Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 9

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 9
KOSNINGABLAÐ 9 ÓLAFUR HALLDÓRSSON, stud. mag.: Pólitískt hlutverk Það verður ekki með sanni sagt um ís- lenzka stúdenta, að þeir hafi ekki á undan- förnum áratugum haft áhuga á stjórnmál- um bæði sinnar eigin þjóðar og þeim hinum stórbrotnari átökunum, sem átt hafa sér stað úti í heimi, einstakra ríkja í milli eða bandalaga þeirra. Hitt orkar meir tvímælis, að þeir hafi á síðari tímum litið sjálfstætt á málin. Nokkrum sinnum hafa þeir látið til sín heyra um þessi efni, og eru alþjóð kunn af- rek Hafnarstúdenta bæði í sjálfstæðismál- um þjóðarinnar og eins vakningarstarf þeirra í menningarmálum, sem að vísu var ekki stjórnmálalegs eðlis, en þær nýju hug- sjónir og nýju liststefnur, er Hafnarstúd- entar ruddu braut hér á landi, hafa þó haft víðtæk áhrif á vettvangi stjórmálanna. Meðan íslenzkir stúdentar sóttu háskóla- nám til annarra landa, einkum Danmerkur, voru aðstæður landsmanna til þess að fylgj- ast með nýjungum umheimsins í vísindum og listum, og raunar menningarmálum yfir- leitt, allt aðrar en þær eru nú, a. m. k. alit aðrar en þær hafa verið síðustu ára- tugina, þótt á allra síðustu árum, eða síðan sjálfstæðisflokkurinn fór að ráða mestu hér á landi um fjármál og viðskipti við önnur lönd, hafi þokað drjúgt afturábak. Þá voru það íslenzkir stúdentar, sem fyrstir landa sinna komust í snertingu við hræringar og nýja strauma í stjórnmála- og menningar- lífi og urðu því, er heim kom boðberar nýrra hugsjóna, er brugðu hátt á loft kyndl- um nýkveiktra elda, svo að þegar birti fyrir hugarsjónum allra íslendinga. En með stofnun Háskóla íslands skiptir um, svo að þaðan í frá hafa langsamlega flestir íslenzkir stúdentar fengið háskóla- menntun sína hér heima. Þá voru tímarnir líka á ýmsan hátt orðnir breyttir, samgöng- ur við önnur lönd betri, og hjartsláttur heimsmenningarinnar hefur borizt að eyr- um þjóðarinnar með hjálp nýrra tæknilegra uppfundninga. Stjórnmálalíf þjóðarinnar hefur einnig komizt í fastar skorður. Flokk- ar hafa myndazt, hver með sína stefnu, að minnsta kosti á yfirborðinu, og forystan í stjórnmálunum hefur komizt í hendur á- kveðinna manna, er að þeim málum starfa, og er sú þróun eðlileg. Hlutverk stúdenta er því ekki lengur það, að hafa á hendi forystuna í stjórnmálum þjóðarinnar, en þar með er ekki sagt, að þeir eigi ekki að láta til sín taka í neinu pólitísku máli. Það er slcylda hvers einasta þegns í lýð- ræðis þjóðskipulagi að vera ekki algerlega utangátta í stjórnmálum. Þar með er ég ekki að halda því fram, að menn skuli gerast ofstækisfullir fylgjarar einhvers stjórmála- flokksins. Ákveðnustu flokksmennirnir og þeir, sem hæst láta á strætum og gatna- mótum ,eru stundum þeir, sem minnst vita og minnst hafa lært um stjórnmál af þeirri einföldu ástæðu, að þeir telja það höfuð- viðfangsefni sitt að verja og útbreiða sína pólitísku trú á grundvelli slagorðs alls of- beldis og allrar heimsku, sem mannkynið hefur hrjáð: — Þetta er rétt. Allt annað er rangt. — Af stúdentum verður að krefjast nokkuð meiri víðsýnis en þeim, er ekki hafa notið skólamenntunar. Það ætti að vera erfiðara að Ijúga að þeim en öðrum mönnum, vegna þess að hjá þeim ætti að hafa rótfestst hneigð til þess að leita sannleikans í hverju máli og þroskast hæfileiki til þess að fletta hismi blekkinga o gáróðurs utan af kjarna raunveruleikans. Annars er öll skólamennt- un okkar ónýt og einskis verð til mann- þroska. Að því hníga því öll rök, að stúdentar ættu ekki að vera eins leiðitamir fylgjarar stjórnmálaforkólfanna og allur fjöldinn, einkum þegar þess er gætt, að pólitísk sið- fræði íslenzkra stjórnmálamanna er ekki á marga fiska. Mætti því ætla, að frá þeim heyrðust raddir, sem við vitum að þruma undir niðri í hugarfylgsnum fjölmargra al- stúdenta mennra borgara og ekki hefja upp amen og halelúja-söng við hverju því, sem stjórn- málaflokkarnir taka sér fyrir hendur. En því hefur ekki verið þannig farið, og því var það, að víða heyrðist þissi miður vin- samlega og lítt virðulega upphrópun: „Hvað eru stúdentarnir að gjamma?" þegar her- stöðvamálið var á döfinni og stúdentar létu, aldrei slíku vant, einarðlega og virðulega til sín heyra. Ekki er ég sannfærður um, að Keflavíkur- samningurinn hefði orðið eins úr garði gerð- ur og raun varð á, ef stúdentar hefðu áður verið búnir að afla sér virðingar alþjóðar fyrir raunsætt mat á pólitískum málum og einarða framkomu í þeim. En svo var ekki, og saga andstöðu þeirra gegn þeim samn- ingi varð raunasaga, vegna þess að meiri- hluti þeirra, þ. e. næstum því allir fylgis- menn „Vöku“, reyndist svo fylgispakur Sjálfstæðisflokknum, að stefna hans í þessu máli varð honum heilagur boðskapur. Slíkt er ekki hlutverk íslenzkra stúdenta í stjórnmálum. Stúdentsins er ekki að spyrja fyrst: Hvað segir flokkurinn? heldur liggur stúdentheiðurinn þar við, að spurt sé um hið sanna og rétta í hverju máli, og flokkn- um þá fyrst fylgt að málum, ef niðurstaðan hefur orðið honum í vil. í stúdentaráðskosningum þeim, er nú fara í hönd, hafa Félag frjálslyndra stúdenta og Félag lýðræðissinnaðra sósíahsta samein- azt um einn lista. Höfuðástæðan fyrir þess- ari samvinnu er sú, að þessi félög eru von- laus um, að afskipti Stúdentaráðs af nokkru pólitísku máli verði stúdentaum til sóma, meðan „Vaka“, í því pólitíska ástandi, sem hún nú er, hefur þar meirihluta. Bæði þessi félög hafa sýnt sig í því að líta sjálfstætt á málin án þess að spyrja um álit þeirra flokka, sem þau annars fylgja að málum. Með því að kjósa hsta þeirra stuðla stúd- entar að því, að það verði álit þeira sjálfra, sem ræður viðhorfi Stúdentaráðs til mál- anna, en ekki stórráð sjálfstæðisflokksins.

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.