Bæjarblaðið Jökull - 16.05.2002, Qupperneq 6
Framhaldsskóli Snæfellinga
Undirritaður á sæti í fram-
haldsskólanefnd Snæfellinga
sem í umboði Héraðsráðs
Snæfellinga hefur unnið að
stofnun okkar eigin fram-
haldsskóla. Var undirritaður
tilnefndur af bæjarstjórn
Snæsfellsbæja, auk þess eiga
sæti í nefndinni Björg
Ágústsdóttir, bæjarstjóri
Grundarfjarðarbæjar og Ey-
þór Benediktsson, aðstoðar-
skólastjóri og formaður bæj-
arráðs Stykkishólmsbæjar.
Niðurstaða okkar er í meg-
inatriðum sú að slíkur mögu-
leiki er raunhæfur kostur ef
a.m.k. 7 af hverjum 10 nem-
endum er útskrifast úr
grunnskólum Snæfellinga
innriti sig þar í nám ár hvert.
Umtalsverðri vinnu er nú
lokið við gerð áætlunar um
skipan slíks skólahalds. Fór
sú vinna fram í samráði við
starfsmenn framhaldsskóla-
deildar Menntamálaráðu-
neytisins. Þá nutum við sér-
fræðiaðstoðar Sölva Sveins-
sonar, skólameistara Fjöl-
brautaskólans við Ármúla.
Stefnt er að því að uppbygg-
ing skólans verði hvort tveg-
gja í senn, hefðbundin og
óhefðbundin, þ.e.a.s. skóla-
starfið taki mið af nýjum
möguleikum upplýsinga-
tækninnar. Þannig fari nám-
ið fram á hefðbundinn hátt í
kennslustofum skóla er stað-
settur yrði í Grundarfjarðar-
bæ, miðsvæðis á starfssvæði
skólans til að jafna aðgengi
nemenda af öllu Nesinu.
í>óra
auglýsirí
Þessa dagana eru vorvörurnar
að koma inn.
Buxur og bolir á telpur st. 120 - 150.
þessi dress eru ekki bara
fyrir þcer grönnu.
Snið fyrir allar stelpur.
Peysur og skyrtur fyrir stráka.
Við erum komnar í sumarskap.
Björt nóttin - fermingar
og kosningar framundan.
semsagt skemmtilegheit og börnin í
fallegum fötum frá Póru.
Verslunin Þóra
Ólafsvíh
Þangað yrði nemendum ekið
flesta daga vikunnar. Jafn-
framt stunduðu nemendur
nám heima á innraneti skól-
ans, í fjar- og dreifnámi með
fistölvu er skólinn léti nem-
endum í té. Á þennan hátt
kæmi skólinn til með að hafa
sérstöðu og byði því upp á
fjölbreytt námsumhverfi sem
tryggði að námsframboð yrði
við allra hæfi skv. nýrri nám-
skrá framhaldsskóla. Enn-
fremur yrði aðgengi nem-
enda á iðn- og starfsbrautum
tryggt að verknámsaðstöðu
annarra skóla.
Staða málsins í dag er í
fæstum orðum sú að fráfar-
andi menntamálaráðherra,
Björn Bjarnason, lét það
verða eitt af sínum síðustu
verkum að samþykkja áætl-
un okkar um starfsskipan
skólahaldsins.fagleg mark-
mið og inntak, að fenginni
umsögn sérfræðinga ráðu-
neytisins. Nú vinnum við að
því með aðstoð þingmanna
og ráðherra að núverandi
ráðherra menntamála sam-
þykki að setja skólann inn á
fjárlög næsta árs svo ráða
megi skólameistara strax í
haust til að hefja undirbún-
ing að upphafi skólahalds
haustið 2003.
Til þess að svo megi verða
eigum við íbúarnir á Snæ-
fellsnesi síðasta orðið um
hvort af þessu getur orðið.
Það gerum við með þvi að
halda áfram þeirri öflugri
samstöðu sem sveitarfélögin
hafa flaggað fram að þessu í
þessu eina merkasta byggða-
máli Snæfellinga hin síðari
ár. Þetta er einfaldlega
spurning um lífskjör og
þjónustu á svæðinu, atriði
sem skiptir miklu máli um
framþróun búsetuskilyrða
hér á Nesinu.
Rúsínan í pylsuendanum
blasir hins vegar við okkur
núna strax á maídögum
þessa vors. Nefnilega sú að
til að tryggja ofantalin mark-
mið í sessi, - og til að sann-
færa ráðherrann nýja um
nauðsyn þessa máls,- þarf að
tryggja starfsemi framhalds-
deildar FV hér í Snæfellsbæ
og Stykkishólmi næsta skóla-
ár því einn útgangspunkta
rekstursleyfis hins nýja skóla
er það að í hann sæki strax
fyrsta starfsári nemendur 1.
og 2. árs. Því skiptir tilvera
deilda FV hér við upphaf
haustannar 2002 úrslitamáli.
Við tryggjum starfrækslu
deildarinnar hér hjá okkur
best með nægu aðgengi nem-
enda (a.m.k. 12 nemendur)
með innritun þeirra til undir-
ritaðs nú á næstu dögum. Ef
allt gengur eftir þá ættu þeir
hinir sömu möguleika á að
halda framhaldsskólanámi
sínu áfram á öðru ári, haust-
ið 2003, þá í Framhaldsskóla
Snæfellinga. Stöndum sam-
an og tryggjum þennan
ávinning í sessi! Skráum
nemendur strax í FVSn, helst
á morgun!
Sveinn Þór Elinbergsson,
skstj. FVSn.
Sendum fermingarbörnum
í Snœfettsbce
ocf fjötskytctum fteirra
hamingjuóskir á ferminqardaqinn.
TÆKJA- OG TÖLVUBÚÐIN
Ólafsbraut 19 - Ólafsvík - sími 436 1050