurinn. Þeirra málum
þarf að sinna betur og leita
leiða til að þeim líði alltaf sem
best bæði innan skólanna og í
sínum frítíma. íþróttahúsið
glæsilega í Ólafsvík gefur
okkur mörg tækifæri í þessu
sambandi sem við þurfum að
nýta. En aldrei hefur mér þó
langað meir að bora i gegnum
heiðina en þegar börnin úr
sveitunum komast ekki vegna
veðurs og ófærðar á æfingar í
íþróttahúsinu.
Sem betur fer hefur fólki
fjölgað í Snæfellsbæ en betur
má ef duga skal. Það er ekki
nóg að vera dugleg í rúminu
við verðum að gera bæinn
fjölskylduvænni og meira að-
laðandi fyrir fólk sem vill fly-
tja til okkar og ekki síður til
að halda því fólki sem fyrir er.
Meiri fjölbreytni þarf í at-
vinnulífið og þar held ég að
ferðaþjónustan sé sá þáttur
sem við eigum mestu mögu-
leikana í. Þá kemur þessi
ögrandi spurning? Hvar á að
fá peninga til að gera þetta. Þá
versnar í málinu , ég undirrit-
aður ásamt öðru
j lista fólki höfum verið að
setja okkur inn í fjármál bæj-
arins síðustu daga með hjálp
góðra manna og satt best að
segja fór töluverður vindur úr
okkur við það verk. Staðan er
alls ekki góð. Yfir 80 % af
tekjum bæjarins fara í bein-
hörð rekstrargjöld og afborg-
anir af lánum.Það sem eftir
stendur dugar varla
fyrir vöxtum. Þetta þýðir
það að allar nýjar fram-
kvæmdir verður að fjármagna
með lánsfé. Þetta ber allt að
sama brunninum, við verðum
að auka tekjur bæjarfélagsins
til þess að geta farið að gera
eitthvað i málunum.
Það hefur verið skondið að
fylgjast með umræðunni hér í
bæ eftir að listarnir tveir sem í
boði eru komu fram. Fólk er
að spá í hvort það skipti máli
hvar menn búa í Snæfells-
bænum og hvort réttlætinu
hafi þar verið fullnægt að öllu
leiti. Sennilega eru þetta leifar
af gamla góða rígnum. Mín
skoðun er sú að þetta skipti
ekki höfuðmáli eftir átta ára
súrsæta sambúð. Einn gamal-
gróinn Ólsari sagði við mig
um daginn að það hefði nú
mörgum fundist það mikil
fórn fyrir þéttbýlið að setja
sveitamann í annað sæti J list-
ans.
Einn fulltrúi af sjö í bæjar-
stjórn (vonandi) er nú kanns-
ki ekki mikil fórn og reyndar
held ég að bæjarstjórnin verði
sterkari fyrir bragðið. Eina
fórnin sem við getum talað
um í þessu sambandi er sú
fórn sem væntanlegir bæjar-
fulltrúar færa sjálfir. Þeir eru
að fórna sínum frítíma og
þeim tíma sem þeir gætu
annars eytt með fjölskyldum
sínum. Þetta held ég að sé
hollt fyrir fólk að hafa hug-
fast. En þetta breytist nú allt
þegar Páll frá Höllustöðum
leiðréttir kjör bæjarstjórnar-
manna og fólk bíður í röðum
eftir því að komast í bæjar-
stjórn.
Kosningar snúast hvað sem
hver segir um völd og áhrif en
líka um fólk og áherslur. J
listinn býður fram nýtt afl í
komandi kosningum. Listinn
samanstendur af ungu og bar-
áttuglöðu fólki í bland við
reynda sveitarstjórnarmenn.
Þetta fólk er tilbúið að axla þá
ábyrgð sem fylgir því að stjór-
na sveitarfélaginu. Baráttan
mun klárlega standa um
fjórða sætið og ef við lítum á
hvernig listarnir tveir eru
skipaðir þá sýnist mér ljóst að
meiri þörf sé fyrir Ijósmóður-
ina en framkvæmdarstjórann
í bæjarstjórn.
Með vorkveðju úr Staðar-
sveitinni
Kristján Þórðarson bóndi
og frambjóðandi Ölkeldu.
KæliVélar
KÆLIVÉLAVERKSTÆÐI
S: 587-45-30
GSM: 893-19-06
Skipstjórnarmenn
Snœfellsnesl
Ndmskeið í notkun á hinum
vinscela skipstjórnarbúnaði
MaxSea
verður haldið í Grundarfirði
dagana 23-24 maí.
Skróning fer fram hjó
Mareincfog Radiomiðun
í símum'- 438 6611 og 511 1010
radiomiðun Mareind
hafsjór nýrra möguleika !
Siglinga og fiskileitartæki